Sjö öfgamenn reknir úr Svíþjóðardemókrötum

Sjö með­limum í Sví­þjóð­ar­demókrötum, þriðja stærsta flokknum á sænska þing­inu, hefur verið vikið úr flokk­inum fyrir hægriöfgar. Meðal þeirra sem voru reknir eru Gustav Kassel­strand og William Hahne, for­kólfar í ung­liða­hreyf­ingu flokks­ins. Félaga­nefnd flokks­ins hefur haft 24 manns til skoð­unar und­an­far­inn mánuð.

Mattias Karlsson, þings­flokks­for­maður Svíð­þjóð­ar­demókrata, hefur látið hafa eftir sér að Kassel­strand og Hahne hafi átt í sam­starfi með öfga­flokkum utan Sví­þjóðar en tví­menn­ing­arnir neita öllum ásök­unum.

„Félaga­nefndin er aðeins að fylgja skip­unum Karls­sonar. Þetta er hópur strengja­brúða,“ sagði Kassel­strand við TT-frétta­veit­una í síð­degis í dag eftir að nið­ur­staða nefnd­ar­innar var ljós. Í morgun höfðu félag­arnir sagst ætla að segja af sér for­mennsku og vara­for­mennsku í ung­liða­hreyf­ing­unni.

Samtals var sjö manns vikið úr flokknum í dag en nöfn þeirra Kassel­strands og Hahne aðeins gefin upp. Á meðan rann­sókn flokks­ins stóð höfðu „sex eða sjö“ með­limir skilað inn flokks­skír­teini sínu, að sögn Richard Jomshof, flokks­rit­ara. „Allir með­lim­irnir höfðu sann­ar­lega og aug­ljós tengsl við öfga­öfl,“ sagði Jomshof.

Þeir Kassel­strand og Hahne hafa þegar lýst yfir stuðn­ingi við for­manns­efni í ung­liða­hreyf­ing­unni. Það er Jessica Ohlson sem er lög­fræð­ingur og póli­tískur aðstoð­ar­maður fyrir Sví­þjóð­ar­demókrata á sænska þing­inu.

Glada ändå: @gustavkassel, @William_Hahne och @jesohlson. pic.twitter.com/txRfCcoUw6

— Niklas Svensson (@niklassvensson) April 27, 2015

Sví­þjóð­ar­demókratar hlutu 12,9 pró­sent atkvæða í þing­kosn­ingum síð­asta haust og er nú þriðji stærsti flokk­ur­inn á sænska þing­inu með 49 þing­menn af 349. Flokkinn má stað­setja yst á hægri væng sænskra stjórn­mála. Hann aðhyllist sænska þjóð­ern­is­hyggju, félags­lega íhalds­semi og hefur talað gegn inn­flytj­endum.

Mesti vöxtur fylgis flokks­ins hefur verið und­an­farin tíu ár undir for­ystu for­manns­ins Jimmie Åkesson, þó hreyf­ingin hafi verið stofnuð árið 1988. Flokk­ur­inn var fyrst kjör­inn á þing árið 2010 og bætti við þing­mönnum í kosn­ing­unum í sept­em­ber í fyrra.

Þá sitja tveir sví­þjóð­ar­demókratar á Evr­ópu­þing­inu eftir að flokk­ur­inn fékk 9,7 pró­sent atkvæða í Evr­ópu­þings­kosn­ing­unum 2014. Á Evr­ópu­þing­inu hafa Sví­þjóð­ar­demókratar gengið í Evrópu frelsis og lýð­ræðis, fylk­ingu evr­ópu­skept­ískra flokka.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Flokks­for­mað­ur­inn Jimmie Åkesson er þing­maður Svía á Evr­ópu­þing­inu. Mynd: EPA[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár