Hundruð milljarða í endurbætur á Thule herstöðinni

Fjárhæð sem jafn­gildir 570 millj­örðum íslenskra króna verður á næstu árum varið í end­ur­bætur á her­stöð­inni Thule (Pituffik) her­stöð­inni á Græn­landi. Banda­ríski her­inn, sem starf­rækir her­stöð­ina, borgar brús­ann.

Thule herstöðin á Grænlandi.
Thule her­stöðin á Græn­landi. Mynd: Wikipedia

Árið 1941, ári eftir her­nám Þjóð­verja á Danmörku, und­ir­rit­aði Henrik Kauff­mann sendi­full­trúi Dana Í Washington (hafði verið sendi­herra fyrir her­námið) sam­komu­lag við Banda­ríkja­menn, kallað Kauf­manntrakta­ten. Í sam­komu­lag­inu fólust yfir­ráð Banda­ríkja­manna í varn­ar­málum Græn­lands. Danska rík­is­stjórnin, sem var undir hæl Þjóð­verja, and­mælti sam­komu­lag­inu og Kaufmann var rek­inn úr starfi. Danski aðal­ræð­is­mað­ur­inn í Banda­ríkj­unum lýsti sig sam­mála Kaufmann og fékk sömu­leiðis reisupass­ann. Kauff­mann átti þó aft­ur­kvæmt í þjón­ust­una og varð sendi­herra í Banda­ríkj­unum eftir að stríð­inu lauk. Hann sat um tíma í stríðs­lok sem utan­þings­ráð­herra í dönsku rík­is­stjórn­inni (Befri­el­ses­reger­ingen) og var einn full­trúa Dana við stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Samkvæmt áður­nefndu sam­komu­lagi fengu Banda­ríkja­menn rétt til að koma upp her­stöðvum á Græn­landi, bæði á austur og vest­ur­strönd­inni, sam­tals 14 stöðvum. Veð­ur­at­hug­anir voru stór þáttur í starf­sem­inni en sömu­leiðis voru alls­staðar öfl­ugar loft­skeyta- og end­ur­varps­stöðvar. Flug­vellir, mis­stórir, voru enn­fremur við allar stöðv­arnar.

Nýr samningur og nauðungarflutningur

Árið 1951 und­ir­rit­uðu Danir og Banda­ríkja­menn nýjan samn­ing sem var að flestu leyti á sömu nótum og sam­komu­lagið frá 1941. Skömmu eftir und­ir­ritun sam­komu­lags­ins hófu Banda­ríkja­menn fram­kvæmdir á her­stöð­inni sem gekk undir heit­inu Bluie West-6, en fékk síðar nafnið Thule. Áður­nefndar fram­kvæmdir við stækkun her­stöðv­ar­innar, sem er á Norður- Græn­landi, nefnd­ust Operation Blue Jay og áttu að vera leyni­legar en fréttir af þeim spurð­ust strax út. Þessum fram­kvæmdum lauk árið 1953. Í tengslum við stækk­un­ina voru allir íbúar þorps­ins Uummannaq, sem var í næsta nágrenni við her­stöð­ina, 116 tals­ins, fluttir nauð­ugir til þorps­ins Qaanaaq 150 kíló­metrum fyrir norðan Thule. Þar höfðu Danir byggt ný íbúð­ar­hús og veittu ýmis­konar aðra aðstoð. Til­kynn­ingu um flutn­ing­inn fékk fólkið með þriggja vikna fyr­ir­vara.

[adspot]Árið 1960 skrif­aði íbúa­ráð Qaanaaq Græn­lands­ráðu­neyt­inu og fór fram á bætur vegna Uummannaq, svæð­is­ins sem fólkið hafði verið neytt til að yfir­gefa. Ráðu­neytið svar­aði ekki erind­inu en græn­lands­deild utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins (for­vera Græn­lands­ráðu­neyt­is­ins) hafði áður lýst því yfir að fólkið hefði flutt af fúsum og frjálsum vilja. Og þar við sat í heil 25 ár.

Málið tekið upp aftur

Árið 1985 sendu tveir danskir blaða­menn, Jens Brøsted og Mads Fægte­borg frá sér bók­ina „Thule – fan­ger­folk og Mili­tær­an­læg“.

Í bók­inni sem byggði á mik­illi heim­ilda­vinnu kom fram að íbú­arnir í Uummannaq höfðu ekki flutt sjálf­vilj­ugir. Tveimur árum síðar settu íbú­arnir kröfð­ust íbú­arnir sem höfðu flutt þess að ríkið greiddi þeim bætur. Í kjöl­farið var sett á lagg­irnar rann­sókn­ar­nefnd. Hún starf­aði í sjö ár, án þess að kom­ast að nið­ur­stöðu. Árið 1996 stefndi Thule fólkið (eins og það er iðu­lega kallað) danska for­sæt­is­ráðu­neyt­inu þar sem farið var fram á bætur og leyfi til að flytja til baka. Eystri-Lands­réttur féllst ekki á að fólkið gæti snúið til baka en úrskurð­aði bætur sem voru langt frá þeirri upp­hæð sem kraf­ist hafði verið. Thule fólkið leit­aði þá til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu. Dóm­stóll­inn vís­aði mál­inu frá á þeirri for­sendu að Mann­rétt­inda­sátt­máli Evrópu hefði ekki verið í gildi í Danmörku þegar flutn­ingur fólks­ins frá Thule svæð­inu fór fram.

Kaldastríðstitringur og þíða

Á fyrstu árum sjö­unda ára­tug­ar­ins var mikið um að vera í Thule her­stöð­inni. 1961 voru settar upp í nágrenni stöðv­ar­innar rat­sjár sem tengd­ust loft­varna­kerfi Banda­ríkja­hers. Loft­varna­kerfið, sem tengd­ist meðal ann­ars Íslandi, átti að geta varað við flug­skeytum sem skotið væri frá Sov­ét­ríkj­unum eða kaf­bátum á Norður- Atl­ants­hafi. Um tíu þús­und her­menn voru á þessum árum í Thule her­stöð­inni. Smám saman minnk­uðu umsvif Banda­ríkja­manna í takt við að dró úr kalda­stríðstitr­ingnum.

Banda­rísku her­stöðv­unum á Græn­landi var lokað einni af annarri og her­menn­irnir hurfu á braut, en geysi­legt magn af alls kyns rusli, sem eng­inn taldi sig bera ábyrgð á, varð eftir. Und­an­farið hafa um 300 banda­rískir her­menn verið í Thule, einu her­stöð­inni sem ekki hafði verið lokað. Viðhald tækja og bún­aðar í lág­marki og mann­virkin hafa drabb­ast niður.

Kínverjar vildu kaupa herstöð en Trump vildi kaupa allt landið

Ein þeirra her­stöðva sem Banda­ríkja­menn höfðu komið upp í byrjun fimmta ára­tugar síð­ustu aldar var í Kangil­innguit, Grønn­e­dal. Danir tóku síðar við her­stöð­inni, sem var var lokað árið 2014. Danski flot­inn aug­lýsti stöð­ina til sölu og hafi danski flot­inn haft áhyggjur yfir að kaup­endur yrðu ekki á hverju strái, reynd­ust þær ástæðu­lausar. Nokkur fyr­ir­tæki sýndu stöð­inni áhuga og þar fór fremst kín­verskt fyr­ir­tæki. Þegar fréttir af miklum áhuga Kínverja bár­ust til eyrna Lars Løkke Rasmus­sen þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra brást hann strax við og ekk­ert varð af söl­unni. Ákveðið var að hefja að nýju fasta við­veru danska hers­ins í Kangil­innguit og nota aðstöð­una til geymslu á elds­neyti og ýmsu fleiru, eins og það var orðað.

En það voru fleiri en danski for­sæt­is­ráð­herr­ann sem hrukku við þegar fréttir af síauknum áhuga Kínverja á Græn­landi bár­ust. Kín­verskir bankar höfðu boð­ist til að lána Græn­lend­ingum fé til bygg­ingar þriggja flug­valla og til­heyr­andi mann­virkja. Ráðamenn í banda­ríska varn­ar­mála­ráðu­neyt­inu höfðu, þegar fréttir af flug­valla­á­formunum bár­ust, sam­band við danska varn­ar­mála­ráð­herr­ann í því skyni að koma í veg fyrir að lánið yrði þegið. Í ágúst 2019 lýsti Donald Trump, þáver­andi for­seti, því yfir að hann vildi að Banda­ríkin keyptu Grænland eins og það legði sig. Slíkt væri ein­fald­lega eins og hver önnur fast­eigna­við­skipti. Þegar for­set­inn lét þessi orð falla var heim­sókn hans til Dan­merkur í und­ir­bún­ingi. Hug­myndir for­set­ans mættu litlum skiln­ingi í Danmörku og Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra sagði að Grænland væri ekki til sölu. Trump hætti svo við Dan­merk­ur­ferð­ina. Þótt flestum hafi þótt hug­mynd for­set­ans þáver­andi um fast­eigna­við­skiptin frá­leit sýndi hún að Banda­ríkja­mönnum væri æ betur ljóst mik­il­vægi Græn­lands. Ekki hvað ekki síst í hern­að­ar­legu til­liti sem jafn­framt skýrði stór­auk­inn áhuga Kínverja og Rússa á að kom­ast til áhrifa í land­inu. Hér má geta þess að Banda­ríkin opn­uðu ræð­is­skrif­stofu í Nuuk árið 2020.

Milljarðasamningur tekur gildi í ársbyrjun 2023

Eins og fyrr var getið hafa Banda­ríkja­menn sýnt Græn­landi auk­inn áhuga á síð­ustu árum. Í skýrslu banda­ríska varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins frá árinu 2018 er mikil áhersla lögð á nauð­syn þess að Banda­ríkin semji við Dani um stór­aukna upp­bygg­ingu her­stöðv­ar­innar í Thule. Í því sam­bandi voru háar fjár­hæðir nefndar. Í byrjun þessa árs var til­kynnt að á næstu 12 árum væri fyr­ir­hugað að nota jafn­gildi 570 millj­arða íslenskra króna til upp­bygg­ingar og end­ur­bóta á her­stöð­inni og flug­vell­inum í Thule.

[adspot]Fyrir nokkrum dögum sendi banda­ríska sendi­ráðið í Kaup­manna­höfn frá sér frétta­til­kynn­ingu. Þar kom fram að fyr­ir­tækið Inuksuk hefði upp­bygg­ingu og við­hald í Thule her­stöð­inni með höndum næstu 12 árin sam­kvæmt nýund­ir­skrif­uðum samn­ingi. Bygg­inga­fyr­ir­tækið Permagreen Grønland á 51 pró­sent hlut í Inuksuk en fyr­ir­tækið Vectrus Services Greenland 49 pró­sent. Fjögur fyr­ir­tæki buðu í verkið.

Hlýnun jarðar hefur komið illa við flugvöll og byggingar

Þótt ein­hverjum kunni að koma það á óvart hefur hlýnun jarðar haft mikil áhrif í Thule. Flug­völl­ur­inn og allar bygg­ingar á svæð­inu voru á sínum tíma, á sjötta ára­tug síð­ustu aldar, ein­fald­lega lagðar á gadd­freðna jörð­ina, ef svo mætti að orði kom­ast. Á síð­ustu árum hefur jarð­veg­ur­inn undir þessum mann­virkjum frosið og þiðnað á víxl. Það hefur orðið til þess að húsin á svæð­inu hafa skemmst og stórar sprungur mynd­ast á flug­braut­unum, sem á köflum hafa líka sigið.

Peningarnir merki um áherslur Bandaríkjamanna

Upp­bygg­ingin í Thule er skýrt merki um vilja Banda­ríkja­manna til sam­vinnu við Græn­lend­inga, og áherslu­breyt­ingar. Banda­ríski her­inn hefur um ára­bil lagt mikla áherslu á bar­áttu gegn hryðju­verkum en mun minni á starf­semi og upp­bygg­ingu á norð­ur­slóðum. Í við­tali í ágúst síð­ast­liðnum sagði Jens Stol­ten­berg fram­kvæmda­stjóri NATO að Norð­ur­skauts­svæðið væri akk­il­les­ar­hæll, veikur hlekkur, í varn­ar­keðju banda­lags­ins. Sér­stak­lega með til­liti til ágengni og ögrunar Rússa. En nú verði breyt­ing á, í stað þess að Thule sé ein­göngu eins­konar varð­stöð, eins og verið hefur um langt skeið, verði stöðin fram­vegis mik­il­vægur hlekkur í varn­ar­keðju NATO.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár