Hvernig forsetaeiginmaður yrði Bill Clinton?

Það yrði í meira lagi sögu­legt ef Hillary Clinton yrði for­seti Banda­ríkj­anna, og Bill eig­in­maður hennar þar með kom­inn í Hvíta húsið. En í nýju hlut­verki í þetta skiptið.

Ef svo fer að Hillary Clinton verði kjörin for­seti Banda­ríkj­anna í kosn­ing­unum 8. nóv­em­ber næst­kom­andi yrði það sögu­legt, í fleiri en einum skiln­ingi. Hillary Clinton yrði fyrsta konan í sögu Banda­ríkj­anna til að gegna þessu valda­mikla emb­ætti og bóndi hennar, Bill, fyrsti karl­kyns for­seta­makinn, fyrsti for­seta­eig­in­mað­ur­inn. Auk þess yrði þetta í fyrsta sinn sem hjón hefðu stóla­skipti, ef svo má að orði kom­ast, í Hvíta hús­inu.

Síðan Martha Washington stóð við hlið George Washington þegar hann sór emb­ætt­is­eið sem fyrsti for­seti Banda­ríkj­anna 30. apríl 1789 hefur það verið hlut­verk “the first lady”, for­seta­frú­ar­innar, að standa við hlið manns síns, vera fyr­ir­mynd ann­arra kvenna, ætíð vel til höfð, stoð og stytta for­set­ans.

Bill í húsverkunum

Formlega hefur for­seta­makinn engar skyldur, en það er hins­vegar löng hefð fyrir því að mak­inn sé við hlið for­set­ans við opin­berar athafnir, stórar og smáar, ann­ist í sam­ráði við starfs­fólk Hvíta húss­ins skipu­lagn­ingu veislna og iðu­lega í hlut­verki gest­gjafans við slík tæki­færi. Bill Clinton er vissu­lega mjög veislu­vanur, þykir ein­stak­lega skemmti­legur ræðu­maður og kann alla sið­ina. Kannski myndi hann ekki kunna illa við sig í hlut­verk­inu, hver veit? Annað mál er svo það að löndum hans myndi þykja það ein­kenni­legt í meira lagi að vita af honum í hús­verk­unum. Raða til borðs, ákveða hvernig serví­ett­urnar skuli brotnar, hvaða glös skuli nota og svo fram­vegis. Banda­ríkja­menn eru íhalds­samir þegar kemur að hlut­verka­skipt­ingu kynj­anna og margir þar vestra ættu lík­lega erfitt með að venj­ast Bill Clinton í hlut­verki sem hefðin býður að kona gegni. Ef svo færi að Hillary Clinton bæri sigur úr býtum í for­seta­kosn­ing­unum er því lík­legt að hlut­verk makans breyt­ist að þessu leyti.

Fyrirmyndin

Eins og áður var getið fylgj­ast Banda­ríkja­menn ætíð grannt með for­seta­frúnni. Hverju hún klæð­ist, hvernig hár­greiðslan er o.s.frv. Þeir mynda sér líka ákveðnar skoð­anir á fram­komu hennar við öll mögu­leg tæki­færi, hvort hún tali við börnin og hvernig hún svari spurn­ingum almenn­ings og frétta­manna. Bill Clinton yrði ekki í vand­ræðum með að spjalla við börnin né heldur stæði í honum að svara frétta­mönnum. Sagan sýnir að þar á hann fáa jafn­oka. Þegar kemur að klæðn­aði og hár­greiðslu er kannski annað upp á ten­ingnum. Það er ekki mikil fjöl­breytni í fata­vali Bills, frekar en svo margra ann­arra karla og sama má segja um hár­greiðsl­una.

Það er líka útbreidd skoðun meðal Banda­ríkja­manna að maki for­set­ans eigi að vera góð fyr­ir­mynd, hið trygga og trausta bak­land sem ætíð er til staðar. Þarna vand­ast málið hvað Bill varðar. Ekki þarf að fara mörgum orðum um að í einka­lífi þeirra Clinton hjóna hefur gengið á ýmsu, að ekki sé meira sagt. Blaða­maður New York Times komst ein­hverju sinni svo að orði að for­set­anum fyrr­ver­andi hefði skroppið fótur á vegi dyggð­ar­innar, ekki þarf að hafa fleiri orð um þá full­yrð­ingu.

Eleanor Roosevelt - Edith Wilson – Hillary Clinton

Þótt flestar for­seta­frúrnar hafi fyrst og fremst sinnt því sem stundum hefur verið kallað hefð­bundið eig­in­konu­hlut­verk er það þó ekki algilt. Eleanor Roosevelt eig­in­kona Franklin D. Roosevelt, sem var for­seti 1933 - 1945, tók mik­inn þátt í stjórn­málum og eftir að ver­unni í Hvíta hús­inu lauk átti hún meðal ann­ars þátt í að semja mann­rétt­inda­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Edith Wilson tók við, bak­við tjöldin, mörgum af störfum eig­in­manns­ins Woodrow Wilson, sem var for­seti 1913 – 1921, eftir að hann fékk slag árið 1919 þegar tvö ár voru eftir af kjör­tíma­bil­inu.

Hillary Clinton var mjög virk á sviði stjórn­mál­anna í for­seta­tíð eig­in­manns­ins 1993 - 2001 og var síðar kjörin á þing. Hún var utan­rík­is­ráð­herra í stjórn Barack Obama 2009 – 2013. Verði hún næsti for­seti Banda­ríkj­anna má telja öruggt að Bill for­seta­maður taki virkan þátt í stjórn­málum. Í við­tali við viku­ritið People Magazine var hún spurð um hlut­verk bónd­ans ef hún yrði kjörin for­seti. Hún svar­aði því til að hann yrði ekki í hús­verk­unum, hún myndi njóta aðstoðar hans í efna­hags­málum, finna leiðir til að fjölga störfum og sinna sér­stökum verk­efnum. „Hann kann þetta allt og þekkir marga” sagði Hillary.

Bill Clinton hefur sagt að verði Hillary for­seti muni hann gera allt sem í sínu valdi standi til að aðstoða hana í hinu vanda­sama og erf­iða emb­ætti. „Að verða for­seta­eig­in­maður yrði spenn­andi verk­efni” sagði Bill Clinton.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár