Sonur Donald Trump um gögn gegn Hillary: „I love it“

Gögn sem New York Times hefur birt, sýna glögg­lega tengsl fram­boðs Donald Trump við yfir­völd í Rúss­landi.

Donald Trump yngri.
Donald Trump yngri. Mynd: EPA

Donald Trump jr., sonur Donald Trump, átti fund með lög­fræð­ingi með tengsl við rúss­nesk yfir­völd, og kemur fram í tölvu­póstum, sem New York Times hefur kom­ist yfir, að rúss­nesk yfir­völd hafi búið yfir gögnum um Hillary Clinton, fram­bjóð­anda Demókrata, sem gætu skaðað hana.

Fram kemur í tölvu­póst­unum, að inni­hald þess­ara gagna hafi verið borið undir Trump jr., og hann segir í svari sínu í tölvu­póst­unum: „If it’s what you say I love it“.

Sá sem er milli­ður í þessum sam­skiptum, sem áttu sér stað í júní í fyrra þegar kosn­inga­bar­áttan stóð sem hæst, var breskur maður, Rob Gold­stone, sem kom þeim skila­boðum til Trump að rúss­nesk yfir­völd væru að baki þeim árásum sem leiddu til þess að gögnin um Hillary, þar á meðal póstar yfir­manna fram­boðs hennar, komust í dags­ljósið.

Trump hefur í til­kynn­ingu sagt að hann hafi lýst því yfir, að það væri gott ef „eitt­hvað“ gæti skaðað fram­boð Hillary, en hann hefur neitað því að hafa vitað af tengslum rúss­neskra yfir­valda við ganga­lek­ana og tölvu­árás­irnar.

Þessi gögn sem New York Times hefur nú birt, virð­ast benda til þess, að hann hafi vitað hvað væri á ferð­inni, þar á meðal að rúss­nesk yfir­völd væru á bak við tölvu­árás­irnar á Hillary. Með það fyrir augum að hjálpa Trump að verða for­seti Banda­ríkj­anna.

Trump Banda­ríkja­for­seti hefur sagt að rann­sóknin á tengslum fram­boðs Trumps við rúss­nesk yfir­völd sé „algjör­lega úr takti við raun­veru­leik­ann“ og í henni felist „norna­veiðar“ gagn­vart þeim sem rann­sóknin bein­ist nú að. 

Alrík­is­lög­reglan FBI, banda­ríska leyni­þjón­ustan CIA og síðan Banda­ríkja­þing sjálft, eru að rann­sókn tölvu­árásir Rússa og tengsl þeirra við kosn­ing­arn­arnar í fyrra. Rann­sókn­irnar eru í fullum gangi, og ekki ljóst hvenær þeim mun ljúka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár