Búið að kynna skýrslu um fjárhagsstöðu RÚV fyrir Illuga og Bjarna

Illugi Gunn­ars­son mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hafa fengið kynn­ingu á drögum að skýrslu starfs­hóps um fjár­hags­stöðu RÚV. Starfs­hóp­ur­inn kynnti drögin fyrir ráð­herr­unum þann 18. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Þetta kemur fram í svari frá mennta­mála­ráðu­neyt­inu við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Aðstoð­ar­maður mennta­mála­ráð­herra, Sigríður Hall­gríms­dóttir, sagði við Kjarnann í gær að ekki væri búið að afhenda skýrsl­una ráð­herra, eins og Óli Björn Kárason vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafði haldið fram í grein í Morg­un­blað­inu. Hún ítrekar þetta í svari til Kjarnans í dag, að skýrslan sjálf hafi ekki verið afhent, en vinnsla hennar sé á loka­metr­unum.

Illugi skip­aði í vor þriggja manna starfs­hóp til að skoða og greina rekstur Rík­is­út­varps­ins frá því að RÚV var gert að opin­beru hluta­fé­lagi þann 1. apríl 2007. „Mark­miðið er að sú skoðun varpi ljósi á ástæður þess alvar­lega rekstr­ar­vanda sem Rík­is­út­varpið ohf. glímir nú við,“ sagði í til­kynn­ingu um skipan hóps­ins. Eyþór Arnalds er for­maður hóps­ins og Guðrún Ögmunds­dóttir, starf­maður í fjár­mála­ráðu­neyt­inu, og Svan­björn Thorodd­sen ráð­gjafi, sitja líka í honum. Hann átti upp­haf­lega að skila nið­ur­stöðum sínum fyrir 26. júní, en það varð ekki.

Óli Björn sagði í gær að skýrsla starfs­hóps­ins væri til­búin og hefði verið afhent ráð­herra fyrir mörgum vikum síðan, en af ein­hverjum ástæðum ekki verið birt. „Það er sér­kenni­legt, svo ekki sé dýpra í árinni tekið, að almenn­ingur fái ekki aðgang að skýrslu um fjár­hags­lega stöðu fyr­ir­tæk­is­ins sem a.m.k. á tylli­dögum og í aug­lýs­ingum er sagt „okkar allra“ sem með góðu eða illu greiða nef­skatt í formi útvarps­gjalds til að standa undir rekstr­inum,“ sagði Óli Björn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár