Fjármálaráðherra telur ekki þörf á heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar

Í stjórn­ar­sátt­mála núver­andi rík­is­stjórnar segir að rík­is­stjórnin vilji halda áfram með heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar. Tíu mán­uðum og sjö fundum um stjórn­ar­skrár­mál síðar segir fjár­mála­ráð­herra að hann telji ekki þörf á heild­ar­end­ur­skoðun.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra Mynd: Birgir Þór Harðarson

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins , telur að ekki sé þörf á heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­inn­ar. Hann greindi for­mönnum þing­flokk­anna frá því á nefnd­ar­fundi um heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar í októ­ber síð­ast­liðnum. Sú skoðun hans er á skjön við stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar og áætlun for­manna­nefndar um stjórn­ar­skrár­mál.

Í febr­úar á þessu ári skip­aði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra nefnd um stjórn­ar­skrár­mál sem skipuð er öllum for­mönnum þing­flokk­anna. Mark­mið nefnd­ar­innar er að leggj­ast í heild­ar­end­ur­skoðun á stjórn­ar­skránni. Á sjö­unda fundi nefnd­ar­innar, þann 8. októ­ber síð­ast­lið­inn, til­kynnti Bjarni nefnd­inni að hann vildi láta færa til bókar að hann telji þess ekki þörf að end­ur­skoða stjórn­ar­skránna í heild sinni heldur vinna áfram með helstu ákvæði, auð­lindir, umhverfi, þjóð­ar­at­kvæði og fram­sals­á­kvæði.

Heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar

Í stjórn­ar­sátt­mála núver­andi rík­is­stjórnar sem birt var þann 30. nóv­em­ber 2017 segir að rík­is­stjórnin vilji halda áfram heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar og að nefnd um málið muni hefja störf í upp­hafi nýs þings. „Rík­is­stjórnin vill halda áfram heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar í þverpóli­tísku sam­starfi með aðkomu þjóð­ar­innar og nýta meðal ann­ars til þess aðferðir almenn­ings­sam­ráðs. Nefnd um málið mun hefja störf í upp­hafi nýs þings og leggur rík­is­stjórnin áherslu á að sam­staða náist um feril vinn­unnar.“

Áætlunin metnaðarfull og felur í sér skuldbindingu um heildarskoðun

Í minn­is­blaði frá 22. jan­úar 2018, sem stílað er á for­menn allra flokka sem eiga sæti á Alþingi, segir Katrín Jak­obs­dóttir frá fyr­ir­hug­aðri end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar. Í minn­is­blað­inu segir að í ljósi þess að rík­is­stjórnin setti í stjórn­ar­sátt­mála sinn að hún vilji halda áfram heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar þá leggi for­sæt­is­ráð­herra til ferli sem bygg­ist á því að núgild­andi stjórn­ar­skrá verði end­ur­skoðuð í heild á þessu og næsta kjör­tíma­bili.

Lagt er til í minn­is­blað­inu að allir for­menn flokk­anna vinni sam­eig­in­lega að því að fara skipu­lega og heild­stætt yfir stjórn­ar­skrá lýð­veld­is­ins. Að end­ur­skoð­unin skuli hafa hlið­sjón af þeirri miklu vinnu sem lögð hafi verið í end­ur­skoðun á und­an­förnum árum, sam­an­ber þjóð­fund, stjórn­laga­nefnd og stjórn­laga­ráð auk starfa stjórn­ar­skrár­nefnda 2005 til 2007 og 2013 til 2016. Með það fyrir augum gæti nefndin unnið að breyt­ing­ar­til­lögum sem lagðar yrðu fyrir Alþingi hverju sinni í breiðri sátt að und­an­gengnu víð­tæku sam­ráði.

„Mark­miðið er að þegar þess­ari heild­stæðu yfir­ferð er lokið end­ur­spegli íslenska stjórn­ar­skráin sem best sam­eig­in­leg grunn­gildi þjóð­ar­innar og renni traustum stoðum undir lýð­ræð­is­legt rétt­ar­ríki þar sem vernd mann­rétt­inda er tryggð, “ segir Katrín í minn­is­blað­inu.

Jafn­framt segir í minn­is­blað­inu að sú áætlun sem þar sé lögð fram sé metn­að­ar­full og felur í sér skuld­bind­ingu um heild­ar­end­ur­skoðun á afmörk­uðu tíma­bili. For­sæt­is­ráð­herra leggur til að end­ur­skoð­unin verði áfanga­skipt og að á tíma­bil­inu 2018 til 2021 verða tekin fyrir ákveðin við­fangs­efni, þar á meðal þjóð­ar­eign á nátt­úru­auð­lindum, umhverfis- og nátt­úru­vernd, þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur að frum­kvæði hluta kjós­enda eða minni­hluta þings og fleira.

Fyrsti fundur um stjórnarskrármál

Þann 23. febr­úar hitt­ust allir for­menn þing­flokk­ana á fyrsta form­lega fund­inum um stjórn­ar­skrár­mál. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra fyrir hönd Vinstri Grænna, Inga Sæland fyrir Flokk fólks­ins, Sig­urður Ingi Jóhanns­son fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn, Berg­þór Óla­son fyrir hönd Mið­flokk­inn vegna for­falla Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar, Helgi Hrafn Gunn­ars­son fyrir Pírata en hann tók setu á þessum fundum fyrir hönd Pírata en engin for­maður hjá þeim. Logi Ein­ars­son fyrir Sam­fylk­ing­una, Bjarni Bene­dikts­son fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir fyrir Við­reisn.

Katrín Jak­obs­dóttir setti fund­inn og lagði fram ofan­greint minn­is­blað um fyr­ir­hug­aða end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár með nokkrum breyt­ingum og óskaði eftir við­brögðum við því hvort fund­ar­menn séu sáttir við það upp­legg sem fram komi í minn­is­blað­inu. Nefnd­ar­menn gerðu nokkrar athuga­semdir um röð mál­efna, hlut­verk sér­fræð­inga­nefndar og lengd end­ur­skoð­un­ar­innar. Engin athuga­semd var gerð um stefnu nefnd­ar­innar.

Sérstaklega tekið fram að um er að ræða heildarendurskoðun

Þann 21. sept­em­ber síð­ast­lið­inn hitt­ist nefndin í sjötta sinn og for­sæt­is­ráð­herra seg­ist von­ast eftir því að eftir að sér­fræð­ingar fari yfir til­lögur nefnd­ar­innar um breyt­ingar á ákvæðum umhvef­is­mál og auð­linda­mál þá verði þær sendar út til sam­ráðs í nóv­em­ber eða des­em­ber. Síðar megi svo sam­eina þær í eitt frum­varp. Enn fremur kemur fram í fund­ar­gerð sjötta fundar að for­sæt­is­ráð­herra vilji að leit­ast verði eftir að ná sem breið­ustu sam­stöðu um til­lögur sem koma frá for­mönn­unum áður en gengið verður frá þeim til fram­lagn­ingar á Alþingi.

Á þeim fundi tekur Helgi Hrafn, full­trúi Pírata á fund­inum, fram í annað sinn á sex fundum að for­senda hans fyrir þátt­töku í nefnd­inni sé að um sé að ræða heild­ar­end­ur­skoðun á stjórn­ar­skránni þótt vinnan fari þannig fram að afmörkuð efni séu skoðuð hvert á fætur öðru. 
Að öðru leyti eru ekki gerðar athuga­semdir við upp­legg for­sæt­is­ráð­herra nema for­maður Við­reisnar bendir á mik­il­vægi þess að fjallað sé um fram­sal rík­is­valds á þessu kjör­tíma­bili.

Fjármálaráðherra telur ekki þörf á heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar

Á næsta fundi þann átt­unda októ­ber, sem jafn­framt er sjö­undi fundur for­manna þing­flokk­ana, mæta allir for­menn­irnir og síð­asta fund­ar­gerð er sam­þykkt án athuga­semda. Í fund­ar­gerð­inni frá 8. októ­ber kemur fram að for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Bjarni Bene­dikts­son, vilji láta færa til bókar að ekki sé þörf á heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar. Hann geri það í til­efni af öðrum bók­unum sem fram hafi komið á und­an­förnum fundum.

Í fund­ar­gerð­inni segir að Bjarni telji að ekki sé þörf fyrir heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar heldur sé ráð að vinna áfram með þessi helstu ákvæði, auð­lindir, umhverfi, þjóð­ar­at­kvæði og fram­sals­á­kvæði. „Hann beri samt virð­ingu fyrir að menn sjái þetta með mis­mun­andi hætti en hann telji að hóp­ur­inn sé kom­inn á kaf í umræðu um atriði sem séu fyrir utan það sem hann telji þörf á að ræða,“ segir Bjarni.

Það sem af er ári hafa verið birtar fund­ar­gerðir frá sjö stjórn­ar­skrá­ar­fund­um, síð­asta birta fund­ar­gerðin er sú sjö­unda en hún var birt þann 8. októ­ber 2018. Fjár­mála­ráð­herra mætti á alla sjö fundi nefnd­ar­innar en í fund­ar­gerð­unum má sjá að þetta er í fyrsta skipti á sjö fundum sem Bjarni lætur færa til bókar að hann telji ekki þörf á heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar.

Á sama fundi tekur Helgi Hrafn það fram í þriðja sinn að for­senda hans fyrir þátt­töku sé að um sé að ræða heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar, sem grund­völluð sé á fyrri vinnu, þ.á.m. frum­varpi stjórn­laga­ráðs.[adspot]

Meirihluti Íslendinga telur það mikilvægt að fá nýja stjórnarskrá

Meiri­hluti lands­manna telur það mik­il­vægt að Íslend­ingar fái nýja stjórn­ar­skrá á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili, sam­kvæmt könnun MMR í októ­ber síð­ast­liðnum. Alls sögðu 34 pró­sent aðspurðra það vera mjög mik­il­vægt að lands­menn fái nýja stjórn­ar­skrá og 18 pró­sent kváðu það frekar mik­il­vægt. Í heild­ina telja því 52 pró­sent það mik­il­vægt að Íslend­ingar fái nýja stjórn­ar­skrá. Nítján pró­sent sögðu það hvorki mik­il­vægt né lít­il­vægt, 11 pró­sent frekar lít­il­vægt og 18 pró­sent mjög lít­il­vægt.

Stuðn­­ings­­fólk Pírata reynd­ist lík­leg­ast til að segja það mik­il­vægt að lands­menn fái nýja stjórn­ar­skrá á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili eð um 90 pró­sent. Stuðn­ings­menn Flokks fólks­ins og Sam­fylk­ing­ar­innar töldu það einnig mjög mik­il­vægt eða 85 pró­sent og 83 pró­sent. Stuðn­­ings­­fólk Sjálf­­stæð­is­­flokks reynd­ist hins vegar lík­leg­ast til að segja það lít­il­vægt eða 66 pró­sent. Meiri­hluti stuðn­ings­manna Mið­flokks­ins töldu það einnig lít­il­vægt eða um 60 pró­sent og 41 pró­sent stuðn­ings­manna Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár