Stefnubreyting hjá fyrirtækinu sem er að breyta heiminum

Stefnu­breyt­ingin sem Google til­kynnti um í lok við­skipta­dags, 10 ágúst síð­ast­lið­inn, kom eins og þruma úr heið­skíru lofti, sé mið tekið af við­brögðum fjöl­miðla víð­ast hvar, en var samt eitt­hvað sem grein­endur og sér­fræð­ingar höfðu haft grun­semdir um að væri í bígerð. Það sem helst kall­aði á end­ur­skipu­lagn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins var hröð þróun á sviði gervi­greindar, meðal ann­ars þróun sjálfa­kandi raf­bíla, og síðan tíma­bær end­ur­nýjun á stefnu­mótun félags­ins. Þó Google telj­ist fremur ungt félag þegar horft til margra þeirra sem risa­vöxnu fyr­ir­tækja sem eru skráð á hluta­bréfa­markað í Banda­ríkj­unum, þá þarf stundum að minna á það sér­stak­lega að það varð til í bíl­skúr árið 1998, fyrir aðeins sautján árum.

Risi sem getur orðið að skrímsli?


Í blogg­færslu sem Larry Page og Sergey Bruin, stofn­endur Google, skrif­uðu á vef fyr­ir­tæk­is­ins í til­efni breyt­ing­anna segja þeirr að mark­miðið sé að láta hvert og eitt vöru­merki blómstra á sinn sjálf­stæða hátta. Und­ir væng móð­ur­fé­lags­ins, Alp­habet, verða t.d. Google Vent­ur­es, sem mun leggja áherslu á að fjár­magna sprota­fyr­ir­tæki, Google X, sem mun vinna að tækninýj­ung­um, Google Capital, sem mun fjár­festa í tækni­geir­an­um til lengri tíma og síðan Google Inc. Und­ir væng Google Inc verður m.a. Android, Youtu­be og aug­lýs­inga­starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins, sem hefur verið grunnur að hröðum vexti þess allt frá stofnun. Nýr for­stjóri Google er Sundar Pichai, 43 ára gam­all Indverji, sem hefur verið meðal lyk­il­stjórn­enda Google að und­an­förnu.

Tekj­ur­grunnur fyr­ir­tæk­is­ins er traustur, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Miðað við síð­ustu birtu til­kynn­ingu í kaup­höll, fyrir annan árs­fjórð­ung 2015, námu tekjur fyr­ir­tæk­is­ins 17,7 millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 2.300 millj­örðum króna. Það er um ell­efu pró­sent aukn­ing frá sama tíma í fyrra. Þrátt fyrir að fyr­ir­tækið sé fyrir löngu búið að festa við sig orðið risi, þá bendir margt til þess að það geti orðið stærra og áhrifa­meira en það er nú. Þá er orðið skrímsli lík­lega ekki langt undan.

https://www.youtube.com/watch?v=M8YjvHYbZ9w

Ekkert venjulegt fyrirtæki


Einn af þeim sem fylgst hefur lengi fylgst með gangi mála í tækni­geir­anum á heims­vísu er Björgvin Ingi Ólafsson, fram­kvæmda­stjóri við­skipta­þró­unar Íslands­banka og fyrr­ver­andi ráð­gjafi hjá McKinsey. Hann segir stefnu­breyt­ing­una nú geta verið upp­haf „svaka­legrar“ sögu, ef Larry Page og félagar ná mark­miðum sínum. „Google er auð­vitað ekk­ert venju­legt fyr­ir­tæki. Þetta hafa þeir Brin og Page sagt okkur allt frá því þeir skrif­uðu þetta í fyrstu setn­ing­unni í bréfi til fjár­festa í skrán­ing­ar­lýs­ingu félags­ins 2004. Alphabet aðgerð Google er bara enn einn sönnun þess­ara orða. Page er að segja okkur að hann ætli að ein­beita sér að ævin­týrum og arf­leifð Google. Ef eitt­hvað af því tekst sem Page ætlar sér að vinna að verður saga Google enn svaka­legri en við getum ímyndað okkur. Pælið í því ef Google mun auka lang­lífi, bæta borga­skipu­lag eða bæta lífs­gæði með sjálf­keyr­andi bílum. Þetta eru meðal stóru mála Alphabet. Á sama tíma mun hinn eit­ur­snjalli Sundar Pichai reka hið „hefð­bundna“ fyr­ir­tæki Google . Fyr­ir­tæki sem mun horfa á afkom­una í árs­fjórð­ungs­legum takti og tala um fjár­fest­ingar, tekjur og kostnað eins og hvert annað fyr­ir­tæki.

"..this [að Sundar stjórni Google] frees up time for me to continue to scale our aspirations" les­ist: Ég, Larry, geri það sem er mest cool


— Björgvin Ingi Ólafs. (@bjorgvinio) August 11, 2015

Það fyr­ir­tæki snýst um aug­lýs­ingar og hug­vit og er í sjálfu sér ekk­ert bylt­ing­ar­kennt utan þess að hafa svaka­lega sterka mark­aðs­stöðu. Sagan segir að það hafi hvatt Page til aðgerða nú að Pichai hafi verið boðið að taka við sem for­stjóri Twitter og Page hafi alls ekki viljað missa hann eins og Marissa Mayer hjá Yahoo eða Sheryl Sandberg hjá Facebook,“ segir Björgvin Ingi, sem hefur verið virkur í umræðum um tíð­indin frá Google á Twitter aðgangi sínum.

Miklar breytingar á lífi fólks


Líkt og þegar Google kom eins og storm­sveipur inn í líf fólks í tölvum, árið 1998, þá bendir margt til þess að vöru­þróun fyr­ir­tæk­is­ins nú, einkum á sviði sjálfa­kandi bíla og gervi­greindar, meðal ann­ars í gegnum dótt­ur­fé­lagið Boston Dynamics, geti breytt lifn­að­ar­háttum eins og við þekkjum þá tölu­vert. Jafnvel þó mörg önnur fyr­ir­tæki í heim­inum séu að þróa lausnir sem munu ýta undir breyt­ingar á þessum fyrr­nefndu þáttum þá er Google að leiða þró­un­ina. Eða það er það sem fyr­ir­tækið vill gera, helst alltaf á sem flestum víg­stöðum.

https://www.youtube.com/watch?v=TsaES--OTzM

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár