Tvö ný innanlandssmit – báðir í sóttkví

Tveir greindust með COVID-19 inn­an­lands í gær. Sótt­varna­læknir hefur sagt að næstu dagar muni skera úr um hvort að tak­mörk­unum verði aflétt að ein­hverju leyti.

Tæplega 2.000 sýni voru tekin hér á landi í gær.
Tæplega 2.000 sýni voru tekin hér á landi í gær. Mynd: EPA

Aðeins tveir ein­stak­lingar greindust inn­an­lands í gær með COVID-19 og voru þeir báðir í sótt­kví. Í fyrra­dag greindust ell­efu með sjúk­dóm­inn inn­an­lands sem var nokkur fjöldi frá dög­unum á undan. Far­ald­ur­inn hefur hins vegar verið í stöðugri rénun síð­ustu vikur. Í des­em­ber hafa innan við fimmtán greinst alla daga og flesta daga innan við tíu. Tæplega tvö þús­und sýni voru tekin.

Á landa­mær­unum greindust í gær níu mann smeð virk smit og sex til við­bótar bíða eftir nið­ur­stöðu mótefna­mæl­ingar. Nýgengi smita er nú jafnt bæði inn­an­lands og á landa­mær­unum; 19,6 á hverja 100 þús­und íbúa.

Á upp­lýs­inga­fundi gær­dags­ins sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir að 22 hefðu greinst með afbrigði veirunnar sem fyrst upp­götv­að­ist í Bret­landi. Af þeim hefðu þrír smit­ast inn­an­lands. Allir höfðu þeir verið í sam­skiptum við þá sem greinst hefðu með afbrigðið á landa­mær­unum og voru því í ein­angrun.

Nokkur umræða hefur verið um hvort að bólu­efni sem nú er komin á markað veiti vörn gegn sýk­ingu af völdum þessa nýja afbrigðis. Lyfj­aris­inn Pfizer, sem fram­leiðir bólu­efnið sem fyrst fékk mark­aðs­leyfi í Evrópu, hefur nú greint frá því að rann­sóknir sýni að efnið veiti vörn gegn breska afbrigð­inu.

Tvö bólu­efni hafa þegar fengið mark­aðs­leyfi hér á landi. Um 5.000 manns, fram­línu­starfs­menn og íbúar hjúkr­un­ar­heim­ila, fengu fyrri sprautu af bólu­efni Pfizer-BioNtech í lok des­em­ber. Í vik­unni fékk bólu­efni Moderna mark­aðs­leyfi og sagði sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í gær að mögu­lega kæmi fyrsta send­ing af því þegar í næstu viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár