Þingmenn úr fimm flokkum vilja að umsvif útgerða í íslensku atvinnulífi verði kortlögð

Útgerð­ar­fyr­ir­tæki hafa notað þann mikla arð sem verið hefur af nýt­ingu þjóð­ar­auð­lind­ar­innar á und­an­förnum árum til að fjár­festa víða í atvinnu­líf­inu. Nú vilja 20 þing­menn láta gera skýrslu þar sem þau umsvif eru kort­lögð.

Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, er fyrsti flutningsmaður málsins.
Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisnar, er fyrsti flutn­ings­maður máls­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Alls 20 þing­menn, 18 úr stjórn­ar­and­stöðu og tveir þing­menn Vinstri grænna, hafa lagt fram beiðni um að Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, láti gera skýrslu um eign­ar­hald 20 stærstu útgerð­ar­fé­laga í íslensku atvinnu­lífi. Fyrsti flutn­ings­maður máls­ins er Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisnar.

Þing­menn­irnir vilja að ráð­herr­ann láti taka saman fjár­fest­ingar útgerð­ar­fé­lag­anna, dótt­ur­fé­laga þeirra og félaga þeim tengdum í félögum sem ekki hafa útgerð fiski­skipa með höndum á síð­ustu 10 árum og bók­fært virði eign­ar­hluta þeirra í árs­lok 2019. Í beiðn­inni er sér­stak­lega farið fram á að í skýrsl­unni verði raun­veru­legir eig­endur þeirra félaga sem yrði til umfjöll­unar til­greindir og sam­an­tekt á eign­ar­hlut 20 stærstu útgerð­ar­fé­lag­anna í íslensku atvinnu­lífi byggt á fram­an­greindum gögnum.

Þing­menn­irnir sem leggja fram beiðn­ina eru allir þing­menn Við­reisnar, Sam­fylk­ingar og Flokks fólks­ins. Auk þess eru þrír þing­menn Pírata á beiðn­inni ásamt Andrési Inga Jónssyni, þing­manns utan flokka, og þel Lilju Rafneyju Magn­ús­dóttur og Kolbeini Ótt­ars­syni Proppé úr Vinstri grænum. Því eru full­trúar allra flokka á þingi nema Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Mið­flokks á beiðn­inni.

Uppsöfnun eigna og áhrifa á fárra hendur

Í grein­ar­gerð með beiðn­inni segir að eig­in­fjár­staða sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja hafi batnað veru­lega frá hrunsár­unum og að bók­fært eigið fé þeirra hafi staðið í 276 millj­örðum krónum við lok árs 2018, sam­kvæmt gagna­grunni Deloitte um afkomu sjáv­ar­út­vegs­ins 2018. „Vís­bend­ingar eru um að fjár­fest­ingar þeirra út fyrir grein­ina hafi auk­ist í sam­ræmi við það. Það er jákvætt að því leyti að það dreifir áhættu félag­anna sjálfra en getur hæg­lega leitt til veru­legrar upp­söfn­unar eigna og áhrifa á fárra hendur og dregið úr virkri sam­keppni á mörk­uðum. Vegna smæðar sinnar er íslenskt atvinnu­líf sér­stak­lega við­kvæmt fyrir fákeppni.“

[adspot]Ljóst sé að sterk fjár­hags­staða útgerð­ar­fé­laga bygg­ist á einka­leyfi þeirra til nýt­ingar sam­eig­in­legrar auð­lindar þjóð­ar­innar og skipar það þeim í sér­flokk í íslensku atvinnu­lífi, sér­stak­lega stærstu félög­unum. „Vegna þess­arar stöðu telja skýrslu­beið­endur mik­il­vægt að upp­lýs­ingar um eign­ar­hluti 20 stærstu útgerð­ar­fé­lag­anna og tengdra aðila í óskyldum atvinnu­rekstri hér­lendis séu teknar saman, með grein­ingu á fjár­fest­ingum þeirra. Með þessum upp­lýs­ingum er hægt að varpa ljósi á raun­veru­leg áhrif aðila sem hafa einka­leyfi til nýt­ingar fisk­veiði­auð­lind­ar­innar á íslenskt atvinnu­líf og sam­fé­lag. Yrði skýrsla þessi mik­il­vægt fram­lag til umræð­unnar um dreifða eign­ar­að­ild útgerð­ar­fé­laga og skrán­ingu þeirra á markað.“

Stórir leikendur

Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um aukin ítök stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja lands­ins í óskyldum geirum á und­an­förnum árum. Samherji, stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins með beint og óbeint yfir 17 pró­sent alls úthlut­aðs kvóta, hefur til að mynda verið ráð­andi í Eimskip og á stóran hlut í Jarð­bor­unum.

[links]Þá er SVN eigna­fé­lag, sem er í eigu Síld­ar­vinnsl­unnar (Samherji á beint og óbeint 49,9 pró­sent hlut i henni), langstærsti eig­andi Sjóvá með 14,52 pró­sent eign­ar­hlut. Samherji átti lengi vel stóran hlut í Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins, en lán­aði Eyþóri Arnalds, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, til að kaupa þann hlut af sér. Eyþór hefur ekki end­ur­greitt það lán.

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga, Hvalur hf., Stálskip og Ísfélag Vest­manna­eyja eru dæmi um önnur félög í útgerð, eða sem voru í útgerð en hafa selt sig út úr henni, sem eru afar umsvifa­mikil í íslensku við­skipta­lífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár