Kanna hvaða áhrif COVID-19 faraldurinn hafði á matarvenjur Íslendinga

Til þess að skilja betur breyt­ingar á neyslu­venjum og við­horfi til matar á meðan neyð­ar­stig almanna­varna var í gildi þá stendur Matís nú fyrir könnun um mat­ar­venjur Íslend­inga á meðan COVID-19 far­ald­ur­inn stóð sem hæst.

Matís stendur nú fyrir net­könnun þar sem ætl­unin er að skoða breyt­ingar á mat­ar­venjum og neyslu­hegðun Íslend­inga vegna COVID-19 far­ald­urs­ins. Könnunin er hluti af norænni-balt­neskri rann­sókn. Frá þessu er greint á vef­síðu fyr­ir­tæk­is­ins.

Markmið rann­sókn­ar­innar er sam­kvæmt Matís að skilja betur breyt­ingar á neyslu­venjum og við­horfi til matar á meðan neyð­ar­stig almanna­varna var í gildi 6. mars til 25. maí 2020.

„Með því að safna þessum gögnum og bera saman nið­ur­stöður mun könn­unin varpa ljósi á ýmis vanda­mál neyt­enda og áhyggjur í tengslum við mat­væla­ör­yggi, fæðu­fram­boð og fæðu­að­gengi,“ segir í frétt Matís um málið.

Gögnin verða á engan hátt per­sónu­grein­an­leg, sam­kvæmt Matís. Nið­ur­stöður könn­un­ar­innar verða bornar saman við kann­anir sem gerðar hafa verið í nágranna­lönd­unum. Þær geti svo nýst til að skoða ákvarð­anir og aðgerðir stjórn­valda og mat­væla­fram­leið­anda á tímum far­ald­urs­ins.

Þá kemur fram að far­ald­ur­inn hafi haft áhrif á okkur öll og með mis­mun­andi hætti. Hann hafi haft áhrif á matar­æði okkar og heilsu. Hann hafi haft áhrif á okkur and­lega og fjár­hags­lega. Með betri skiln­ingi á öllum þessu þáttum verði Íslend­ingar betur í stakk búin til að takast á við svip­aðar aðstæður í fram­tíð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár