Segir formann Náttúruverndarsamtaka kjósa að snúa út úr yfirlýsingum

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra segir að Árni Finnsson, for­maður Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Íslands, kjósi að snúa út úr yfir­lýs­ingum hans. Það hafi bæði gerst eftir yfir­lýs­ingu Sig­mundar um lofts­lags­mál á Alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna á dög­unum, og einnig í fyrra.

„Þetta mis­skildi eng­inn, að ég tel, í New York þó að menn hafi séð tæki­færi í því að gera sér upp mis­skiln­ing hér heima, en það virð­ist reyndar vera orð­inn fastur liður,“ sagði Sig­mundur en Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, spurði hann um yfir­lýs­ingar hans um að Ísland hygg­ist draga úr útblástri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda um 40 pró­sent.

„Það var eng­inn slíkur mis­skiln­ingur á þessum fundi Sam­ein­uðu þjóð­anna þar sem allir sem þar voru saman komnir til að ræða þessi SDG-mark­mið svoköll­uðu gerðu sér fylli­lega grein fyrir því við hvað væri átt með þessu 40% mark­miði, enda er það vel þekkt, og ég tel nú reyndar að hátt­virtur þing­maður þekki það líka vel, og þeir sem hafa gert athuga­semd við þetta, við hvað er átt. Það er átt við sam­eig­in­legt mark­mið Íslands og ann­arra EES-landa um að draga úr losun þess­ara gróð­ur­húsa­loft­teg­unda um sem nemur 40% fyrir árið 2030,“ sagði Sig­mundur.

Katrín spurði einnig um það hvernig ætti að ná þessum mark­miðum.

Sig­mundur sagði mik­il­vægt að hafa í huga að draga þurfi úr notkun jarð­efna­elds­neytis og auka græna orku­nýt­ingu. Þar gætu Íslend­ingar komið sterkir inn á lofts­lags­ráð­stefn­unni í París í des­em­ber. Eitt stærsta verk­efnið væri að skipta út orku­gjöfum í sam­göngum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár