Katrín mun ræða málefni Ísraels og Palestínu við Blinken og Lavrov í vikunni

Málefni Ísraels og Palest­ínu voru rædd á þingi í dag. Þingmenn Pírata og Við­reisnar köll­uðu eftir því að stjórn­völd tækju af skarið og for­dæmdu aðgerðir Ísraela í stað þess að bíða eftir öðrum þjóðum. For­sæt­is­ráð­herra mun tala fyrir frið­sam­legri lausn.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, ætlar að ræða mál­efni Ísraels og Palest­ínu á fundum sínum við Antony Blinken, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, ann­ars vegar og Sergei Lavrov, utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands, hins vegar. Þetta kom fram í ræðum Katrínar í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag en hún var spurð um afstöðu og við­brögð íslenskra stjórn­valda við aðgerðum Ísra­els­hers.

„Eins og hátt­virtur þing­maður kom inn á þá hafa ríf­lega 200 manns látið lífið Palest­ínu megin, tölu­vert færri Ísraels megin, eða u.þ.b. tíu, sam­kvæmt fréttum þaðan. Fórn­ar­lömbin í þessum árásum eru almennir borg­arar, konur og börn. Það liggur algjör­lega klárt fyrir af hálfu íslenskra stjórn­valda að þessar aðgerðir eru ólög­mætar, þær brjóta í bága við alþjóða­lög, alþjóð­legan mann­úð­ar­rétt og við höfum lýst þeirri afstöðu okkar,“ sagði Katrín í svari við fyr­ir­spurn Halldóru Mogensen þing­manns Pírata. Halldóra spurði for­sæt­is­ráð­herra hvað rík­is­stjórnin ætl­aði að gera í mál­inu og til hvaða aðgerða hún ætl­aði að grípa.

Í ræðu Katrínar kom fram að Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra, hefði átt síma­fund með utan­rík­is­ráð­herra Noregs til að ræða málið en Noregur á sæti í örygg­is­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna. „Við höfum líka minnt á það að Ísland hefur við­ur­kennt sjálf­stæði Palest­ínu og lausn á þessum átökum verður að byggj­ast á tveggja ríkja lausn. Fyrir liggur að það er afstaða íslenskra stjórn­valda,“ bætti Katrín við.

Katrín sagði að í þessu máli þyrfti sam­stöðu þjóða til að finna lausn. Hún myndi nýta tæki­færið á fundum sínum með utan­rík­is­ráð­herrum Banda­ríkj­anna á morgun og utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands á fimmtu­dag til að taka upp þessi mál og hvetja þessi ríki „til að beita sér á alþjóða­vett­vangi til þess að ná fram frið­sam­legri lausn á þessum málum.“

Afstöðuleysi „fullkominn heigulsháttur“

„Ég get ekki annað séð en að svar hæstv. utan­rík­is­ráð­herra und­an­farna daga, það sem við höfum séð í fjöl­miðlum, virð­ist vera að gera ekki neitt nema ein­hver annar geri það fyrst. Það er það sem við erum að sjá. Það er hægt að hafa alls konar orð uppi en þetta snýst um aðgerðir og við getum alveg sýnt gott for­dæmi þó að aðrar þjóðir séu ekki á undan okkur,“ sagði Halldóra í kjöl­farið.

Að hennar mati gætu íslensk stjórn­völd leitt leið­ina og spurði í kjöl­farið hvort afstöðu­leysi væri ekki „full­kom­inn heig­uls­háttur.“ Þá vakti hún máls á yfir­lýs­ingu þing­flokks Vinstri grænna frá því um helg­ina þar sem land­töku­stefna Ísraels er for­dæmd. „Mál­funda­æf­ingar þing­flokks for­sæt­is­ráð­herra eru inn­an­tómt hjal miðað við þær raun­veru­legu aðgerðir sem for­ystu­flokkur í rík­is­stjórn Íslands gæti sett í gang ef hann raun­veru­lega vildi.“

Megum ekki vera „stikkfrí frá eigin hugsjónum“

Þor­gerður K. Gunn­ars­dóttir, þing­maður Við­reisnar, tók í sama streng þegar hún beindi fyr­ir­spurn sinni til Katrínar um sama mál. Hún hvatti stjórn­völd til að taka af skarið og for­dæma aðgerðir Ísraela á Gaza í stað­inn fyrir að bíða eftir öðrum ríkjum. „Líf og öryggi millj­óna manna veltur á því að vopna­hléi verði komið á milli Ísraels og Palest­ínu. Við getum þrýst á að svo verði og við getum beitt okkur víða í alþjóða­sam­fé­lag­inu. En við megum heldur ekki að hafa það þannig að við skýlum okkur á bak við það til að vera svo­lítið stikk­frí frá eigin hug­sjónum og hug­mynda­fræði.“

Þá gerði hún yfir­lýs­ingu Vinstri Grænna einnig að umtals­efni en Þor­gerður sagð­ist vona að hún hafi ekki verið „ein­göngu ein­hver synda­af­lausn.“ Þor­gerður spurði Katrínu meðal ann­ars um það með hvaða hætti hún myndi taka málið upp við Blinken, hvort hún ætl­aði að tala fyrir ályktun þing­flokks Vinstri grænna eða tala fyrir afstöðu rík­is­stjórn­ar­innar.

Mikilvægt að koma á vopnahléi

Katrín sagði í svari sínu hafa nýtt öll tæki­færi á alþjóða­vett­vangi til að tala fyrir frið­sam­legum lausnum. „Það sem ég mun taka upp við þá ágætu menn sem hingað koma er að mæl­ast til þess að þessi ríki, sem skipta svo miklu máli í alþjóða­sam­fé­lag­inu, beiti sér í fyrsta lagi fyrir vopna­hléi og í öðru lagi fyrir ein­hvers konar lang­tíma frið­sam­legri lausn,“ sagði Katrín.

Hún sagði mik­il­vægt að koma á vopna­hléi sem fyrst, „því að núna er fólk að deyja, óbreyttir borg­arar, karlar, konur og börn, en þar til vopna­hléi hefur verið náð getur eng­inn sest niður til að ræða á hvaða grunni eigi að byggja frið­sam­legar lausnir. Þar er afstaða íslenskra stjórn­valda, ekki bara þing­flokks Vinstri grænna, alger­lega skýr.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár