Formaður dómnefndar gerir athugasemd við aðfinnslu ráðherra

Formaður dóm­nefndar sem mat hæfi umsækj­enda um hér­aðs­dóm­ara­emb­ætti segir að nefndin hafi ekki verið full­skipuð fyrr en 13. októ­ber. Því hafi sex vikna frestur hennar runnið út síðar en ráð­herra haldi fram. Þá hafi fjöldi umsækj­enda verið meiri en áður.

Jakob R. Möller, fomaður dómnefndarinnar.
Jakob R. Möller, fom­aður dóm­nefnd­ar­innar. Mynd: Aðsend

Jakob R. Möller, for­maður dóm­nefndar sem fjall­aði um hæfi umsækj­enda um hér­aðs­dóm­ara­emb­ætti, segir að frestur nefnd­ar­innar til að skila umsögn sinni hafi ekki byrjað fyrr en 13. októ­ber 2017, þegar nefndin var full­skipuð. Því hafi sex vikna frestur hennar til að skila umsögn ekki verið lið­inn fyrr en 24. nóv­em­ber 2017. Auk þess sé gert ráð fyrir því í reglum um starf­semi dóm­nefnd­ar­innar að frestur hennar til að skila umsögn geti orðið lengri ef sér­stakar aðstæður valda því, svo sem mik­ill fjöldi umsækj­enda. Í þessu til­felli hafi umsækj­endur verið 41, eða veru­lega mun fleiri en áður þegar emb­ætti dóm­ara hafa verið aug­lýst til umsóknar.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, settur dóms­mála­ráð­herra, skip­aði í dag þá átta sem dóm­nefndin hafði talið hæf­asta í emb­ætti hér­aðs­dóm­ara í átta dóm­ara­emb­ætti.

Að lok­inni skipun sendi hann bréf til Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra þar sem hann kom á fram­færi athuga­semdum um verk­lag og reglur um veit­ingu dóm­ara­emb­ætta. Í bréf­inu segir meðal ann­ars: „Aug­lýs­ing fyrir umræddar stöður var birt 1. sept­em­ber 2017 og rann umsókn­ar­frestur út 18. sama mán­aðar. Samkvæmt 9. gr. reglna nr. 620/2010 átti dóm­nefndin að skila um sögn um umsækj­endur innan sex vikna frá þeim tíma, eða 30. októ­ber sama ár. Nefndin skil­aði hins vegar ekki umsögn sinni fyrr en 22. des­em­ber 2017, eða rúmum þremur mán­uðum eftir að umsókn­ar­frestur rann út.“

Jakob gerir athuga­semd við þessa aðfinnslu og bendir á að í umræddri 9. grein þeirra reglna sem vísað sé til sé til­tekið að dóm­nefndin skuli skila umsögn umsækj­endur innan sex vikna frá því að umsókn­irnar bár­ust henni. Auk þess standi þar að sá frestur geti „ orðið lengri ef sér­stakar ástæður valda því svo sem mik­ill fjöldi umsækj­enda o.þ.h.“

Að sögn Jakobs var dóm­nefndin ekki full­skipuð fyrr en 13. októ­ber og því voru sex vikur ekki liðnar frá því að henni bár­ust umsókn­irnar fyrr en 24. nóv­em­ber. „Umsækj­endur voru nú 41, eða til veru­legra muna fleiri en fyrr og skýrir það að mestu töf á afgreiðslu umsagnar. Fleira kom þó til, sem settur dóms­mála­ráð­herra getur ekki um, sjálf­sagt af skilj­an­legum ástæðum,“ segir Jakob.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár