Obama vill 1,8 milljarða dala til að berjast gegn Zika-veirunni

Barack Obama Banda­ríkja­for­seti mun óska eftir því við banda­ríska þingið að það veiti 1,8 millj­arða dala neyð­ar­fjár­magn til þess að berj­ast gegn útbreiðslu Zika-veirunnar. Veiran breið­ist nú hratt út, ekki síst í Rómönsku-Ameríku, og er talin valda alvar­legum fæð­ing­argalla, höf­uðs­mæð­ar­heil­kenni.

Flest smitin hafa orðið með moskítóflugum, en einnig eru dæmi um smit í gegnum kyn­mök. Fjár­magnið sem Obama óskar eftir á að miklu leyti að fara í að hefta útbreiðslu moskítófluga og í rann­sóknir á bólu­efnum. Hvíta húsið segir að ætl­unin sé að „bæta hæfni Zika-hrjáðra ríkja til að berj­ast gegn moskítóflugum og hafa betri stjórn á smitum.“

Veiran berst nú í nýja sjúk­linga í 26 ríkjum í Ameríku, og 50 til­felli hafa verið stað­fest í Banda­ríkj­unum. Þau smit höfðu öll orðið hjá fólki sem hafði ferð­ast suður og komið til baka til Banda­ríkj­anna. Eitt til­vik var auk þess til­kynnt í Dallas í Texas í síð­ustu viku, og í því til­viki varð smit með kyn­mökum en ekki moskító­biti.

Heil­brigð­is­yf­ir­völd ótt­ast að með hlýn­andi veðri á norð­ur­hveli jarðar, og moskítófl­ugur vakni til lífs­ins, geti smitum fjölgað veru­lega, ekki síst í suð­ur­ríkjum Banda­ríkj­anna.

Lyfja­stofnun Evrópu hefur einnig greint frá því að búið er að koma á lagg­irnar verk­efna­stjórn sem á að veita lyfja­fyr­ir­tækjum sem vinna að bólu­efnum og lyfjum gegn veirunni ráð­gjöf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár