Fiskurinn úr sjónum skilar tæpum 20 milljörðum krónum meira

Frá byrjun októ­ber í fyrra og út sept­em­ber síð­ast­lið­inn jókst afla­verð­mæti íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja um 15,4 pró­sent miðað við sama tíma­bil árið áður. Virði þess afla sem fluttur var til útlanda til verk­unar jókst um 40 pró­sent.

Verðmæti þess afla sem íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki hafa selt fyrstu sölu hefur auk­ist veru­lega síð­ast­liðið ár, miðað við árið á undan. Frá byrjun októ­ber 2018 og til loka sept­em­ber síð­ast­lið­ins var heild­ar­verð­mæti þess afla sem útgerð­irnar seldu í fyrstu sölu 144,2 millj­arðar króna. Það er 15,4 pró­sent meiri verð­mæti en þær fengu fyrir sölu sína á sama tíma­bili ári áður, þegar hún skil­aði 124,9 millj­örðum króna.

Mestu munar um að sala á botn­fiski hefur gefið mun betur af sér síð­ast­liðið ár en það gerði árið áður. Þar munar 24,5 pró­sentum. Mest er selt af þorski, en slík sala gaf af sér 67,9 millj­arða króna frá októ­ber­byrjun 2018 og út sept­em­ber 2019. Árið áður var verð­mæti sölu á þorski 56,8 millj­arðar króna.

Þetta kemur fram í tölum um afla­verð­mæti sem Hagstofa Íslands birti í síð­ustu viku.

Mikil aukning á verkun erlendis

Þorra þess afla sem veiddur er af íslensku sjáv­ar­út­veg­fyr­ir­tækj­unum er landað til vinnslu á Íslandi, eða 53 pró­sent. Mikil aukn­ing er hins vegar í virði á sjó­frystum afla, sem eykst um 20,6 pró­sent á milli ára. Það er þó ekki jafn mikil aukn­ing og er á virði þess hluta afl­ans sem landað er í gáma til útflutn­ings, sem eykst um 26,9 pró­sent milli ára. 

[adspot]Það vekur líka athygli að mesta hlut­falls­lega aukn­ingin á verk­un­ar­stað á afla íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja er í útlöndum. Virði þess afla sem fluttur er erlendis til verk­unar eykst um 40,1 pró­sent milli ára.

Samkvæmt nýlega birtum tölum Hag­stof­unnar var eigið fé íslensks sjáv­ar­út­vegs 297 millj­arðar króna í lok síð­asta árs. Frá lokum árs 2010 hefur eigið féð tífald­ast sam­kvæmt þessum tölum, en það var þá 28,8 millj­arðar króna. Á síð­asta ári einu saman jókst eigið féð um 28,1 millj­arð króna.

Miðað við þá aukn­ingu á afla­verð­mæti sem hefur orðið síð­ast­liðið ár má ætla að góð­ær­is­tíðin verði síst á und­an­haldi þegar árið 2019 verður gert upp.

Samherji og tengdir aðilar með mikinn kvóta

Til að veiða fisk í íslenskri lög­sögu þarf að kom­ast yfir úthlut­aðan kvóta. Slíkur er að uppi­stöðu í höndum nokk­urra fyr­ir­tækja­hópa sam­kvæmt yfir­liti um úthlutun sem Fiski­stofa birti í sept­em­ber. Lög segja að tengdir aðilar megi ekki halda á meira en 12 pró­sent kvót­ans hverju sinni.

Í sept­em­ber 2019 var Sam­herji, stærsta útgerð­ar­fyr­ir­tæki lands­ins sem nýlega var ásakað um vafa­sama og mögu­lega ólög­lega við­skipta­hætti víða um heim, með 7,1 pró­­sent úthlut­aðs kvót­a. Útgerð­ar­fé­lag Akur­eyr­ar, sem er í 100 pró­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,3 pró­sent kvót­ans og Sæból fjár­fest­inga­fé­lag heldur á 0,64 pró­sent hans. Síld­­ar­vinnslan heldur á 5,3 pró­­sent allra afla­heim­ilda og sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækið Berg­­ur-Hug­inn er síðan með 2,3 pró­­sent kvót­ans en það er að öllu leyti í eigu Síld­­ar­vinnsl­unn­­ar.

Sam­an­lagt er afla­hlut­­deild þess­­ara aðila er því rúm­lega 16,6 pró­­sent.

Aðrir hópar líka mjög stórir

Brim, eina skráða sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið, er eitt og sér komið yfir lög­legt hámark í kvóta í ákveðni teg­und og hefur sex mán­uði til að koma sér undir það. Alls er Brim með að minnsta kosti 10,4 pró­sent heild­ar­kvóta.

Stærsti eig­andi Brim er Útgerð­­ar­­fé­lag Reykja­vík­­­ur, sem á um 46,26 pró­­sent hlut í því félagi eftir að hafa selt stóran hlut til KG Fisk­verk­unar fyrir skemmstu. Það félag var 1. sept­­em­ber síð­­ast­lið­inn með 3,9 pró­­sent af öllum úthlut­uðum kvóta. Auk þess var félagið Ögur­vík með 1,3 pró­­sent afla­hlut­­deild. Stærstu ein­­stöku eig­endur þess eru Guð­­mundur Krist­jáns­­son, aðal­­eig­andi Útgerð­­ar­­fé­lags Reykja­víkur og for­­stjóri Brims, og tvö syst­k­ini hans með sam­an­lagðan 36,66 pró­­sent end­an­­legan eign­­ar­hlut. Eigandi KG Fisk­verk­unar er Hjálmar Þór Krist­jáns­son, bróðir Guð­mundar.

[links]Sam­an­lagður kvóti þess­­ara þriggja félaga, sem eru ekki skil­­greind sem tengd, var því 15,6 pró­­sent í byrjun sept­­em­ber síð­­ast­lið­ins.

Kaup­­fé­lag Skag­­firð­inga á síðan FISK Seafood, sem heldur á 5,3 pró­­sent heild­­ar­kvót­ans auk þess sem FISK á allt hlutafé í Soff­an­­ías Cecils­­son hf., en það fyr­ir­tæki heldur á um 0,3 pró­­sent kvót­ans.. FISK á líka 32,9 pró­­sent í Vinnslu­­stöð­inni í Vest­­manna­eyjum sem er með fimm pró­­sent heild­­ar­afla­hlut­­deild. Sam­tals nemur heild­­ar­kvóti þess­­ara þriggja aðila 10,6 pró­­sent.

Vísir og Þor­björn í Grinda­vík halda síðan sam­an­lagt á 8,4 pró­­sent af heild­­ar­kvót­­an­um, en þau til­kynntu fyrr á þessu ári að þau ætli sér að sam­ein­ast. Sam­an­lagt eru þessar fjórar blokkir á tæp­lega 53 pró­sent kvót­ans hið minnsta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár