Sigmundur Davíð sammála Bjarna um endurskoðun stjórnarskrárinnar

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, tekur undir með Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála­ráð­herra, að ekki sé þörf á heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar. For­sæt­is­ráð­herra telur hins vegar að end­ur­skoða eigi stjórn­ar­skránna í heild sinni.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, tekur undir með Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, að ekki sé þörf á heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar. Þetta kemur fram í fundargerð af fundi formanna stjórnmálaflokkanna um endurskoðun stjórnarskrárinnar, þann 16. janúar síðastliðinn. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók það aftur á móti fram á sama fundi að hún teldi það mikilvægt að formannanefnd ljúki því verkefni að endurskoða stjórnarskránna í heild sinni. Formenn Viðreisnar, Flokks fólksins og Framsóknarflokksins voru sammála þeirri bókun forsætisráðherra.

Nefndin skipuð vegna þess að ríkistjórnin vildi heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar

Í febr­­úar í fyrra skip­aði Katrín Jak­obs­dóttir, for­­sæt­is­ráð­herra, nefnd um stjórn­­­ar­­skrár­­mál í ljósi þess að ríkisstjórn hennar hafði sett í stjórnarsáttmála sinn að ríkisstjórnin vildi halda áfram heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar. Nefndin er skipuð öllum for­­mönnum þing­­flokk­anna en yfirlýst markmið nefndarinnar er endurskoða núgild­andi stjórn­ar­skrá í heild sinni, á þessu og næsta kjör­tíma­bil­i.

[links]Kjarninn greindi frá því í desember í fyrra að á sjö­unda fundi formannanefnd­­ar­inn­ar, þann 8. októ­ber síð­ast­lið­inn, til­kynnti Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokkinn, nefnd­inni að hann vildi láta færa til bókar að hann telji þess ekki þörf að end­­ur­­skoða stjórn­­­ar­­skránna í heild sinni heldur sé ráð að vinna á­fram með helstu ákvæði, auð­lind­ir, umhverfi, þjóð­ar­at­kvæði og fram­sals­á­kvæði. Í bókuninni segir að hann beri samt virðingu fyrir að menn sjái þetta með mismunandi hætti en hann telji að hópurinn sé kominn á kaf í umræðu um atriði sem séu fyrir utan það sem hann telji þörf á að ræða.

Spurning hvort að forsendur vinnu nefndarinnar væru brostnar

Á fundi formannanefndarinnar, þann 16. janúar síðastliðinn, vildi Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar að fært yrði til bókunar að spurningarnar hafi vaknað hvort að forsendur áframhaldi vinnu nefndarinanr væru brostnar í kjölfar þess að Bjarni teldi að heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar væri óþörf. Logi tók það fram að í minnisblaði Katrínar Jakobsdóttur um fyrirhugaða endurskoðun stjórnarskrárinnar komi skýrt fram að markmið formannanefndarinnar væri heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar.

Í fundargerðinni segir að þá hafi nokkar umræður farið fram á fundinum um verklag og þær bókanir sem lagðar hafa verið fram á fundum formanna. Forsætisráðherra tók þá fram að hægt væri að vinna að endurskoðun með ýmsum hætti. Hún sagði jafnframt að hver og einn gæti til dæmis lagt fram sitt frumvarp og að hún telji að að útkoman verði betri ef menn leggi sig fram um að ræða saman. Að svo búnu lét Katrín færa til bókar að hún telji það mikilvægt að nefndin haldi áfram því verkefni sem hún lagði upp með frá byrjun, að endurskoða stjórnarskránna í heild sinni.

„Ég vil ítreka að fundir for­manna hafa gengið vel og sam­kvæmt þeirri áætlun sem lögð var fram við upp­haf vinn­unnar. Ljóst er að full­trúar flokk­anna munu þurfa að taka reglu­lega afstöðu til vinnu­lags­ins í þessu ferli. Enn fremur liggur fyrir að full­trúar flokk­anna hafa ólíka afstöðu til inn­taks stjórn­ar­skrár­breyt­inga. Ég tel mik­il­vægt að halda áfram því verk­efni sem við höfum hafið sem er að ljúka heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar á tveimur kjör­tíma­bilum og von­andi ná mik­il­vægum áföngum í breyt­ingum á stjórn­ar­skrá.“ sagði Katrín á fund­inum.

Undir bókun for­sæt­is­ráð­herra tóku Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins og Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, kvaðst hins vegar vilja taka undir bókun for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins frá fundi nefnd­ar­innar þann 8. októ­ber 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár