Verðbólga komin í 4,1%

Vísitala neyslu­verðs hækk­aði á milli mán­aða.

Matarkarfan
Mat­ar­k­arfan Verð­bólga er 4,1% á árs­grund­velli. Mynd: Golli

Vísitala neyslu­verðs í sept­em­ber hækkar um 0,11% frá fyrri mán­uði. Vísitala neyslu­verðs án hús­næðis lækkar hins vegar um 0,13% frá því í ágúst.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Hag­stof­unni í morgun.

Föt og skór hækk­uðu um 2,9%og kostn­aður vegna búsetu í eigin hús­næði, það er reiknuð húsa­leiga, hækk­aði um 0,9%. Verð á flug­far­gjöldum til útlanda lækk­aði hins vegar um 15,4%.

Síð­ast­liðna tólf mán­uði hefur vísi­tala neyslu­verðs hækkað um 4,1% og vísi­tala neyslu­verðs án hús­næðis um 3,2%.

Verð­bólga á árs­grund­velli mæld­ist 3,8% í ágúst og hefur hún því þok­ast upp á við.

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands sagði við síð­ustu stýri­vaxta­á­kvörðun að skýr merki þyrftu að sjást um að verð­bólga væri á nið­ur­leið áður en vextir mundu lækka á ný.

Næsta stýri­vaxta­á­kvörðun verður kynnt 8. októ­ber.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár