Mun færri flóttamenn hafa sótt um hæli í ár en árin á undan

Miðað við þann fjölda flótta­manna sem sótt hefur um hæli hér­lendis það sem af er ári mun þeim sem sækja hér um hæli fækka um rúm­lega 40 pró­sent milli ára. Til stendur að borga flótta­mönnum fyrir að draga umsóknir til baka.

Flestir þeirra kvótaflóttamanna sem koma til Íslands eru Sýrlendingar sem dvelja í Líbanon. Á meðan að kvótaflóttamönnum fjölgar fækkar þeim sem koma hingað á eigin vegum til að sækja um hæli.
Flestir þeirra kvótaflótta­manna sem koma til Íslands eru Sýr­lend­ingar sem dvelja í Líbanon. Á meðan að kvótaflótta­mönnum fjölgar fækkar þeim sem koma hingað á eigin vegum til að sækja um hæli. Mynd: EPA

lls hafa 533 ein­stak­lingar sótt um alþjóð­lega vernd á Íslandi á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins 2018. Flestir þeirra koma frá Írak, alls 89 tals­ins. Þá komu 70 frá Albaníu, sem flokk­ast sem er á lista stjórn­valda yfir örugg ríki þar sem grund­vall­ar­mann­rétt­indi eru almennt talin virt. Þeim sem sækja um hæli frá öruggum ríkjum er yfir­leitt ekki veitt hæli hér­lend­is.

Af þeim sem sótt hafa um hæli það sem af er ári eru 319 full­orðnir karl­menn, 86 konur, 64 drengir og 54 stúlkur. Þar af eru tíu fylgd­ar­laus börn. Alls hafa 577 mál verið afgreidd á árinu 2018. Í þeim hafa 114 manns fengið hæli hér­lendis, 187 verið synjað um slíkt, 117 verið sendir aftur til þess lands sem þeir komu fyrst til innan Evrópu á grund­velli Dyflinar-reglu­gerð­ar­innar, 47 hafa fengið vernd í öðru ríki og 112 hafa hlotið önnur en óskil­greind mála­lok.

Þetta kemur fram í nýrri töl­fræði vernd­ar­sviðs Útlend­inga­stofn­unar sem birt var í síð­ustu viku.

Mun færri flóttamenn en 2016 og 2017

Það stefnir allt í að mun færri flótta­menn sæki um hæli á Íslandi í ár en á und­an­förnum árum. Á öllu árinu 2017 sóttu hér um 1.096 manns um slíkt og því stefnir í að fjöldi hæl­is­leit­enda verði tæp­lega 60 pró­sent af því sem hann var í fyrra. Þá fengu 115 flótta­menn hæli hér, eða nán­ast sami fjöldi og hefur fengið slíkt það sem af er ári.

Flestir flótta­menn komu hingað til lands árið 2017 þegar þeir voru 1.130 tals­ins. Þá fengu 110 manns hæli á Íslandi.

Samkvæmt rík­is­reikn­ingi fyrir árið 2017, sem birtur var í síð­ustu viku, var heild­ar­kostn­aður rík­is­sjóðs vegna hæl­is­leit­enda 3.093 millj­ónir króna í fyrra. Það er 105 millj­ónum króna minna en fjár­hags­á­ætlun fyrir árið hafði gert ráð fyrir.

Fyrir utan þá flótta­menn sem koma að sjálfs­dáðum til lands­ins þá tekur Ísland líka við svoköll­uðum kvótaflótta­mönnum. Stefnt er að því að taka við allt að 75 slíkum á næsta ári, að mestu Sýr­lend­ingum sem eru staddir í Líbanon og hinsegin flótta­mönnum og fjöl­skyldum þeirra frá Kenýa.

Áður hafði Ísland tekið við sam­tals 695 kvótaflótta­mönnum á 62 árum.

Vill borga flóttamönnum fyrir að draga umsóknir til baka

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra hefur lagt fram drög að reglu­gerð sem í felst að Útlend­inga­stofnun fái heim­ild til þess að greiða end­urað­lög­un­ar- og ferða­styrk til umsækj­enda um alþjóð­lega vernd í til­teknum til­vik­um. Þau til­vik sem um ræðir eru þegar flótta­maður hefur annað hvort dregið umsókn sína um vernd hér­lendis til baka eða hann hefur fengið synjun og ákvörðun hefur verið tekin um að veita aðstoð til sjálf­viljugrar heim­far­ar.

Þeim yrði þá greitt fyrir að fara frá Íslandi í tveimur greiðsl­um. Sú fyrri, svo­kall­aður ferða­styrk­ur, yrði greiddur út á Kefla­vík­ur­flug­velli. Sá síð­ari, svo­kall­aður end­urað­lög­un­ar­styrk­ur, yrði greiddur í heima­ríki við­kom­andi.

Upp­hæð­irnar sem standa til boða sem styrkur til þess­ara aðila fara meðal ann­ars eftir því hvort við­kom­andi er barn eða full­orð­inn og hvaðan hann kem­ur. Þannig eiga full­orðnir ein­stak­lingar frá Afganistan, Íran, Írak, Níger­íu, Sómal­íu, Palest­ínu og Pakistan að fá allt að eitt þús­und evr­ur, um 123 þús­und krón­ur, ef þeir sam­þykkja að fara sjálf­vilj­ugur frá íslandi eða hafa fengið synjun á beiðni um alþjóð­lega vernd. Barn frá sömu löndum getur hins vegar fengið 600 evrur sam­tals, um 74 þús­und krón­ur.

Full­orðnir ein­stak­lingar frá Alsír, Egypta­landi, Kasakstan og Marokkó eiga að fá allt að 700 evr­ur, 86 þús­und krón­ur, fyrir að fara frá Íslandi en börn frá sömu löndum fá 37 þús­und krónur sam­tals í ferða- og end­urað­lög­un­ar­styrk.

Fylgd­ar­laus börn frá öllum ofan­greindum ríkjum geta fengið allt að eitt þús­und evr­ur, 123 þús­und krón­ur, sam­þykki þau að draga vernd­ar­um­sókn sína til baka eða að það sé þegar búið að synja þeim um alþjóð­lega vernd.

Flótta­menn frá öðrum löndum en ofan­greindum geta fengið á bil­inu 100 til 200 evrur í ferða- og end­urað­lög­un­ar­styrk fall­ist þeir á þau skil­yrði sem eru fyrir styrk­veit­ing­unni.

Drögin voru birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda 17. ágúst síð­ast­lið­inn og sam­ráðið stóð yfir í tíu daga. Engar umsagnir bár­ust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár