FBI gerði húsleit hjá kosningastjóra Donalds Trump

Rannsókn banda­rískra stjórn­valda á meintu leyni­makki kosn­inga­bar­áttu Donalds Trump með rúss­neskum stjórn­völdum verður sífellt stór­tæk­ari.

Paul Manafort var kosningastjóri Donalds Trump á síðasta ári.
Paul Manafort var kosn­inga­stjóri Donalds Trump á síð­asta ári. Mynd: EPA

Banda­ríska alrík­is­lög­reglan FBI gerði óvænta hús­leit hjá Paul Manafort, fyrr­ver­andi kosn­inga­stjóra í kosn­inga­bar­áttu Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta, í lok síð­asta mán­aðar. The Washington Post greindi fyrst frá þessu.

Lög­reglu­full­trú­arnir eru sagðir hafa birst óvænt á heim­ili Manafort í Alex­andríu í Virginíu-ríki, með leit­ar­heim­ild. FBI lagði þar hald á skjöl og aðra muni. Heim­ild­ar­menn Washington Post er fólk sem þekkir til rann­sókn­ar­innar á meintu leyni­makki kosn­inga­bar­áttu Donalds Trump með rúss­neskum stjórn­völdum í aðdrag­anda for­seta­kosn­inga vest­an­hafs á síð­asta ári.

Alrík­is­full­trú­arnir knúðu dyra snemma morg­uns 26. júlí síð­ast­lið­inn, dag­inn eftir að Paul Manafort sjálfur hafði borið vitni af fúsum og frjálsum vilja fyrir leyni­þjón­ustu­nefnd öld­unga­deildar banda­ríska þings­ins.

Tals­maður Mana­forts stað­festi við fjöl­miðla að lög­reglan hafi lagt hald á gögn á heim­ili kosn­inga­stjór­ans. Manafort er sagður hafa aðstoðað við leit­ina á heim­ili hans.

Sótti fundinn með rússneska lögmanninum

Paul Manafort sat fund­inn fræga með rúss­neska lög­mann­inum Nataliu Ves­elnit­ska­ya fyrir hönd kosn­inga­bar­áttu Trumps ásamt syni for­seta­fram­bjóð­and­ans, Donald Trump yngri, og tengda­syni for­set­ans, Jared Kushner.

Manafort fékk einnig öll tölvu­bréfin sem Donald Trump yngri gerði opin­ber fyrr í sumar þar sem fund­ur­inn er skipu­lagður með það að mark­miði að fá upp­lýs­ingar frá rússum sem gætu skaðað for­seta­fram­boð Hillary Clinton, fram­bjóð­anda Demókra­ta­flokks­ins.

[links]Fund­ur­inn fór fram í Trump-turni í New York 9. júní 2016, tveimur vikum eftir að Don­ald Trump hafði tryggt sér útnefn­ingu Repúblik­ana­flokks­ins fyrir for­seta­kosn­ing­arn­ar. Efni fund­ar­ins er talið vera lyk­il­at­riði í svar­inu við meg­in­spurn­ingum þeirra sem rann­saka meint tengsl kosn­inga­bar­áttu Trumps við Rússa. New York Times segir hér vera komna fyrstu opin­beru vís­bend­ing­una um að í það minnsta ein­hverjir viðriðnir kosn­inga­bar­átt­una hafi verið ginn­keyptir fyrir hjálp frá Rúss­landi.

Ekki er víst að rúss­neski lög­mað­ur­inn, Natalia Ves­elnit­ska­ya, hafi reitt fram upp­lýs­ingar um Clint­on.

Sérstaki sak­sókn­ar­inn Robert Mueller fer með rann­sókn máls­ins af hálfu banda­rískra stjórn­valda. Mueller var ráð­inn til þess að rann­saka meint áhrif Rússa á banda­rísku kosn­ing­arnar á síð­asta ári og sam­skipti kosn­inga­bar­áttu Trumps við rúss­neska ráða­menn og umboðs­menn þeirra. Fyrir vikið hefur Mueller sætt gagn­rýni for­set­ans sem segir sög­urnar allar upp­spuna frá A-Ö, jafn­vel þótt sýnt hafi verið fram á ann­að.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár