Fjölbreyttir samgöngumöguleikar í vaxandi borg

Lundúnir, höf­uð­borg Bret­lands, er í stöð­ugum vexti og um miðjan febr­úar mun íbúa­fjöldi borg­ar­innar ná 8,6 millj­ónum sem er mesti fjöldi frá árinu 1939. Hinn vax­andi hópur borg­ar­búa gerir síauknar kröfur um fjöl­breytta og hent­uga ferða­máta til að koma sér á milli staða. Borg­ar­yf­ir­völd hafa komið til móts við bæði borg­ar­búa og ferða­menn með því að bjóða upp á margar öfl­ugar leiðir til ferða­laga innan borg­ar­innar. Þar má nefna bætt strætó­kerfi, víð­femt lest­ar­kerfi bæði neðan- og ofanjarðar, ásamt auk­inni þjón­ustu við hjóla­fólk – en nú í vik­unni var kynnt áætlun um mikla fjölgun hjóla­vega í borg­inni.

Strætó eitt af einkennum borgarinnar


Þeir sem heim­sóttu Lundúnir fyrir alda­mótin síð­ustu muna vel eftir hinum sjar­mer­andi Routemaster stræt­is­vagni sem hefur verið eitt af ein­kennum borg­ar­innar ásamt rauða síma­klef­anum og svarta leigu­bílnum (Hackney carriage). Hoppa mátti upp í vagn­inn að aftan og út aftur þegar hent­aði. Eftir að Routmaster vagn­inn hvarf af götum borg­ar­innar árið 2005 voru ýmsar teg­undir tvegga hæða vagna sem þjón­uðu íbúum borg­ar­innar, en eng­inn þeirra með hurð að aftan sem bauð upp á það frelsi að kom­ast inn og út án afskipta vagn­stjór­ans.

Nýr Routemaster strætó á götuna


Þegar Boris Johnson bauð sig fram til borg­ar­stjóra í Lundúnum árið 2008 lof­aði hann að efla strætó­sam­göngur ásamt því að halda hönn­un­ar­sam­keppni um nýjan vagn til að þjóna borg­ar­búum enn betur. Úr því var bætt þegar hinn nýji Routemaster vagn, hann­aður af hinu þekkta Heatherwick Studio, var tek­inn í notkun árið 2012. Nú er það stefna borg­ar­yf­ir­valda að vagn­inn sé nýttur á sem flestum leiðum, en nokkur mis­mun­andi fyr­ir­tæki sjá um akstur stræt­is­vagna í borg­inni.

Nýi Routemaster vagn­inn er með hurð að framan og um sig miðjan, líkt og hefð­bundnir vagnar, en þar að auki er hann með hurð að aftan líkt og gamli vagn­inn sem opin er á mörgum leiðum. Vel þykir hafa tek­ist til með vagn­inn sem býr yfir loft­kæl­ingu, vand­aðri vín­rauðri inn­rétt­ingu og gull­litum hand­föngum. Þó hefur verið kvartað yfir því að loft­kæl­ingin sé ekki nægi­lega góð á heitum sum­ar­dögum, en í eldri vögn­unum gátu far­þegar opnað og lokað gluggum að vild.

[caption id="attachment_18767" align="aligncenter" width="640"] Hinn gamli og nýi Routemaster.[/caption]

Risa hjólahraðbraut á milli borgarhluta


Síðasta ára­tug­inn hefur það færst í auk­ana í Lundúnum að fólk hjóli í og úr vinnu. Um 170 þús­und stakar ferðir eru hjólaðar dag­lega innan borg­ar­markanna sam­kvæmt Peter Hendy sam­göngu­stjóra London. Þetta þykir afar hent­ugur ferða­máti þó slysa­tíðni sé enn sem komið er hærri en góðu hófi gegnir og er þar helst um að kenna að göt­urnar eru almennt ekki hann­aðar fyrir reið­hjól.

Hinn gamli og nýi Routemaster.
Hinn gamli og nýi Routemaster.

Borg­ar­yf­ir­völd hafa sett fram stefnu­mótun fyrir notkun reið­hjóla í borg­inni og sjá hjól­reiða­menn nú fram á bjart­ari tíma því í vik­unni var kynnt fram­kvæmda­á­ætlun fyrir sér­staka hjóla­vegi. Byggð verður eins konar hjóla­hrað­braut, sem mun ná frá vest­ur­hluta borg­ar­innar yfir í aust­ur­hlut­ann. Samtals verður veg­ur­inn tæpir 30 kíló­metrar og verður því ein lengsta hrað­braut fyrir hjól í Evrópu. Einnig verður gerður hjóla­vegur sem tengir norð­ur­hlut­ann við þann syðri, frá King’s Cross lest­ar­stöð­inni að Elephant and Castle stöð­inni.

[caption id="attachment_18774" align="aligncenter" width="641"] Hjól­reiða­maður í Lundúnum. Borg­ar­yf­ir­völd hyggj­ast koma til móts við þann sívax­andi fjölda sem not­ast við reið­hjól til að kom­ast ferða sinna í borg­inni.[/caption]

h_02548889 (1)
h_02548889 (1)

 

Bláu Boris hjólin


Árið 2010 voru hinn svoköll­uðu Boris hjól kynnt til sög­unnar til að auka fjöl­breytni í sam­göngu­málum, en form­lega nefn­ist þjón­ustan „Barclays Cycle Hire“. Gælu­nafnið er að sjálf­sögðu í höf­uðið á borg­ar­stjór­anum sem sjálfur er mik­ill hjóla­garpur. Notendum býðst að nota greiðslu­kort til að leigja hjól í sól­ar­hring, en hafa einnig mögu­leika á að skrá sig í lang­tíma­leigu þar sem hver not­andi fær eigin lykil.

Verk­efnið er sam­starf borg­ar­yf­ir­valda og Barclays bank­ans, sem er stærsti styrkt­ar­að­ili þess fram á mitt þetta ár. Opnast þá hugs­an­legt tæki­færi fyrir íslenska banka til að vekja aftur athygli á sér erlendis líkt og til dæmis var gert með mara­þon­hlaup í Skand­in­avíu á árunum fyrir banka­hrun.

Elsta neðanjarðarlestakerfi í heimi


Það er senni­lega ekki ofsögum sagt að neð­an­jarð­ar­lesta­kerfið, eða the Tube, sé öfl­ug­asti hlekk­ur­inn í sam­göngu­neti borg­ar­innar. Árið 2013 var því fagnað að 150 ár voru liðin frá því að kerfið var tekið í notkun, það fyrsta sinnar teg­undar í heim­inum. Á þeim tíma hefur leið­ar­kerfið þró­ast mikið og eru nú 270 stöðvar á 11 leiðum. Miðasala er nú orðið að mestu leyti í gegnum hin raf­rænu Oyster kort, en einnig stendur far­þegum til boða að nota snerti­laus greiðslu­kort og greiða þannig beint fyrir farið.

Farið verður út í mikla fjár­fest­ingu á næstu árum og hafa meðal ann­ars verið kynntir nýjir vagnar sem munu þjóna fjórum leiðum. Reiknað er með að nýju vagn­arnir verði fyrst teknir í notkun á Piccadilly lín­unni á árinu 2022, en hún tengir meðal ann­ars Heathrow flug­völl við borg­ina. Þá er rétt að nefna að síð­ustu ár og ára­tugi hafa mörg af hverfum borg­ar­innar sem gengið hafa í gegnum end­ur­nýjun og upp­bygg­ingu notið góðs af DLR- og Overground lest­unum sem keyra að mestu ofanjarðar. Í öllu því fram­kvæmda­ferli sem nú stendur yfir hafa sam­göngu­yf­ir­völd lagt áherslu á góða upp­lýs­inga­miðlun til almenn­ings á vef Tran­sport for London (TfL), með tölvu­pósti og á félags­miðlum.

[caption id="attachment_18775" align="aligncenter" width="640"] Neð­an­jarð­ar­lest­ar­kerfið í Lundúnum er það fyrsta sinnar teg­undar í heim­inum.[/caption]

Óvinir einkabílsins?


Borg­ar­yf­ir­völd hafa lagt mikið upp úr því að tak­marka bíla­um­ferð innan Lundúna. Rukkað er svo­kallað „Congestion Charge“ gjald fyrir bíla frá klukkan 7 til 18 sem í grunn­inn er um 2.300 krónur (11.5 pund) og er það fyrir þá sem vilja keyra innan aðal gjald­svæðis borg­ar­innar. Þá fellur stór hluti borg­ar­innar jafn­fram undir hið svo­kall­aða „Low Emission Zone“ sem ætlað er að draga úr mengun með því að tak­marka umferð stórra díselknú­inna far­ar­tækja. Kostn­aður við bíla­stæði er einnig nokkuð hár í sam­an­burði við til dæmis Reykja­vík, en í almenn stæði kostar klukku­tím­inn 800 krónur (4 pund).

Neðanjarðarlestarkerfið í Lundúnum
Neð­an­jarð­ar­lest­ar­kerfið í Lundúnum

Nú geta þeir borg­ar­búar sem vilja hafa aðgang að bíl við og við einnig gerst með­limir í bíla­klúbbum (sem dæmi má nefna Zipcar, Carplus og City Car Club) þar sem hægt er að leigja bíl í nágrenni við heim­ili eða vinnu­stað. Kostn­aður við leigu á bíl er frá um 1.000 krónum (5 pund) á klukku­tíma og fer þá eftir stærð bíls­ins og hvort bíll­inn er tekin á leigu á virkum degi eða um helgi. Að sama skapi nýta margir sér hefð­bundna leigu­bíla­þjón­ustu í bland við hina nýju Uber bíla, sem panta má og greiða auð­veld­lega í gegnum snjall­síma.

Fjöl­breyttir far­ar­kostir

Það er því nokkuð ljóst að allir ættu að geta fundið sér far­ar­kost við hæfi í borg­inni sem nú nálg­ast aftur metí­búa­fjölda árs­ins 1939. Að lokum má samt ekki gleyma því að ansi víða má kom­ast um borg­ina á tveimur jafn­fljótum – þegar þreytan segir til sín er svo lítið mál að hoppa inn um bak­hurð­ina á strætó eða næla sér í blátt Boris hjól til að kom­ast á áfanga­stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár