Bensínlítrinn hækkaði um næstum tíu krónur milli mánaða

Hlutur olíu­fé­lag­anna í hverjum seldum bens­ín­lítra eykst veru­lega milli mán­aða og þau taka til sín þorra þeirrar hækk­unar sem varð frá miðjum ágúst­mán­uði. Ríkið hefur boðað að það ætli að afla 63,3 millj­arða króna með álagn­ingu á öku­tæki og elds­neyti á næsta ári.

Skörp hækkun
Skörp hækkun Lítri af bens­íni hefur ekki kostað fleiri krónur en hann gerir nú síðan í febr­úar á þessu ári. Mynd: Bára Huld Beck

Við­mið­un­ar­verð á bens­ín­lítra var 313,4 krónur um miðjan sept­em­ber­mánuð. Það er 9,6 krónum meira en lítr­inn kost­aði í ágúst. Um er að ræða hækkun upp á 3,2 pró­sent. Þetta má lesa út úr nýrri bens­ín­vakt Heim­ild­ar­innar. Verðið hafði lækkað nokkuð stöðugt frá því í vor en tekur skarpa hækkun nú. Við­mið­un­ar­verðið miðar við næst­lægstu verð­tölu hverju sinni til að forð­ast áhrif tíma­bund­innar verð­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­ar­verðið er þó með lægsta verði og sýnir þar með lægri hlut olíu­fé­lags­ins en reikna má með að raunin sé með­al­talið af öllu seldu bens­íni á land­inu.

Þegar síð­asta bens­ín­vakt var birt kom fram að hlutur olíu­fé­laga hefði farið undir 50 krónur í hverjum seldum lítra frá miðjum júlí­mán­uði og mán­uð­inn, sem var í fyrsta sinn á árinu 2023 sem það gerð­ist. Þessi þróun hafði átt sér stað þrátt fyrir að heims­mark­aðs­verð á olíu hefði verið að hækka. Þar sem inn­kaupa­verð íslensku olíu­fé­lag­anna – sem öll kaupa sína olíu af Equinor í Noregi – ákvarð­ast einkum af heims­mark­aðs­verði og gengi krónu gagn­vart Banda­ríkja­dal, þá kom fram í Heim­ild­inni að við næstu inn­kaup gæti smá­sölu­verðið hækkað.

Það reynd­ist rétt grein­ing, líkt og rakið er að ofan, þótt hinn aukni kostn­aður fari ekki í að greiða fyrir inn­kaup á bens­íni. Líklegt inn­kaupa­verð stendur nefni­lega í stað milli mán­aða.

Samkvæmt útreikn­ingum bens­ín­vakt­ar­innar fer þorri hækk­un­ar­innar að þessu sinni til olíu­fé­lag­anna, eða 7,61 króna. Það þýðir að tæp­lega 80 pró­sent hennar lendir hjá þeim. Hlutur olíu­fé­laga sam­anstendur af álagn­ingu og kostn­aði á borð við flutn­inga og trygg­ingar. 

Ríkið eykur gjaldtöku af ökutækjum

Hlutur rík­­­­­­­is­ins í hverjum seldum bens­ín­lítra sam­anstendur af virð­is­auka­skatti, almennu og sér­­­­­­­­­­­­­stöku bens­ín­gjaldi og kolefn­is­gjaldi. Alls er virð­is­auka­hlut­fallið sem leggst á bens­ín­lítr­ann 19,35 pró­sent, almenna bens­ín­gjaldið hækk­aði úr 30,2 krónum í 32,5 krónur um síð­ustu ára­mót og sér­staka bens­ín­gjaldið fór úr 48,7 krónum í 52,45 krónur. Þá hækk­aði kolefn­is­gjaldið úr 10,5 krónum í 11,3 krónur. Alls tekur íslenska ríkið nú 156,96 krónur af hverjum seldum lítra af bens­íni, eða sléttan helm­ing. 

Við kynn­ingu á fjár­laga­frum­varpi næsta árs kom fram að rík­is­stjórnin ætli ekki að hækka krónu­tölu­gjöld í sam­ræmi við verð­bólgu heldur ein­ungis um 3,5 pró­sent. Við það munu gjöldin lækka að raun­virði. 

Á móti á hins vegar að stíga fyrsta skrefið til þess að láta eig­endur hrein­orku­bíla greiða fyrir notkun á vega­kerf­inu með inn­leið­ingu nýs kerfis þar sem greitt verður fyrir ekna kíló­metra. Alls ætlar ríkið að afla sér 63,3 millj­arða króna í tekjur með álagn­ingu á öku­tæki og elds­neyti og þar af eiga 7,5 millj­arðar króna að falla til vegna þessa fyrsta skrefs inn í nýtt kerfi. Frumvarp sem felur í sér þessa breyt­ingu verður lagt fram í haust og stefnt er að því að hún taki gildi um næstu ára­mót.

Í mars á næsta ári á svo að leggja fram frum­varp um enn stærra skref, sem felur í sér að nýtt fyr­ir­komu­lag gjald­töku í formi kíló­metra­gjalds vegna notk­unar bif­reiða sem ganga fyrir jarð­efna­elds­neyti verður tekið upp. Samhliða er gert ráð fyrir því að end­ur­skoðun fari fram á öðrum lögum sem gilda um skatt­lagn­ingu öku­tækja og elds­neytis. Gert er ráð fyrir að nýtt kerfi taki gildi þann 1. jan­úar 2025. 

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár