Óli Björn: Vinnu starfshóps um fjárhagsstöðu RÚV lokið en skýrslan ekki birt

Skýrsla þriggja manna óháðs starfs­hóps um fjár­hags­stöðu RÚV er til­búin og var afhent ráð­herra fyrir mörgum vikum en hefur af ein­hverjum ástæðum ekki verið birt. Þetta segir Óli Björn Kárason, vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag.

„Það er sér­kenni­legt, svo ekki sé dýpra í árinni tekið, að almenn­ingur fái ekki aðgang að skýrslu um fjár­hags­lega stöðu fyr­ir­tæk­is­ins sem a.m.k. á tylli­dögum og í aug­lýs­ingum er sagt „okkar allra“ sem með góðu eða illu greiða nef­skatt í formi útvarps­gjalds til að standa undir rekstr­inum,“ segir Óli Björn.

Í grein­inni fjallar Óli Björn um kom­andi lands­fund Sjálf­stæð­is­flokks­ins og segir skýrsl­una hafa getað komið sér vel við mótun stefnu flokks­ins. Fyrir lands­fund liggur til­laga alls­herjar- og mennta­mála­nefndar um fjöl­miðla. Hann segir að það yrðu von­brigði ef hún fæst sam­þykkt en til­lagan segir orð­rétt:

„Fjöl­miðlun er afar mik­il­væg í lýð­ræð­is­þjóð­fé­lagi og einka­reknir fjöl­miðlar þurfa að hafa burði og jafn­ræði til að sinna mik­il­vægu hlut­verki í sam­keppni við Rík­is­út­varpið. Mik­il­vægt er að varð­veita menn­ing­ar­arf þann sem Rík­is­út­varpið ohf. hefur umsjón með og gera efni í eigu stofn­un­ar­innar aðgengi­legt almenn­ingi.“

Hann segir ekki hægt að skilja til­lög­una öðru­vísi en að slá eigi skjald­borg um Rík­is­út­varpið og að tónn­inn sé annar en í ályktun lands­fundar 2013. Þá sagði:

„Rekstur rík­is­ins á fjöl­miðlum má ekki hamla frjálsri sam­keppni og raska rekstr­ar­grund­velli ann­arra fjöl­miðla. Lands­fundur leggur til að þörf sam­fé­lags­ins fyrir rík­is­fjöl­miðil verði end­ur­skil­greind og Rík­is­út­varpið ohf. verði lagt niður í núver­andi mynd ef ástæða þykir til. Skil­greina þarf hvaða menn­ing­ar­fræðslu og dag­skrár­gerð á að styrkja opin­ber­lega og tryggja fjár­magn til þeirra verk­efna.“

Að sögn Óla Björns hefur end­ur­skil­grein­ing á „þörf sam­fé­lags­ins fyrir rík­is­fjöl­miðil“ ekki farið fram, tæpum þremur árum eftir að lands­fundur taldi það nauð­syn­legt. Ástæða þess sé óljós en „krónísk fjár­hags- og rekstr­ar­vand­ræði“ RÚV hafi orðið til þess að mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið skip­aði þriggja manna starfs­hóp. Hann hafi nú lokið vinnu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár