Áhætta fyrir samfélagið að þróa ekki ný fyrirtæki

Þrjár konur tóku sig saman og stofnuðu nýsköpunar­sjóð fyrir fáeinum árum. Síðan þá hafa þær vaxið og dafnað og ekki verður annað sagt en að um sann­kallaðan kvenna­kraft sé að ræða. Kjarninn ræddi við Jennýju Ruth Hrafns­dóttur, einn stofnanda sjóðsins.

Hekla Arnar­dóttir, Helga Valfells og Jenný Ruth Hrafns­dóttir stofnuðu nýsköpunar­sjóðinn Crowberry Capital árið 2017 en áður höfðu þær allar unnið saman hjá Nýsköpunar­sjóði atvinnu­lífsins. Jenný segir að þær hafi allar verið tilbúnar að taka áhættu en þeim tókst að safna fjármagni – aðallega frá lífeyris­sjóðunum en einnig frá fjár­sterkum einstaklingum – og loka sjóðnum um mitt ár 2017.

Nú hafa þær fjárfest í sex fyrir­tækjum eftir þetta rúma ár sem þær hafa verið starfandi. Jenný segir að allir séu af vilja gerðir varðandi nýsköpun en að þeim hafi fundist vanta að henni væri fylgt almennilega eftir með gjörðum. Markmið Crowberry Capital er að fjárfesta í tólf til fimmtán fyrir­tækjum í heildina en samkvæmt Jennýju er þetta fjögurra milljarða króna sjóður – rétt ríflega – og er líftíminn um tíu ár.

Fyrir­tækin sem þau fjármagna núna eru allt tækni- eða nýsköpunar­fyrirtæki. Jenný segir að um sé að ræða tækni­fyrirtæki í víðum skilningi; matvæla­tækni, ferða­tækni, heilbrigðis­tækni, sem og hugbúnaður. „Við erum einnig að skoða ýmislegt annað tækni­tengt,“ segir hún. Nýfjárfestingar­tímabil telst að jafnaði um þrjú til fimm ár og segir Jenný að eftir það styðji þær við fyrir­tækin út sjóðs­tímann.

Vilja búa til þekkingarstörf

„Við höfum allan okkar starfs­feril starfað í tækni eða við rekstur fyrir­tækja og síðar við fjár­festingar í nýsköpun. Þannig höfum við verið í þessu umhverfi allan hringinn við borðið,“ segir Jenný. Hún og Hekla eru verkfræði­menntaðar og störfuðu hjá Össuri sem er alþjóðlegt fyrirtæki í heilbrigðis­tækni. Þær hafa verið í stórum fyrir­tækjum sem hafa skalast mikið en einnig hafa þær rekið svokallað „startup“. Jenný starfaði meðal annars hjá heilbrigðis­tækni­fyrirtæki í Boston í Banda­ríkjunum og var þá í nýsköpun að safna fjármagni frá sambærilegum sjóðum þar í landi.

Jenný telur nýsköpun vera algjört grunn­gildi fyrir þær allar og hún sameini þær allar. „Þetta er sameiningar­krafturinn hér hjá okkur. Að við viljum skapa störf fyrir þessar ungu kynslóðir sem við erum að mennta. Við erum búin að mennta börnin okkar mjög mikið hér á landi og við erum með hátt mennta­stig. En Íslendingar eru ekki að búa til nægilega mörg störf sem mæta mennta­stiginu. Það er grunn­tónninn fyrir það sem við erum að gera,“ segir hún. „Við viljum búa til fleiri störf – fleiri þekkingar­störf.“

Þær líta mikið til hinna Norður­landanna en Jenný telur mikla jákvæðni einkenna íslenska hugsun varðandi nýsköpun. „Kostirnir sem við höfum er mikil félags­færni í samfélaginu, samvinna sem kemur til að mynda í gegnum íþrótta­starf í skóla­kerfinu,“ segir hún. Þannig sé mennta­kerfið að standa sig í stykkinu.

Það er mjög mikil áhætta að vera í störfum sem hafa staðnað. Og þá er hrein­lega erf­ið­ara fyrir fólk að fá störf til fram­tíðar þar sem kröf­urnar eru aðrar.
Þær stöllur, Jenný Ruth Hrafnsdóttir, Hekla Arnardóttir og Helga Valfells.
Þær stöllur, Jenný Ruth Hrafns­dóttir, Hekla Arn­ar­dóttir og Helga Valfells.

Konur annað hvort ekki tilbúnar eða of gamlar

„Við efuðumst aldrei um getu okkar til að safna í slíkan sjóð,“ segir Jenný en hún segir jafnframt að oft fái konur þau skilaboð að þær séu ekki tilbúnar í slík verkefni. Eða að þær séu hreinlega orðnar of gamlar. Þannig mætti halda að rétti tíminn sé aldrei fyrir konur.

„En við töldum okkur hafa talsverða reynslu og ýmislegt fram að færa þannig að við bara stukkum af stað,“ segir hún. Auðvitað sé einhver áhætta við að fara út í slíka söfnun en hún segir að það sé líka áhætta fyrir samfélagið að þróa ekki ný fyrirtæki og taka ekki þátt í tækni­byltingunni sem á sér nú stað úti um allan heim. „Það er mjög mikil áhætta að vera í störfum sem hafa staðnað. Og þá er hreinlega erfiðara fyrir fólk að fá störf til framtíðar þar sem kröfurnar eru aðrar,“ segir hún.

Sjóðir koma og fara

Umgjörð fyrir nýsköpun er aftur á móti ofboðs­lega brothætt, að mati Jennýjar. „Sjóðir geta komið og farið. Það er ekki alltaf fjármagn sem hægt er stöðugt að ganga að,“ segir hún en bendir jafnframt á að Rannís hafi tekið miklum breytingum til góða en hún segir að það sem verið sé að gera þar sér frábær vinna.

„Við reynum líka að fá meðfjárfesta erlendis frá,“ segir hún. Einnig hafa þær fjárfest í erlendu fyrirtæki í Svíþjóð með fjár­festum þar í landi. „Þá eru meiri líkur að við getum dregið þá hingað og þá verðum við líka hluti af þessu norræna netverki. Við þurfum nefnilega að vefa okkur inn í það. Við viljum alls ekki vera eyland í nýsköpun.“

Sjaldséðir hrafnar

Jenný segir að þegar þær fóru af stað með sjóðinn þá hefðu þær ekki haft skýra mynd varðandi kynja­hlutföll. „Síðan aftur á móti eftir að við lokuðum sjóðnum þá höfum við fengið mikla athygli fyrir það að vera einungis konur, sérstak­lega utan landsteinanna,“ segir hún.

„Við erum sjaldséðir hrafnar,“ segir hún og hlær. Jenný bendir á að engin kona hafi starfað við fjár­festingar í nýsköpun á Íslandi fyrir tíu árum síðan. Nú séu þær sex af þrettán. Þetta eru ekki margir einstaklingar en hún segir að þeir hafi mikil áhrif á þau fyrirtæki sem eru að verða til.

Þegar kynja­hlutföll eru skoðuð í Evrópu má sjá að konur stýra 12 prósent þeirra sjóða sem European Investment Fund (EIF), sem er stærsti vaxtar­sjóða­fjár­festirinn í Evrópu, hefur fjárfest í. Frá árinu 2013 fór talan úr fimm prósentum í tólf prósent á síðasta ári. European Investment Bank, sem er einn stærsti eigandi EIF, var fyrst núna í desember 2017 að setja sér reglur varðandi kynja­kvóta en samt er vanda­málið á þessum skala, segir Jenný. „EIB er í eigu þjóðríkja í Evrópu­sambandinu og EES og því skatt­greiðenda og þar af leiðandi er þetta kynja­hlutfall algjör­lega óásættanlegt.“

Það er auð­vitað skelfi­legt að langstærsti fjár­festir­inn í tækni­sjóðum í Evrópu séu ein­ungis að fjár­festa 12 pró­sent í konum.

Hún bendir enn fremur á að á meðan vaxtar­sjóðir fjárfesti að megninu til í körlum þá séu það þeir sem ákveða hvaða tækni sé verið að fara að nota inn í fram­tíðina. „En þetta er ekki þver­skurður af samfélaginu. Allavega ekki hvað kynin varðar og ekki einnig í víðara samhengi,“ segir hún. Þess vegna hafi þær sett mjög skýr markmið um að þær ætli að hafa áhrif á þessa heildar­mynd. „Við lítum svo á að það þarf að taka aktívar aðgerðir til að breyta myndinni. Við þurfum að setja okkur markmið. Það gerist ekki af sjálfu sér. Þannig að við höfum sagt að okkar eignasafn sé að minnsta kosti 40 prósent annað kynið sem leiðir þau fyrirtæki. Sama hvort það séu konur eða karlar.“

Íslenskir lífeyris­sjóðir eru mest mótandi á vaxtar­sjóðaumhverfið hér heima, að sögn Jennýjar, og þeim til hróss þá eru kynja­hlutföllin í vaxtar­sjóðum á Íslandi 46 prósent konur á móti 54 prósent karla. „Um leið og við fjár­festum í fleiri kven­frumkvöðlum þá fjölgum við vaxtar­tækifærunum í samfélaginu og hættum að skilja eftir verðmæti á borðinu.“

Róttæk viðbrögð að utan

Jenný segir að það hafi komið á óvart hversu róttæk viðbrögð þær hafi fengið út fyrir landsteinana. Þær fái mikið af spurningum hvernig þær hafi farið að því að stofna þennan sjóð og einnig hafi margar konur leitað til þeirra. Jenný spyr sig hvort ekki sé hægt að gera meira. „Getum við ekki gert meira fyrir umhverfið í kringum okkur sem Íslendingar?“ spyr hún.

„Það er auðvitað skelfilegt að lang­stærsti fjár­festirinn í tækni­sjóðum í Evrópu séu einungis að fjárfesta 12 prósent í konum,“ bendir hún á. Fyrir tveimur árum voru reyndar samtök í Evrópu stofnuð sem einbeita sér að þessum málefnum sem heita European Women in VC en Jenný, Hekla og Helga eru stofn­aðilar að þeim. Samtökin ýta á að fjárfest sé í fyrir­tækjum með konur í forsvari. „Það er köld staðreynd að við erum að hafa svo mikil áhrif inn í fram­tíðina. Þess vegna er svo mikilvægt að breyta þessu kynja­hlutfalli núna vegna þess að annars erum við ekki að fara að sjá áhrif þess strax. Ungar konur og karlar sem starfa hjá þessum nýsköpunar­fyrirtækjum þurfa líka að hafa fyrir­myndir og hafa í leiðtoga­hópunum fólk sem þau geta litið upp til og leitað til. Þetta hefur svo víðtæk áhrif,“ segir Jenný.

Ungar konur og karlar sem starfa hjá þessum nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækjum þurfa líka að hafa fyr­ir­myndir og hafa í leið­toga­hóp­unum fólk sem þau geta litið upp til og leitað til. Þetta hefur svo víð­tæk áhrif.
Jenný Ruth á skrifstofu Crowberry Capital.
Jenný Ruth á skrif­stofu Crowberry Capital.

Mikill sköpunarkraftur í loftinu

Nú þegar krónan er ekki eins sterk og undan­farin misseri þá telur Jenný ekki síður mikilvægt að fjárfesta í þekkingar­störfum og nýjum fyrir­tækjum til framtíðar. „Þessar sveiflur á krónunni hafa áhrif á alla sem eru í viðskiptum eða í fyrirtækja­rekstri. Og þetta er mjög erfitt þrátt fyrir að veikingin hjálpi til við útflutning. Best er auðvitað að hafa sem minnstar sveiflur.“

Þrátt fyrir veikingu krónunnar segir Jenný að þær hjá Crowberry Capital séu mjög bjartsýnar eins og alltaf. „Við höfum mikla trú á þessu unga fólki sem er að koma úr háskólunum og öðrum. Fólk á Íslandi er ofboðs­lega hugmynda­ríkt – það er mjög mikill sköpunar­kraftur í loftinu. Ég geri mér ekki grein fyrir því hvort það sé út af tónlistar­skólunum eða hvað? Eða kannski er það bara veðrið,“ segir hún og hlær. „En það er mikill sköpunar­kraftur hér, mörg fyrirtæki verða til en okkur gengur kannski ekki alveg nógu vel að koma þeim inn í fastmótað ferli og gera góðan „business“ úr þeim. En það er alltaf hægt að læra og vinna með fólki að því.“

Hún bendir á að nú sé frekar lítið atvinnu­leysi en samt hafi fólk áhuga á að stofna fyrirtæki. „Það sýnir bara eldmóðinn að fólk hefur trú á því sem það er að gera og ætlar að breyta heiminum eða koma með eitthvað nýtt. Það er það sem við erum að horfa til.“

En hvernig á að halda úti eldmóði? Jenný segir að lykillinn sé að það gerir enginn neitt einn. „Þú verður að fá gott fólk með þér og treysta fólki í kringum þig. Í rauninni bara virkja fólkið í kringum þig. Við getum til dæmis bent á önnur fyrirtæki sem sjá um ákveðnar lausnir en þannig er hægt að horfa þvert á fyrirtæki. Við höfum líka tekið þátt í uppbyggingu þegar þau eru orðin aðeins stærri og vitum hvert næsta skref er eða hvernig hægt sé að komast upp á næsta stig,“ segir hún. Mikil­vægast sé að reyna ekki að gera allt einn – heldur vinna með öðrum.

Vilja fjárfestingar í stöðugan farveg

Nýlega voru stofnuð samtök framtaks­fjárfesta hér á landi, Framís, en stofn­fundur samtak­anna var í byrjun nóvember síðastliðinn. Jenný segir að Íslendingar þurfi stöðugt umhverfi og að alltaf sé einhver sjóður til staðar til að taka á móti nýsköpunar­fyrirtækjum. Hún bendir á að fyrir árið 2015 hafi til að mynda mikið fjármagn vantað en allt í einu hafi þrír sjóðir komið til og fleiri fylgt á eftir. „Þetta er eins og ná tómatsósu úr flösku – allt kemur í einu en svo gerist ekkert inn á milli. Það gerist svo oft í svona fámennum samfélögum,“ segir hún.

Ef það er eitthvað sem þær myndu vilja að kæmist í stöðugan farveg þá væri það að alltaf væri eitthvað í gangi varðandi fjár­festingar í nýsköpun og tækni. Jenný telur að lífeyris­sjóðirnir deili þessari sýn – það sé allra hagur. Sem og að fara vel með þá fjármuni sem fengnir eru.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár