Samið í deilu sjómanna og útgerða – verkfalli ekki aflýst strax

Sjó­manna­sam­band Íslands og Félag vél­stjóra og málm­tækni­manna gengu að kjara­samn­ingum við Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi í nótt. Verk­falli sjó­manna verður ekki aflýst fyrr en sjó­menn hafa greitt atkvæði um samn­ing­inn.

Uppfært klukkan 8:13

Samn­ing­ar náð­ust í kjara­deilu sjó­manna og útgerð­ar­fyr­ir­tækja á þriðja tím­an­um í nótt, að því er segir á mbl.is. Hafði samn­inga­fund­ur sjó­manna og Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi þá staðið yfir í Karp­hús­inu síðan klukk­an 22 í kvöld.

Fund­ur­inn hófst að lokn­um fund­um deilu­að­ila með Þor­gerði Katrínu Gunn­ars­dótt­ur, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, og starfs­mönn­um ráðu­neyt­is­ins, þar sem ráð­herra hafði lagt fram mála­miðl­un­ar­til­lögu. Samn­ingur sjó­manna og útgerð­ar­manna byggir hins vegar ekki á til­lögum Þor­gerðar Katrínar.

Verkfall sjó­manna hófst 14. des­em­ber og hefur því staðið yfir í meira en tvo mán­uði. Því verður ekki aflýst strax heldur vilja samn­inga­menn sjó­manna að nýr kjara­samn­ingur verði sam­þykktur í atkvæða­greiðslu meðal sjó­manna áður en haldið verður aftur til veiða. Ráðgert er að nið­ur­stöður úr atkvæða­geiðsl­unni muni liggja fyrir ei síðar en á sunnu­dags­kvöld.

Samkvæmt til­kynn­ingu frá Samtökum fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) náð­ist sátt um breyt­ingu á olíu­verðsvið­miði, end­ur­gjalds­laust fæði, að útgerðir láti sjó­mönnum í té allan öryggis- og hlífð­ar­fatnað, bætta fram­kvæmd í fjar­skiptum, sér­staka kjara­skrár­upp­bót og að heild­ar­end­ur­skoðun fari fram á samn­ing­unum á samn­ings­tím­anum.

Félag vél­stjóra og málm­tækni­manna (VM) und­ir­rit­aði samn­ing við sama til­efni enda tók þátt í kjara­við­ræð­unum með sjó­manna­hreyf­ing­unni. Samn­ing­arnir eru hins vegar ekki þeir sömu.

Konráð Alfreðs­son, vara­for­maður Sjó­manna­sam­bands Íslands segir ekk­ert eitt hafa orðið til þess að samn­ingar tók­ust. „Menn töl­uðu bara vel saman og náðu samn­ingi,“ er haft eftir honum á vef RÚV. Hann segir til­boð ráð­herra ekki hafa gengið nógu langt til þess að ríkið hafi getað orðið aðili að samn­ingnum og þess vegna hafi útgerðin tekið stærri hluta á sig.

Mikill þrýst­ingur hefur verið á stjórn­völd und­an­farna daga að gefa sjó­mönnum skatta­af­slátt af dag­pen­ingum og fæð­is­kostn­aði en ráða­menn höfðu ítrekað hafnað því að slíkt kæmi til greina. Þor­gerður Katrín þakk­aði sjó­mönnum og útgerð­ar­mönnum fyrir á Twitter í nótt og sagði mönnum að drífa sig í að ná í loðn­una, enda fer hver að verða síð­astur að veiða af loðnu­kvót­anum áður en hún hrygnir og drepst.

Ríkið hefði sett lög, segir SFS

„Það er mik­il­vægt að við náðum samn­ingi því við þurftum að eyða þessu sam­bandi sem hefur verið síð­ustu ár og ára­tugi þar sem kjara­bar­átta sjó­manna hefur meira og minna alltaf endað í lögum,“ er haft eftir Jens Garðari Helga­syni í frétt á vef mbl.is.

Jens Garðar segir að þegar deilu­að­ilar átt­uðu sig á því að stjórn­völd myndu ekki koma með lausn í deil­una sem hugn­að­ist sjó­mönnum og útgerð hafi allt kapp verið lagt á að klára samn­inga. Menn hafi haft á til­finn­ing­unni að ann­ars hefðu stjórn­völd sett lög á verk­fallið, segir Jens Garðar. Engir afar­kostir hafi hins vegar verið settir fram af hálfu sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. „Menn skynj­uðu það mjög sterkt að yfir­völd væru að missa þol­in­mæð­ina fyrir því að við næðum saman,“ er haft eftir Jens Garðari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár