Í desember 2020 greindi Kjarninn frá því að 20 þingmenn, 18 úr stjórnarandstöðu og tveir þingmenn Vinstri grænna, hefðu lagt fram beiðni um að Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, láti gera skýrslu um eignarhald 20 stærstu útgerðarfélaga í íslensku atvinnulífi. Fyrsti flutningsmaður málsins er Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar.
Þingmennirnir vildu að ráðherrann myndi láta taka saman fjárfestingar útgerðarfélaganna, dótturfélaga þeirra og félaga þeim tengdum í félögum sem ekki hafa útgerð fiskiskipa með höndum á síðustu tíu árum og bókfært virði eignarhluta þeirra í árslok 2019. Í beiðninni var sérstaklega farið fram á að í skýrslunni yrðu raunverulegir eigendur þeirra félaga sem yrði til umfjöllunar tilgreindir og samantekt á eignarhlut 20 stærstu útgerðarfélaganna í íslensku atvinnulífi byggt á framangreindum gögnum.
[adspot]Beiðnin var samþykkt 18. desember með 57 atkvæðum þeirra þingmanna sem voru viðstaddir atkvæðagreiðslu um hana. Samkvæmt þingskapalögum hefur ráðherra tíu vikur til að vinna slíka skýrslu eftir að beiðni þess efnis er samþykkt. Á morgun, föstudaginn 18. apríl, verða liðnar ellefu vikur frá því að beiðnin var samþykkt.
Hanna Katrín birti stöðuuppfærslu um málið í fyrradag þar sem hún gerði grein fyrir því að hún hefði fengið skilaboð frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu í vikunni um að það gæti ekki unnið skýrsluna nema að umfang hennar yrði afmarkað við árin 2016 til 2019 í stað áratugar. Í stöðuuppfærslunni segir Hanna Katrín að hún hafi fallist á þá afmörkun og „gott betur því ég benti á hvar þau gætu nálgast tiltekin gögn og aðferðafræði. Ég er óbilandi bjartsýnismanneskja og í því bjarta ljósi spái ég að skýrslan komi fyrir næstu mánaðarmót.“
Fáir halda á miklu
Í greinargerð sem birt var með beiðninni þegar hún var lögð fram sagði að eiginfjárstaða sjávarútvegsfyrirtækja hafi batnað verulega frá hrunsárunum og að bókfært eigið fé þeirra hafi staðið í 276 milljörðum krónum við lok árs 2018, samkvæmt gagnagrunni Deloitte um afkomu sjávarútvegsins 2018. „Vísbendingar eru um að fjárfestingar þeirra út fyrir greinina hafi aukist í samræmi við það. Það er jákvætt að því leyti að það dreifir áhættu félaganna sjálfra en getur hæglega leitt til verulegrar uppsöfnunar eigna og áhrifa á fárra hendur og dregið úr virkri samkeppni á mörkuðum. Vegna smæðar sinnar er íslenskt atvinnulíf sérstaklega viðkvæmt fyrir fákeppni.“
Ljóst væri að sterk fjárhagsstaða útgerðarfélaga byggðist á einkaleyfi þeirra til nýtingar sameiginlegrar auðlindar þjóðarinnar og skipar það þeim í sérflokk í íslensku atvinnulífi, sérstaklega stærstu félögunum. „Vegna þessarar stöðu telja skýrslubeiðendur mikilvægt að upplýsingar um eignarhluti 20 stærstu útgerðarfélaganna og tengdra aðila í óskyldum atvinnurekstri hérlendis séu teknar saman, með greiningu á fjárfestingum þeirra. Með þessum upplýsingum er hægt að varpa ljósi á raunveruleg áhrif aðila sem hafa einkaleyfi til nýtingar fiskveiðiauðlindarinnar á íslenskt atvinnulíf og samfélag. Yrði skýrsla þessi mikilvægt framlag til umræðunnar um dreifða eignaraðild útgerðarfélaga og skráningu þeirra á markað.“
Eiga í ótengdum rekstri
Kjarninn hefur fjallað ítarlega um aukin ítök stærstu sjávarútvegsfyrirtækja landsins í óskyldum geirum á undanförnum árum. Samherji, stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins með beint og óbeint yfir 17 prósent alls úthlutaðs kvóta, hefur til að mynda verið ráðandi í Eimskip og á stóran hlut í Jarðborunum.
[links]Þá er SVN eignafélag, sem er í eigu Síldarvinnslunnar (Samherji á beint og óbeint 49,9 prósent hlut i henni), langstærsti eigandi Sjóvá með 14,52 prósent eignarhlut. Samherji átti lengi vel stóran hlut í Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins, en lánaði Eyþóri Arnalds, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, til að kaupa þann hlut af sér. Eyþór hefur ekki endurgreitt það lán.
Kaupfélag Skagfirðinga, Hvalur hf., Stálskip og Ísfélag Vestmannaeyja eru dæmi um önnur félög í útgerð, eða sem voru í útgerð en hafa selt sig út úr henni, sem eru afar umsvifamikil í íslensku viðskiptalífi.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir