560 þúsund nýir flugmenn

Á næstu tutt­ugu árum verður þörf fyrir fleiri en hálfa milljón nýrra flug­manna í heim­inum. Og enn fleiri flug­virkja, flug­freyjur og -þjóna. Evrópsk flug­fé­lög mega búast við harðri sam­keppni frá félögum í Asíu sem bjóða hærri laun.

Stærsti flug­véla­fram­leið­andi heims, Boeing, birti fyrir skömmu fróð­legar og áhuga­verðar tölur um þróun flug­mála í heim­inum næstu ára­tug­ina. Starfs­fólk þró­un­ar­deildar fyr­ir­tæk­is­ins hefur ekki rýnt í kaffi­bolla til að sjá fram í tím­ann en styðst við tölur um pant­anir á flug­vélum, bæði frá Boeing og Airbus. Þessir tveir stærstu fram­leið­endur far­þega­véla í heim­inum voru sam­tals með fyr­ir­liggj­andi pant­anir á rúm­lega tólf þús­und flug­vélum um síð­ast­liðin ára­mót, og gera ráð fyrir að fram til árs­ins 2035 muni fyr­ir­tækin tvö afhenda um það bil 38 þús­und nýjar flug­vélar.

28 þúsund flugmenn á hverju ári


Til þess að manna þennan flug­flota þarf margt fólk. Þró­un­ar­deild Boeing hefur reiknað út, miðað við fjölda nýrra flug­véla, þurfi á hverju ári að bæt­ast við 28 þús­und nýir flug­menn, semsé um 560 þús­und fram til árs­ins 2035. Flug­freyjum og -þjónum þarf að fjölga álíka mikið eða jafn­vel rúm­lega það og á þessu tutt­ugu ára tíma­bili þarf flug­virkjum að fjölga um hvorki meira né minna en 610 þús­und.

Ellefti september, fuglaflensa og kreppa


Fyrstu ár ald­ar­innar voru ekki upp­gangs­tímar í flug­inu. Fyrst var það 11.sept­em­ber 2001, því næst fuglaflensan 2003 og svo fjár­málakreppan 2008. Þetta þrennt hafði mikil áhrif um allan heim. Almenn­ingur ferð­að­ist minna og flug­ferðum tengdum vinnu fækk­aði sömu­leiðis. Þetta hafði í för með sér miklar svipt­ingar í flug­rekstri, mörg félög lögðu upp laupana, önnur héngu á horrim­inni.

Til varð það sem nefnt hefur verið lággjalda­flug­fé­lög, sum þeirra eins­konar hlið­ar­fé­lög við stóru "gömlu" félögin, önnur sem verið höfðu lítil og flogið á til­teknum leiðum, sem stóru félögin sinntu ekki, sáu sér leik á borði til að nýta sér aðstæð­urnar. Í þessum hópi eru meðal ann­ars Ryanair, Easyjet og Norwegian sem öll hafa þanið væng­ina, ef svo má segja, á síð­ustu árum.

Asía skiptir mestu, einkum Kína


Allt tekur enda er stundum haft á orði, ekki síst þegar von­ast er eftir betri tíð. Þótt afleið­ingar krepp­unnar sem reið yfir heim­inn fyrir nokkrum árum séu ekki að fullu liðnar hjá gildir það ekki um flugið. Þar er upp­gangur.

Geysi­legur upp­gangur í Kína á und­an­förnum árum hefur verið mjög áber­andi í fréttum. Kín­verskir ferða­menn eru áber­andi víða um lönd, ekki síst í Evrópu. Ástæðan er aug­ljós: meiri efni sem gera sístækk­andi hópi Kínverja kleift að að ferð­ast um heim­inn. Jafn­framt fjölgar árlega í þeim hópi, ekki síst Vest­ur­landa­búum, sem heim­sækja ris­ann í austri eins og Kína er stundum nefnt. En Kín­verjarnir ferð­ast ekki ein­göngu til ann­arra landa, þeir ferð­ast í síauknum mæli inn­an­lands og með bættum efna­hag velja sífellt fleiri flug fram­yfir lestar- eða rútu­ferð. Sem kallar á flug­vélar, margar flug­vélar, og áhafnir. Flug­vél­arnar kaupa Kín­verjar frá stóru fram­leið­end­unum tveim, þar eru þeir ein­fald­lega í kaup­enda­röð­inni. Og svo þarf fólk, margt fólk.

225 þúsund flugmenn


Þótt Kín­verjar séu um margt fram­sýnir og iðu­lega sagðir hugsa ára­tugi fram í tím­ann gildir það ekki um menntun flug­manna og flug­virkja. Að mati þró­un­ar­deildar Boeing verða Kín­verjar ekki í vand­ræðum með að mennta flug­freyjur og -þjóna en öðru máli gegni um flug­menn og flug­virkja. Á næstu 20 árum þurfa Kín­verjar að ráða til starfa að minnsta kosti 150 þús­und flug­menn og aðrar Asíu­þjóðir að minnsta kosti 75 þús­und. Og þá er spurt: hvaðan kemur þessi mann­skapur? Og svarið: að miklu leyti frá Evrópu. Þá er spurt: eru svona margir flug­menn þar án atvinnu. Svarið við því er nei, en þá er til gott ráð: bjóða hærri laun, miklu hærri laun. Það er þetta ráð sem Kín­verjarnir grípa til. Bjóða ein­fald­lega miklu betri kjör en flug­fé­lög í Evrópu, þar sem sam­keppnin er mjög hörð og allra leiða leitað til að ná niður kostn­aði.

Víðar vantar flugmenn


Þró­un­ar­deild Boeing telur að í Banda­ríkj­unum vanti á næstu 20 árum 95 þús­und flug­menn, annan eins fjölda í Evrópu, og Suður-Ameríku, Mið­aust­ur­löndum og Rúss­landi og Afríku um það bil 145 þús­und. Við þetta bæt­ist svo sá fjöldi flug­manna sem kemst á eft­ir­launa­aldur.

Evrópsk flugfélög hafa áhyggjur


Á síð­ustu árum hafa mörg evr­ópsk flug­fé­lög, til dæmis SAS, beint kröftum sínum að upp­sögnum og sparn­aði. Það kemur ekki til af góðu, ástæð­urnar eru síharðn­andi sam­keppni og auk­inn til­kostn­aður. Félögin hafa þess vegna ekki, fyrr en kannski nú, áttað sig á að þau geti ekki gengið út frá því sem vísu að alltaf verði nægi­legt fram­boð á flug­mönnum og flug­virkjum. Flug­maður sem Jót­land­s­póst­ur­inn danski ræddi nýlega við sagði að nú væri af það sem áður var, í dag væru flug­menn til­búnir að ráða sig til starfa nán­ast hvar sem væri í ver­öld­inni.

Reyndir flug­menn, einkum flug­stjórar, gætu valið úr störfum og leit­uðu auð­vitað þangað sem best kjör byð­ust. Jan Herlev Christoffersen yfir­flug­stjóri hjá Norwegian flug­fé­lag­inu sagði í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske að hann þyrfti á næstu 12 mán­uðum að ráða til starfa 250 flug­menn "og ég hef ekki hug­mynd um hvernig ég á að fara að því," sagði hann. Þessi yfir­flug­stjóri er ekki sá eini sem þarf að klóra sér í koll­inum á næstu árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár