Landsmenn beðnir um að búa sér til „jólakúlu“

Í til­mælum sem gefin hafa verið út eru lands­menn beðnir um að búa sér til „jólakúlu“, búbblu fólks til þess að hitta yfir hátíð­arnar. Ekki er þó alveg skýrt hversu margir ættu að vera í jólakúlu hvers og eins.

Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn á fundinum í dag.
Rögn­valdur Ólafsson aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn á fund­inum í dag. Mynd: Almannavarnir

Rögn­valdur Ólafsson aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra benti á það, í upp­hafi upp­lýs­inga­fundar almanna­varna í morgun, að búið væri að birta leið­bein­ingar til lands­manna á vefnum covid.is um það sem þyrfti að hafa í huga yfir hátíð­arnar vegna COVID-19.

Rögn­valdur sagði að lands­menn væru hvattir til þess að búa sér til jólakúlu, hóp af fólki sem það ætl­aði að hitta um jólin. Því minni „kúlur“ og því færri, því betra, en hvorki á fund­inum né í leið­bein­ingum almanna­varna koma fram leið­bein­ingar um það hversu marga ein­stak­linga fólk ætti að reyna að hafa í sinni „jólakúlu.“ Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði gott að hafa í huga að í dag væru 10 manna fjölda­tak­mark­anir í gildi.

Fram kom í máli sótt­varna­læknis á fund­inum að hann ætti von á því að rík­is­stjórnin myndi koma sér saman um aðgerðir sem byggja á nýju minn­is­blaði hans og kynna þær form­lega með reglu­gerð annað hvort í dag eða á morgun.

„Auðvitað er það þannig að við umgöngumst okkar nánasta fólk“

Blaða­menn ósk­uðu beint og óbeint eftir því á fund­inum í dag að þeir Rögn­valdur og Þórólfur legðu mat á það hvort sá fjöldi ein­stak­linga sem heim­sótti heim­ili Víðis Reyn­is­sonar yfir­lög­reglu­þjóns síð­ustu helgi hefði verið í takti við til­mæli almanna­varna, en eins og Víðir greindi sjálfu frá urðu ell­efu ein­stak­lingar, auk hans sjálfs, útsettir fyrir smiti á heim­ili hans síð­asta laug­ar­dag.[adspot]

„Við höfum sagt það að við erum ekki að leggja dóm eða dæma þá sem eru að smit­ast eða þá sem eru í sótt­kví því óvin­ur­inn okkar er veiran sjálf og við erum ekki að búa til ein­hver til­felli í kringum þá sem eru að smit­ast. Auðvitað reynum við af bestu getu að fara eftir eigin til­lögum en við erum mann­leg eins og við erum flest. Öll erum við að gera okkar besta og ég tel að það þurfi að gilda áfram. En auð­vitað er það þannig að við umgöng­umst okkar nán­asta fólk, við eigum börn, við eigum for­eldra og það er alveg greini­legt að veiran getur læðst inn í slíka hópa líka,“ sagði Þórólfur, spurður af Birni Inga Hrafns­syni hjá Viljanum um það hvort ekki væri mik­il­vægt að þau sem stæðu í fram­lín­unni og beindu boðum til almenn­ings færu eftir eigin til­mælum.

Hvorki hann né Rögn­valdur vildu sér­stak­lega leggja mat á þetta atriði þrátt fyrir að vera spurðir að því hvort skila­boðin til almenn­ings um hvað væri við hæfi og hvað ekki þyrftu ekki að vera skýr.

„Að sjálf­sögðu óskum við öll Víði og fjöl­skyldu góðs bata, en mér finnst samt nauð­syn­legt að spyrja, sér­stak­lega núna í aðdrag­anda jóla, sá gesta­gangur sem var lýst á heim­ili hans. Var þetta í lagi og er þetta eitt­hvað sem má núna í des­em­ber?“ spurði Hólm­fríður Gísla­dóttir blaða­maður á Vísi.[links]

Rögn­valdur svar­aði því til að honum þætti ekki rétt að svara því á þessum vett­vangi, Víðir yrði örugg­lega meira en til í að ræða málið sjálfur þegar hann kæmi aftur úr veik­inda­leyfi. Þórólfur tók svo orðið í kjöl­farið á því að frétta­maður ítrek­aði spurn­ingu sína:

„Skila­boðin eru þau að við erum að hvetja alla til að lág­marka alla hópa­myndun. Við erum með 10 manna mörk núna, við erum með 2 metra reglu, leið­bein­ingar um grímunotkun og hand­hreinsun og svo­leiðis. [...] Við erum ekki að hvetja alla til að sitja inni og hitta ekki nokkurn mann, það væri „lockdown“ í raun og veru, ef við værum að hvetja alla til að fara ekki út. Við erum að hvetja fólk til að fara eftir þessu, þetta eru grunn­regl­urnar. Getur komið upp smit þó það sé farið eftir þessum reglum? Já. En þetta er til þess að lág­marka áhætt­una,“ sagði Þórólfur og bætti því við að ef farið væri eftir þessum reglum ætti smit­hættan að vera í algjöru lág­marki.

Það sem almannavarnir segja að hafa þurfi í huga hafa þarf í huga yfir hátíðirnar

  • Njótum raf­rænna sam­veru­stunda
  • Eigum góðar stundir með heim­il­is­fólkin
  • Veljum jóla­vini (hverja við ætlum að hitta yfir hátíð­arnar)
  • Hugum að heils­unni og stundum úti­vist í fámennum hópi
  • Verslum á net­inu ef hægt er
  • Verum til­búin með inn­kaupa­lista þegar farið er að versla
  • Kaupum mál­tíðir á veit­inga­stöðum og tökum með heim
  • Ef við finnum fyrir ein­kennum sem bent geta til COVID-19 þá er mik­il­vægt að vera heima, fara í próf og vera í ein­angrun þar til nið­ur­staða liggur fyrir.

Varðandi heimboð og veitingar

  • Látum gesti vita um boðið með góðum fyr­ir­vara svo þeir hafi tæki­færi til að fara var­lega dag­ana fyrir boðið.
  • Fylgj­umst með þróun far­ald­urs­ins.
  • Virðum fjölda­tak­mark­anir og tryggjum nánd­ar­mörk og ein­stak­lings­bundnar smit­varnir.
  • Forðumst sam­skots­boð („pálínu­boð") og hlað­borð.
  • Geymum handa­bönd, faðm­lög og kossa til betri tíma.
  • Hugum að loft­ræst­ingu og loftum út á meðan á boð­inu stendur.
  • Bjóðum upp á grímur ef gestir kjósa, þvoum hendur og sprittum okkur reglu­lega.
  • Tak­mörkum sam­eig­in­lega snertifleti og þrí­fum þá oft og reglu­lega.
  • Notum grímu og þvoum okkur reglu­lega um hendur á meðan við útbúum mat­inn, berum hann fram og göngum frá.
  • Tak­mörkum fjölda fólks í eld­hús­inu eða þar sem mat­ur­inn er útbú­inn og gengið er frá eftir mat­inn.
  • Tak­mörkum notkun á sam­eig­in­legum áhöldum, svo sem tertu­hnífum, kaffi­könnum, mjólk­ur­könnum og svo fram­vegis.
  • Þvoum allt tau eftir hvert boð, svo sem dúka og tauserví­ettur.
  • Forðumst söng og hávært tal, sér­stak­lega inn­an­dyra.‍

Gisting

  • Algengt er að vinir og/eðafjölskyldumeðlimir dvelji saman yfir hátíðirnar á sama heimili. Mikilvægt er að vera búin að gera ráðstafanir ef gestir og/eða heimilisfólk veikjast af COVID-19 á meðan heimsókn stendur. Við þurfum að huga að sóttkví, einangrun,heilbrigðis­þjónustu og ferðalaginu heim ef um gesti er að ræða. Hvort sem við gistum að heiman eða fáum sjálf gesti yfir hátíðirnar þurfum við að huga vel að sóttvörnum, sérstaklega ef einhver er í áhættuhópi.

Á upp­lýs­inga­vef almanna­varna má finna nán­ari leið­bein­ingar um ferða­lög til og frá Íslandi fyrir hátíð­arnar og til­mæli til rekstr­ar­að­ila. Þar er svo hnykkt út með því að líkt og á öðrum tímum þurfi að huga að per­sónu­legum sótt­vörnum.

  • Þvoum hendur reglu­lega
  • Virðum nálægð­ar­mörkin
  • Loftum reglu­lega út
  • Notum and­lits­grímur þegar við á
  • Þrífum snertifleti reglu­lega
  • Áríðandi er að við verndum við­kvæma hópa og verndum þá yfir hátíð­arnar.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár