Ingvi Hrafn verður formaður fjölmiðlanefndar

Ingvi Hrafn Ósk­ars­son hefur verið skip­aður for­maður fjöl­miðla­nefndar til 31. ágúst 2019. Hann tekur við af Karli Axels­syni, sem óskaði lausnar frá starf­inu.

Ásamt Ingva Hrafni eru Hulda Árna­dóttir, Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, Salvör Nordal og Arna Schram í fjöl­miðla­nefnd­inni.

Ingvi Hrafn sagði sig úr stjórn RÚV í byrjun nóv­em­ber, og sagði þá að það væri sökum anna. Hann hafði átt sæti í stjórn­inni frá ágúst 2013. „Vegna mik­illa og vax­andi anna í starfi mínu sem lög­maður sé ég mér því miður ekki fært að verja áfram nauð­syn­legum tíma og orku í störf fyrir hönd Rík­is­út­varps­ins sam­hliða lög­manns­stör­f­unum. Á þessum tíma­mótum tel ég því skyn­sam­legt að annar taki við verk­efn­inu og fylgi því úr hlaði,“ sagði hann þá. 

Tíma­setn­ingin var þó þannig að umræðan um Rík­is­út­varpið og fjár­mögnun þess var í hámæli. Morg­un­blaðið greindi frá því að hann hefði hætt af því að hann komst að þeirri nið­ur­stöðu að hann nyti ekki lengur nægj­an­legs stuðn­ings innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins til að fara þá leið í rekstri stofn­un­ar­innar sem marka átti með nýjum útvarps­stjóra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár