Síldarvinnslan greiddi viðbótarskatt eftir að stórfyrirtækjaeftirlið var framkvæmt

Hagnaður af rekstri Síld­ar­vinnsl­unnar á fyrri hluta árs var 5,8 millj­arðar króna. Verð­mætasta bók­færða eign félags­ins eru afla­heim­ildir, sem þó eru bók­færðar langt undir mark­aðsvirði.

Gunnþór Ingvarsson er forstjóri Síldarvinnslunnar. Hann sést hér hringja inn fyrstu viðskipti með bréf í félaginu eftir skráningu á markað í maí.
Gunnþór Ingv­ars­son er for­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar. Hann sést hér hringja inn fyrstu við­skipti með bréf í félag­inu eftir skrán­ingu á markað í maí. Mynd: Nasdaq Iceland

Síld­ar­vinnsl­unni var gert að greiða 64,3 millj­ónir króna í við­bót­ar­skatt­greiðslur fyrr á þessu ári eftir að Skatt­ur­inn fram­kvæmdi svo­kallað stór­fyr­ir­tækja­eft­ir­lit á skatt­skilum fyrri ára hjá félögum í sam­stæðu hennar. Frá þessu er greint í árs­hluta­reikn­ingi Síld­ar­vinnsl­unnar sem skilað var inn til Kaup­hallar Íslands í síð­ustu viku.

Þar segir enn fremur að eft­ir­lits­að­gerðum sé að fullu lokið hjá Síld­ar­vinnsl­unni og dótt­ur­fé­lagi hennar Runólfi Hall­freðs­syni, en að hluta hjá öðru dótt­ur­fé­lagi, Bergi-Huginn. Við­bót­ar­skatt­greiðslan gjald­færð í bókum Síld­ar­vinnsl­unnar á öðrum árs­fjórð­ungi yfir­stand­andi árs.

Rekstr­ar­tekjur Síld­ar­vinnsl­unnar á fyrri hluta árs­ins 2021 voru um 5,8 millj­arðar króna. Hagnaður félags­ins var 3,9 millj­arðar króna og skýrist að stórum hluta af því að félag utan um stóran hlut í trygg­inga­fé­lag­inu Sjóvá var fluttur til hlut­hafa hennar með arð­greiðslu í aðdrag­anda skrán­ingar Síld­ar­vinnsl­unnar á markað fyrr á árinu. Bókfært verð félags­ins, SVN eigna­fé­lags, var 3,7 millj­arðar króna en verð­mæti hans á arð­greiðslu­degi var 2,9 millj­örðum krónum meira. Sá munur bók­færð­ist því sem hagn­aður.

[adspot]EBITDA-hagn­aður Síld­ar­vinnsl­unnar, hagn­aður fyrir afskriftir, skatta og fjár­magns­gjöld, var þó einnig hár eða 1,6 millj­arðar króna. Það þýðir að 28 pró­sent af rekstr­ar­tekjum sat eftir sem slíkur hagn­aður. Loðnu­veiðar, sem höfðu ekki átt sér stað tvö ár á undan, vigt­uðu þungt í þeirri afkomu.

Aflaheimildir verðmætasta eignin

Eignir Síld­ar­vinnsl­unnar eru metnar á sam­tals 74,4 millj­arðar króna, skuldir 26,2 millj­arða króna og eigið fé sam­stæð­unnar var 48,2 millj­arðar króna.

Útgerð­ar­fé­lagið er að stærstum hluta í eigu Samherja og Kjálka­ness, félags í eigu fjöl­skyld­una sem á útgerð­ar­fyr­ir­tækið Gjögur, sem eiga sam­tals 54,37 pró­sent.

[links]Verð­mætasta bók­færða eignin sem Síld­ar­vinnslan heldur á eru afla­heim­ildir. Þær eru bók­færðar á 34 millj­arða króna. Ef miðað er við mark­aðsvirði kvóta, út frá síð­ustu gerðu við­skiptum með afla­heim­ildir sem dótt­ur­fé­lag Síld­ar­vinnsl­unnar gerði, þá er ætti mark­aðs­verð allra afla­heim­ilda sem úthlutað hefur verið að vera 1.195 millj­arðar króna. Miðað við Síld­ar­vinnslan og dótt­ur­fé­lög hennar haldi á 7,7 pró­sent af úthlut­uðum kvóta, sam­kvæmt síð­ustu birtu upp­lýs­ingum Fiski­stofu, þá má ætla að mark­aðsvirði hans sé 92 millj­arðar króna. Eða 58 millj­örðum krónum yfir bók­færðu virði.

Til að setja þessa tölu í betra sam­hengi þá má nefna að heild­ar­mark­aðsvirði Síld­ar­vinnsl­unnar er 119 millj­arðar króna. Upp­lausn­ar­virði kvót­ans sem félagið heldur á er því næstum 80 pró­sent af mark­aðsvirði Síld­ar­vinnsl­unnar.

Afhending hlutabréfa til starfsmanna

Í árs­hluta­upp­gjör­inu er einnig greint frá því að skrán­ing við sér­fræði­þjón­ustu vegna hluta­fjár­út­boðs Síld­ar­vinnsl­unnar í maí, þar sem 26,3 pró­sent hlutur í félag­inu var seldur og það síðan skráð á markað, hafi numið um 120 millj­ónum króna.

Auk þess er til­greint að gjald­færður launa­kostn­aður vegna afhend­ingu eigin hluta­bréfa til starfs­manna hafi numið um 325 millj­ónum króna hjá sam­stæð­unni. Það hafi verið bæði um að ræða afhend­ingu bréfa til starfs­manna og launa­bónus egna skatta­á­hrifa þeirra.

Heild­ar­gjald­færsla við útboðið sem færð var í rekstr­ar­reikn­ing vegna aðkeyptrar sér­fræði­þjón­ustu, afhend­ingu hluta­bréfa til starfs­manna og launa­bónusa svo að þeir starfs­menn þyrftu ekki að greiða skatt af þeim hluta­bréfum nam því sam­tals um 445 millj­ónum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár