Mynd: EPA

Hryllingurinn á hjúkrunarheimilunum

Það er und­ir­mannað. Varn­ar­bún­aður er af skornum skammti eða ein­fald­lega ekki fyrir hendi. Heim­sókn­ar­banni hefur verið komið á til verndar íbú­unum en það þýðir einnig að umheim­ur­inn fær lítið að vita hvað gengur á inn­an­dyra.

Þegar sjúkra­lið­inn Deborah mætti til vinnu á hjúkr­un­ar­heim­ilið Parker Jewish Institute í New York í lok mars var hún kvíðin. Hún vissi að til­fellum COVID-19 í borg­inni og rík­inu öllu hefði fjölgað hratt og að rík­is­stjór­inn Andrew Cuomo hafði varað við því að hið versta væri enn eftir. Hann hafði einnig varað við því að hlífð­ar­bún­aður væri af skornum skammti og að hætta væri á að heil­brigð­is­starfs­fólk eins og hún sjálf myndi smit­ast af veirunni.

En Deborah gat þó ekki ímyndað sér hversu slæmt ástandið á hjúkr­un­ar­heim­il­inu var orðið í raun og veru. Sam­starfs­fólk hennar hafði klætt sig í rusla­poka þar sem engir hlífð­ar­gallar voru til og höfðu ekki nauð­syn­legar grímur fyrir vit­unum. Á heim­il­inu dvelja meðal ann­ars gyð­ingar sem flúðu hel­för­ina í Evrópu. Málið hefur því vakið mikla athygli í sam­fé­lagi gyð­inga um allan heim.

Smit höfðu komið upp meðal íbú­anna, m.a. vegna þess að sjúk­lingar af sjúkra­húsum höfðu verið fluttir þangað, og margir starfs­menn smit­uð­ust í kjöl­farið. Einhver varn­ar­bún­aður var útveg­aður, m.a. hanskar og grímur, en ekk­ert í lík­ingu við það sem þurfti til. Smituðum hélt áfram að fjölga næstu vik­urnar. Og dauðs­föll­unum sömu­leiðis. Í fyrra­dag höfðu 53 lát­ist vegna COVID-19.

Hinn átak­an­legi veru­leiki sem íbúar og starfs­menn á Parker-hjúkr­un­ar­heim­il­inu búa við er ekk­ert eins­dæmi. Þetta ástand ríkir einnig á öðrum heim­ilum í Banda­ríkj­unum, Bret­landi, Kanada, á Spáni, Ítalíu og víðar.

Bresk stjórn­völd hafa nú ákveðið að birta dag­lega tölur um fjölda lát­inna á öldr­un­ar­heim­ilum í land­inu eftir að ljóst var að hún var komin yfir 4.300 og neyð­ar­á­stand skap­ast á slíkum heim­ilum í Wales og á Englandi. Ýmislegt bendir til að far­ald­ur­inn hafi fellt mun fleiri í Bret­landi en opin­berar tölur sýna, sér­stak­lega í hópi íbúa öldr­un­ar­heim­ila.

„Þetta var hrylli­legt,“ segir hjúkr­un­ar­fræð­ingur, sem starfar á stærsta hjúkr­un­ar­heim­ili New Jersey, eftir að lög­reglan fann sautján lík í geymslu á heim­il­inu stuttu eftir páska. Heimilið er einka­rekið og þar býr aldrað fólk, sumt heila­bilað eða með geð­sjúk­dóma. Hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn lýsir því að hafa þurft að flytja sjúka milli her­bergja og deilda án varn­ar­bún­aðar. Ekki var gætt að almennu hrein­læti heldur.

Eftir að lög­reglan kom með birgðir af hlífð­ar­fatn­aði var starfs­fólki til­kynnt að ekki væri til nóg fyrir alla. Og and­lits­grím­urnar varð það að þvo og nota aftur og aftur. Hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn smit­að­ist svo sjálfur af COVID-19 eins og margir sam­starfs­menn hans.

Starfsmaður á hjúkrunarheimili á Spáni að störfum er faraldurinn stóð sem hæst þar í landi.
Starfs­maður á hjúkr­un­ar­heim­ili á Spáni að störfum er far­ald­ur­inn stóð sem hæst þar í landi.

Á hjúkr­un­ar­heim­ili í Brooklyn í New York var ástandið orðið svart þegar í byrjun apríl. For­stjóri heim­il­is­ins sendi út neyð­ar­kall: „Það eru meira en fimm­tíu sjúk­lingar hér á víð og dreif um bygg­ing­una og við höfum nær engan varn­ar­búnað,“ skrif­aði hann til borg­ar­yf­ir­valda. „Við getum engan veg­inn komið í veg fyrir útbreiðslu við þessar aðstæður.“

Það er óljóst hversu margir hafa dáið á hjúkr­un­ar­heim­ilum í Banda­ríkj­unum vegna COVID-19. Slíkum tölum er ekki haldið mið­lægt saman enn sem komið er og borg­irnar og ríkin gefa þær heldur ekki alltaf út. Yfir tíu þús­und íbúar og starfs­menn á öldr­un­ar­heim­ilum hafa lát­ist í þeim 23 ríkjum sem gefa slíkar upp­lýs­ingar. Í dag hafa að minnsta kosti 3.500 íbúar öldr­un­ar­heim­ila í New York-ríki einu saman dáið vegna sjúk­dóms­ins.

Hryll­ings­sögur hafa einnig komið frá hjúkr­un­ar­heim­ilum í Kanada. Á einu slíku í Montreal lét­ust yfir þrjá­tíu á nokkrum vikum. Flest starfs­fólkið hætti að mæta í vinn­una og gamla fólkið fékk hvorki vott né þurrt og varð að gera þarfir sínar í rúmið. Nokkrir höfðu dottið fram úr rúmum sínum og ein­hverjir dáið án þess að líkin væru fjar­lægð. „Það sem gerð­ist á Residence Herron er aug­ljóst dæmi um allt sem er að þegar kemur að umönnun aldr­aðra,“ segir Moira Davis, dóttir manns sem lést á heim­il­inu.

Íbúi á hjúkrunarheimili í Tékklandi fylgist með starfsmanni út um gluggann.
Íbúi á hjúkr­un­ar­heim­ili í Tékk­landi fylgist með starfs­manni út um glugg­ann.

Hjúkr­un­ar­heim­ili eru ekki sjúkra­hús. Starfs­fólkið þar er ekki þjálfað í að bregð­ast við óvæntum atburðum á borð við far­aldur. Þar eru ekki gjör­gæslu­deildir og önd­un­ar­vélar. Þegar far­sótt geisar þurfa heim­ilin utan­að­kom­andi aðstoð og aðföng – og leið­bein­ingar um nauð­syn­legt verk­lag.

„Það er búið að banna heim­sóknir sem verndar [íbú­ana] en kemur einnig í veg fyrir að umheim­ur­inn kom­ist að því hvað er í gangi,“ skrif­aði Andrew Stein, fyrr­ver­andi borg­ar­ráðs­full­trúi í New York, í Wall Street Journal í gær um ástandið á öldr­un­ar­heim­ilum í Banda­ríkj­unum. Stein barð­ist ötul­lega fyrir laga­breyt­ingu á átt­unda ára­tugnum sem átti að tryggja betri umönnun og skylda þá sem ráku heim­ilin til að greiða í sam­eig­in­lega sjóði til að mæta áföllum af ýmsu tagi.

Hann segir að stjórn­völdum hafi yfir­sést sá stór­kost­legi vandi sem fyr­ir­séð var að gæti komið upp á hjúkr­un­ar­heim­ilum. Vandi þeirra hafi verið mik­ill fyrir. Þar sé und­ir­mannað og sótt­vörnum almennt ekki sinnt eins og þyrfti. Veik­leik­arnir komi svo skýrt í ljós í far­aldr­inum sem nú geisar. „Það er tíma­bært að fram­kvæma rann­sóknir og setja á strang­ari lög­gjöf til að tryggja aðstæður aldr­aðra þeirra síð­ustu æviár.“

Fljót­lega eftir að far­aldur COVID-19 braust út í Kína var ljóst að hann lagð­ist þyngst á eldra fólk og þá sem hefðu und­ir­liggj­andi sjúk­dóma. „Og það var ljóst öllum þeim sem þekkja til banda­rískra hjúkr­un­ar­heim­ila að þessar stofn­anir gætu ekki verndað skjól­stæð­inga sína,“ skrifar Richard Mollot, for­stöðu­maður frjálsu félaga­sam­tak­anna Long Term Care Community Coalition, í New York Times.

Samtök hans vinna að því með marg­vís­legri fræðslu og vit­und­ar­vakn­ingu að bæta lífs­gæði og umönnun aldr­aðra. Stein segir að banda­rísku hjúkr­un­ar­heim­ilin bjóði hætt­unni heim, ekki aðeins sé mikil hætta á því að íbú­arnir veik­ist af COVID-19 heldur einnig að þeir verði van­ræktir vegna ástands­ins. Sýk­ing­ar­hætta sé mikil á mörgum heim­il­anna, þar deyi um 380 þús­und íbúar árlega vegna sýk­inga. Rann­sóknir hafi sýnt að hrein­læti sé þar oft ábóta­vant.

Sífellt fleiri heim­ili séu einka­rekin og þó að tals­menn þeirra haldi öðru fram skýrist fjölg­unin af því að rekst­ur­inn, sem byggir m.a. á fram­lögum úr sam­eig­in­legum sjóðum, er arð­bær. Stein bendir að lokum á að þótt heim­ilin fái fé frá hinu opin­bera beri þeim ekki skylda til að nýta það til inn­kaupa á hlífð­ar­fatn­aði fyrir starfs­fólkið eða til að ráða fleira fólk. „Faraldur er nátt­úru­afl sem ekki er hægt að koma í veg fyrir. En eftir van­rækslu á hjúkr­un­ar­heim­ilum til margra ára eru millj­ónir íbúar þeirra óvarðir gegn far­aldr­inum. Hægt hefði verið að kom­ast hjá mörgum dauðs­föllum. Mörgum manns­lífum hefði verið hægt að bjarga ef við hefðum kraf­ist meira af þessum fyr­ir­tækjum og þeim sem setja þeim reglur.“

Það segir sýna sögu um ástandið á öldr­un­ar­heim­ilum í Banda­ríkj­unum að rík­is­stjóri New York varð að gefa út sér­staka til­skipun um að stjórn­endur slíkra stofn­ana ættu skil­yrð­is­laust að láta ætt­ingja vita ef aldr­aðir ást­vinir þeirra grein­ast með COVID-19. Þá skal líka láta ætt­ingja vita ef ást­vin­ur­inn deyr. Aðstoð­ar­maður hans sagði til­skip­un­ina nauð­syn­lega því ekki hefði verið farið að til­mælum um þessa upp­lýs­inga­gjöf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár