Laun stjórnarmanna í skráðum félögum hækka langt umfram það sem verkafólki býðst

Það er óhætt að segja að allt hafi orðið vit­laust í vik­unni þegar til­kynnt var að laun stjórn­ar­manna hjá HB Granda myndu hækka um 33 pró­sent, beint ofan í þá ólgu sem er á vinnu­mark­aði, þar sem fisk­verka­fólk­inu sem vinnur í frysti­húsi félags­ins stendur til boða 3,5 pró­sent launa­hækkun. Tíðindin hertu enn á þeim rembihnút sem er í kjara­við­ræð­unum sem stendur. Kjarninn ákvað að kanna laun stjórn­ar­manna allra skráðra félaga á Íslandi, hversu mikið þau munu hækka sam­kvæmt til­lögum sem lagðar voru fyrir aðal­fundi þeirra og hversu háar arð­greiðslur voru greiddar til hlut­hafa félag­anna. Nið­ur­stöð­urnar eru áhuga­verðar.

Fjögur af þeim fjórtán félögum sem skráð eru á íslenskan hluta­bréfa­markað hækk­uðu laun stjórn­ar­manna sinna um tíu pró­sent eða meira á milli ára. Mest var hækk­unin hjá Vátrygg­inga­fé­lagi Íslands þar sem stjórn­ar­menn hækk­uðu um 75 pró­sent í launum. Hæst laun­aði stjórn­ar­menn­irnir eru hjá Marel en sá lægst­laun­aði hjá Nýherja. Með­al­laun almennra stjórn­ar­manna í skráðum íslenskum félögum eru 279 þús­und krónur á mán­uði, eða 21 þús­und krónum lægri en kröfur Starfs­greina­sam­bands Íslands um lág­marks­laun fyrir fulla vinnu eru í yfir­stand­andi kjara­deilum. Með­al­laun stjórn­ar­for­manna skráðra félaga eru tölu­vert hærri, eða 563 þús­und krónur á mán­uði.

Skráð félög á Íslandi greiddu hlut­höfum sínum sam­tals 20,5 millj­arða króna í arð vegna frammi­stöðu félag­anna á síð­asta ári.

Samtök atvinnu­lífs­ins hafa talað fyrir 3,5 til 5,0 pró­sent hækkun launa þorra laun­þega lands­ins í þeim kjara­deilum sem nú standa yfir.

Hlut­falls­leg hækkun stjórn­ar­launa milli ára

|

Create infographics

Gríðarlegar arðgreiðslur tryggingafélaga

Þrjú íslensk trygg­inga­fé­lög eru skráð á markað. Hjá Sjóvá voru stjórn­ar­laun hækkuð úr 250 þús­und krónum á mán­uði í 275 þús­und krónur á síð­asta aðal­fundi. Laun stjórn­ar­for­manns eru tvö­föld og þar af leið­andi 550 þús­und krónur. Laun stjórn­ar­manna hækk­uðu því um tíu pró­sent. Varamenn í stjórn fá greidda ein­greiðslu upp á 275 þús­und krónur á ári auk þess sem þeir fá 100 þús­und krónur fyrir hvern fund sem þeir sitja. Hlut­hafar í Sjóvá fengu greidda fjóra millj­arða króna í arð­greiðslu vegna frammi­stöðu árs­ins 2014.

Stjórn­ar­laun hækk­uðu líka hjá Vátrygg­inga­fé­lagi Íslands, VÍS. Þar fóru laun óbreyttra stjórn­ar­manna úr 200 þús­und krónum í 350 þús­und krónur á mán­uði. Formaður stjórnar hækk­aði úr 400 í 600 þús­und krónur. Hækkun stjórn­ar­launa er því 75 pró­sent og hækkun stjórn­ar­for­manns nemur 50 pró­sentum. VÍS greiðir hlut­höfum sínum 2,5 millj­arða króna í arð vegna síð­asta árs.

Hjá Trygg­inga­mið­stöð­inni eru kjör stjórn­ar­manna óbreytt á milli ára. Þar fær hver stjórn­ar­maður 350 þús­und krónur í laun á mán­uði og stjórn­ar­for­maður tvö­falt það, alls 700 þús­und krónur. Varamenn fá 350 þús­und króna ein­greiðslu árlega auk þess sem þeir fá 100 þús­und krónur fyrir hvern fund sem þeir sitja. Trygg­inga­mið­stöðin greiddi hlut­höfum sínum fjóra millj­arða króna í arð vegna árs­ins 2014.


Önnur staða hjá Marel og Össuri


Smá­söluris­inn Hagar er með ann­ars­konar upp­gjörsár en önnur fyr­ir­tæki sem skráð eru á markað. Uppgjör fyrir hluta árs 2014 liggur því ekki fyrir, heldur verður það birt næsta sumar. Þar fær almennur stjórn­ar­maður 250 þús­und krónur í mán­að­ar­laun en stjórn­ar­for­mað­ur­inn 500 þús­und. Launin voru óbreytt á milli áranna 2013 og 2014.

Hlut­hafar í Högum fengu tæp­lega 1,2 millj­arða króna greidda í arð vegna síð­asta rekstr­ar­árs sem gert hefur verið upp.

Marel og Össur eru í aðeins annarri stöðu en flest fyr­ir­tæki sem skráð eru á íslenskan hluta­bréfa­markað, þar sem eign­ar­hald þeirra er að stórum hluta erlent og starf­semin alþjóð­leg. Hjá Marel hækk­uðu stjórn­ar­laun úr 2.500 evrum á mán­uði í 2.750 (400 þús­und krónur) og laun stjórn­ar­for­manns úr 7.500 evrum (1.092 þús­und krónur) í 8.250 evrur (1.202 þús­und krónur). Alls hækk­uðu því laun stjórn­ar­manna um tíu pró­sent.

Marel greiddi hlut­höfum sínum um 510 millj­ónir króna í arð vegna árs­ins 2014.

Hjá Össuri hækk­uðu stjórn­ar­launin lít­il­lega, eða um rúm­lega þrjú pró­sent á milli ára. Þau eru greidd í dölum en yfir­reiknuð í íslenskar krónur fær stjórn­ar­for­mað­ur­inn um 975 þús­und krónur á mán­uði, vara­for­maður stjórnar 585 þús­und krónur og almennir stjórn­ar­menn 390 þús­und krónur.

Össur greiddi hlut­höfum sínum tæpan millj­arð króna í arð á síð­asta ári.

[caption id="attachment_24197" align="alignnone" width="1000"] Alls eru 14 félög skráð í kaup­höll Íslands sem stendur. Þau greiddu sam­tals út 20,5 millj­arða króna í arð.[/caption]

Fasteignafélögin stöðug


Tvö fast­eigna­fé­lög eru skráð í kaup­höll­ina. Annað þeirra, Reitir, var fyrst skráð á markað fyrr í þessum mán­uði. Hjá því fær stjórn­ar­maður 260 þús­und krónur mán­að­ar­lega og stjórn­ar­for­maður tvölfalda þá upp­hæð, eða 520 þús­und krónur á mán­uði. Engin arður var greiddur út til hlut­hafa vegna síð­asta árs.

Alls eru 14 félög skráð í kauphöll Íslands sem stendur. Þau greiddu samtals út 20,5 milljarða króna í arð.
Alls eru 14 félög skráð í kaup­höll Íslands sem stendur. Þau greiddu sam­tals út 20,5 millj­arða króna í arð.

Fast­eigna­fé­lagið Reginn hefur verið á mark­aði frá því í júlí 2012. Það félag greiðir heldur ekki út arð vegna síð­asta árs. Þóknun stjórn­ar­manna hjá Reginn er 250 þús­und krónur á mán­uði og stjórn­ar­for­maður fær tvö­falda þá þóknun. Kjör stjórn­ar­manna eru óbreytt milli ára.

Meint taktleysi HB Granda


Líkt og áður sagði varð allt vit­laust í vik­unni þegar spurð­ist út að laun stjórn­ar­manna í HB Granda, sem skráð var á markað í fyrra, myndu hækka um 33 pró­sent. Stjórn­ar­menn í félag­inu fá nú 200 þús­und krónur greiddar á mán­uði í stað 150 þús­und króna og stjórn­ar­for­mað­ur­inn tvö­falda þá upp­hæð. HB Grandi greiddi hlut­höfum sínum 2,7 millj­arða króna í arð vegna frammi­stöðu síð­asta árs.

Elds­neyt­is­þjón­usturis­inn N1 hækkar líka launa­greiðslur stjórn­ar­manna sinna á milli ára. Áður fékk almennur stjórn­ar­maður 275 þús­und krónur á mán­uði, vara­for­maður stjórnar 412.500 krónur og stjórn­ar­for­mað­ur­inn 550 þús­und. Á aðal­fundi í vor voru greiðslur stjórn­ar­manna hækk­aðar í 290 þús­und, greiðslur vara­for­manns í 435 þús­und og laun stjórn­ar­for­manns í 580 þús­und krónur. Alls er um að ræða 5,5 pró­sent hækkun. N1 greiddi hlut­höfum sínum 840 millj­ónir króna í arð vegna frammi­stöðu félags­ins á síð­asta ári.

Laun stjórn­ar­manna hjá skráðum félögum á Íslandi

|

Create infographics

Tæknifyrirtækin hófstilltari

Eitt fjar­skipta­fyr­ir­tæki er skrá á íslenskan hluta­bréfa­markað, Fjar­skipti hf., móð­ur­fé­lag Vodafone á Íslandi. Félagið greiddi hlut­höfum sínum 219 millj­ónir króna í arð vegna árs­ins 2014. Á síð­asta aðal­fundi var sam­þykkt að hækka laun stjórn­ar­manna um tæp þrjú pró­sent. Stjórn­ar­for­maður félags­ins fær nú 421.500 krónur á mán­uði en almennir stjórn­ar­menn 210.700 krónur. Nýherji greiðir hlut­höfum sínum ekki út arð vegna frammi­stöðu síð­asta árs, þótt mik­ill við­snún­ingur hafi orðið á rekstri félags­ins. Það hækkar hins vegar laun stjórn­ar­manna sinna lít­il­lega. Stjórn­ar­menn fá nú 130 þús­und krónur á mán­uði, eða fimm þús­und krónum meira en áður, og stjórn­ar­for­mað­ur­inn 390 þús­und krónur í stað 375 þús­und króna áður.


Fjöreggin græða á tá og fingri


Fjöregg Íslands, Icelandair og Eimskip, eru bæði skráð í kaup­höll. Icelandair hefur gengið mjög vel und­an­farin ár sam­hliða spreng­ingu í íslenskri ferða­þjón­ustu og á síð­asta aðal­fundi var sam­þykkt að greiða 2,5 millj­arða króna til hluhafa í arð. Þar var líka sam­þykkt að halda launum stjórn­ar­manna óbreyttum milli ára. Stjórn­ar­for­maður félags­ins fær því áfram 550 þús­und krónur, vara­for­mað­ur­inn 412.500 krónur og almennir stjórn­ar­menn 275 þús­und krónur.

Eimskip borgar hlut­höfum sínum 933 millj­ónir króna í arð vegna síð­asta árs. Á síð­asta aðal­fundi var ákveðið að hækka laun stjórn­ar­manna um fjögur pró­sent. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn fær nú 550 þús­und krónur, vara­for­mað­ur­inn 415 þús­und krónur og almennir stjórn­ar­menn 275 þús­und króna.

Viðbót 16. apríl:


Rangt var farið með laun stjórn­ar­manna í Marel í upp­haf­legri frétt. Það hefur verið leið­rétt og frétt­inn upp­færð í takt við réttar upp­lýs­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár