Portrettmyndir Obama-hjónanna gera víðreist um Bandaríkin

Aðsókn­ar­met var slegið í National Portrait Gallery í Washington D.C. eftir að opin­berar por­trett­myndir Obama-hjón­anna bætt­ust í saf­n­eign­ina árið 2018. Nú eru mynd­irnar á leið í 11 mán­aða reisu vítt og breitt um Banda­ríkin.

Frá vígslu málverkanna í febrúar árið 2018. Síðan þá hafa þau ekki verið sýnd hlið við hlið.
Frá vígslu mál­verk­anna í febr­úar árið 2018. Síðan þá hafa þau ekki verið sýnd hlið við hlið. Mynd: EPA

Í dag gefst gestum Art Institue of Chicago kostur á að berja Obama hjónin augum eða í það minnsta opin­berar por­trett­myndir sem mál­aðar voru af þeim hjónum eftir að emb­ætt­is­tíð Barracks Obama lauk. Safnið í Chicago er fyrsti við­komu­staður af fimm í ell­efu mán­aða langri reisu sem mál­verkin eiga nú fyrir höndum en þau hanga alla jafna uppi í National Portrait Gallery (NPG) í höf­uð­borg Banda­ríkj­anna, Washington D.C., en safnið er eitt af söfnum Smith­son­ian stofn­un­ar­innar.

Þetta er jafn­framt í fyrsta sinn síðan mynd­irnar voru afhjúpaðar árið 2018 sem þær eru sýndar hlið við hlið. Mynd Barracks hefur verið hluti sýn­ingar í NPG sem sam­anstendur af myndum af for­setum Banda­ríkj­anna. Mynd Michelle hefur aftur á móti verið sýnd við hlið ann­arra mynda af for­seta­f­rúm.

Í umfjöllun Washington Post segir að aðsókn­ar­met hafi verið slegið í NPG eftir að por­trett­mynd­unum var komið fyrir í sýn­ing­ar­sölum þess árið 2018 en það ár sóttu 2,3 millj­ónir gesta safnið heim, milljón fleiri en árið áður. Gestir safns­ins árið 2019 voru alls 1,7 millj­ónir.

„Margt fólk heim­sótti National Portrait Gallery í fyrsta sinn í kjöl­far þeirrar athygli sem por­trettin nutu. Fólk kom til þess að sjá mynd­irnar en dvaldi svo í safn­inu til þess að skoða allt hitt,“ er haft eftir Kim Sajet, safn­stjóra NPG, í frétt Artnet News. Vonir standa til að sú hylli sem mynd­irnar njóta muni trekkja fólk að á söfn­unum þar sem mynd­irnar verða sýndar.

Forsetahjónin fóru á sitt fyrsta stefnumót í safninu

Líkt og áður segir staldra mynd­irnar fyrst við í Art Institute of Chicago. Það má segja að það sé við­eig­andi enda er Michelle fædd og upp­alin í borg­inni og Barrack hefur búið þar stóran hluta ævi sinnar. Fram kemur í umfjöllun Washington Post að Obama hjónin hafi heim­sótt Art Institute of Chicago á sínu fyrsta stefnu­móti. Starfs­fólk safns­ins í Chicago á von á miklum fjölda gesta en nú þegar er svo gott sem upp­selt á sýn­ingu safns­ins út júní.

Því næst halda mynd­irnar til New York þar sem þær verða til sýnis í Brooklyn Museum. Næsti við­komu­staður þar á eftir er Los Angeles County Museum of Art, þá fara mynd­irnar í High Museum of Art í Atlanta og að lokum verða mynd­irnar sýndar í Museum of Fine Arts í Houston.

Sýn­ing­ar­stað­irnir voru meðal ann­ars valdir vegna teng­inga við for­seta­hjónin ann­ars vegar og við lista­menn­ina hins vegar. Kehinde Wiley sem mál­aði mynd­ina af Barrack er fæddur í Los Angeles en starfar nú í Brooklyn en Amy Sherald sem mál­aði Michelle ólst upp í Georgíu ríki og stund­aði sitt list­nám í Atlanta.

Alls verða mynd­irnar á flakki í um ell­efu mán­uði en þær munu verða til sýnis á hverjum við­komu­stað í um tvo mán­uði. Eftir að reis­unni lýkur næsta sumar halda þær svo heim á leið til höf­uð­borg­ar­innar. „Við munum sakna þeirra. Við höfðum heyrt af því að fólk hafði ráð­gert að fara í frí til Washington bara til að sjá mynd­irnar,“ segir Sajet safn­stjóri NPG við Washington Post. „Við munum halda veg­lega veislu til að fagna heim­komu þeirra í júní árið 2022.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

obama

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár