Bandaríska alríkislögreglan ætlar á eftir Sepp Blatter - bréf birt sem sannar greiðslur

Banda­rískir sak­sókn­arar og banda­ríska alrík­is­lög­reglan FBI eru að rann­saka Sepp Blatter, for­seta alþjóða­knatt­spyrnu­sam­bands­ins FIFA, og aðild hans að ara­grúa spill­ing­ar­mála sem upp­lýst hefur verið um að hafi átt sér stað innan sam­bands­ins. Þetta hefur Reuters-frétta­stofan eftir ónafn­greindum heim­ild­ar­manni. Tals­maður FBI hefur neitað að tjá sig opin­ber­lega um málið. Sviss­nesk yfir­völd höfðu áður sagt að Blatter væri ekki til rann­sóknar.

Blatter, sem hefur verið for­seti FIFA frá árinu 1998, til­kynnti óvænt á blaða­manna­fundi í gær að hann muni hætta sem for­seti sam­bands­ins eftir nokkra mán­uði. Yfir­lýs­ingin kom sér­stak­lega á óvart þar sem Blatter, sem er 79 ára, var end­ur­kjör­inn í emb­ættið síð­ast­lið­inn föstu­dag. Hann hafði þá staðið af sér gríð­ar­legan þrýst­ing frá mörgum af áhrifa­mestu mönnum knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar um að stíga til hliðar.

Verið að undirbyggja mál gegn Blatter

Alls hafa fjórtán manns verið hand­teknir og ákærðir vegna meintrar spill­ingar innan FIFA. Þeim er meðal ann­ars gefið að sök að hafa tekið þátt í mút­ur­greiðslum og pen­inga­þvætti. Í banda­rískum fjöl­miðlum í dag er haft eftir heim­ild­ar­mönnum innan FBI, sem fer með rann­sókn máls­ins, að menn­irnir sem þegar hafa verið hand­teknir og ákærðir sýni sam­starfsvilja og upp­lýsi um athafnir ann­arra hátt­settra stjórn­enda og stjórn­ar­manna FIFA, meðal ann­ars Blatter.

Það virð­ist liggja fyrir að rann­sak­endur eru að safna upp­lýs­ingum til að und­ir­byggja mál gegn Blatter. Það setur afsögn hans í gær í nýtt ljós. Þar sagði Blatter m.a.:„Hags­munir FIFA eru mér kærir. Þess vegna hef ég tekið þessa ákvörðun. Það sem skiptir mig mestu máli er stofn­unin FIFA og fót­bolti um allan heim“. Hann til­kynnti sömu­leiðis að hann ætl­aði að boða til nýs aðal­fundar þar sem þarf að kjósa nýjan for­mann, en það verður ekki gert fyrr en á tíma­bil­inu milli des­em­ber á þessu ári og mars á næsta ári.

Skýrist hvað ýtti Blatter til að tilkynna afsögn

Miklar vanga­veltur eru um það í vest­rænum fjöl­miðlum hvað hafi ýtt Blatter til að til­kynna afsögn sína í gær. Flestir virð­ast sam­mála um að frétta­flutn­ingur af mögu­legri aðkomu Jerome Valcke, fram­kvæmda­stjóra FIFA og eins nán­asta sam­starfs­manns Blatters, við mútu­greiðslur í tengslum við HM í Suður-Afríku, sem fór fram árið 2010, hafi hafi gert úts­lagið. Blatter sé hins vegar ekki til­bú­inn til að stíga til hliðar á meðan að rann­sóknin á FIFA sé í hámæli, vegna þess að það geri hann ber­skjald­aðri að hafa engin völd eða ítök á meðan að á henni stendur. Þess vegna vilji hann ekki hætta fyrr en seint á þessu ári eða snemma á því næsta.

Mál Valcke hefur undið upp á sig und­an­farna daga. Bréf stílað á Valcke, frá Molefi Oliphant, for­seta knatt­spyrnu­sam­bands Suður-Afríku, hefur verið birt á sam­skipta­vefnum Twitter.

BOMBSHELL: Letter from South Africa FA to FIFA instructing $10m pay­ment to Warner WAS addressed to Jerome Valcke pic.twitter.com/b0yKBPRAcA

— Martyn Ziegler (@martynziegler) June 2, 2015

Í því er að finna fyr­ir­mæli um hverngi eigi að greiða tíu millj­ónir dala frá FIFA til félags­skapar sem kall­ast The Diaspora Legacy Programme. Í bréf­inu er sér­stak­lega tekið fram að for­seti amer­ísku knatt­spyrnu­sam­band­anna CONCACAF eigi að ráða því hvernig umræddum pen­ingum verði varið. Þar er um að ræða Jack Warner, fyrrum vara­for­seta FIFA og einn þeirra fjórtán sem hand­teknir voru í síð­ustu viku. FIFA hefur þegar við­ur­kennt að greiðslan hafi átt sér stað en neitar að Valcke

hafi borið ábyrgð á henni og segir að fyrrum fjár­mála­stjóri sam­bands­ins, Julio Grondona, hafi sam­þykkt greiðsl­una. Auk þess hafi Blatter ekk­ert vitað af greiðsl­unni, sem var innt af hendi árið 2008. Grondona er lát­inn og getur ekki svarað fyrir sak­ar­gift­irnar.

Rússland og Katar í óvissu

Ljóst er að heims­meist­ara­keppn­irnar í bæði Rúss­landi og Katar, sem eiga að fara fram 2018 og 2022, eru í upp­námi eftir upp­ljóstr­anir síð­ustu vikna. Sviss­nesk yfir­völd hafa þegar hafið rann­sókn á því hvernig var staðið að því að veita lönd­unum tveimur rétt­inn til að halda keppn­irnar og hvort að mögu­lega hafi lófar verið smurðir með pen­ingum til að liðka fyrir því vali. Ólík­legra þykir að Rússar missi mögu­leik­ann á að halda mótið 2018. Mun styttra sé í það og knatt­spyrnu­legir inn­viðir séu þegar til staðar í land­inu. Meiri líkur eru taldar á því að keppnin í Katar verði færð og er talið nán­ast ein­boðið að hún muni þá fara fram í Englandi, sem lenti í öðru sæti þegar valið var um land til að halda mótið 2022 í.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár