MMR kannaði viðhorf til úrslita landsleiksins: yfir helmingur telur að Ísland nái stigi

Yfir helm­ingur Íslend­inga telur að íslenska karla­lands­liðið í fót­bolta muni ná stigi í leiknum gegn Hollandi í kvöld, sam­kvæmt nýrri könnun sem MMR gerði.

MMR spurði: „hver heldur þú að úrslitin verði í leik karla­lands­liða Hollands og Íslands í knatt­spyrnu sem fram fer í Hollandi þann 3. sept­em­ber næst­kom­andi?“ 47,8 pró­sent þeirra sem svör­uðu telja að Hol­lend­ingar beri sigur úr býtum. 19,8 pró­sent telja að leiknum lykti með jafn­telfi og 32,3 pró­sent telja að Ísland vinni.


Karlar eru svart­sýnni á gengi Íslands en konur, en 54,8 pró­sent karla telja að Hol­lend­ingar vinni, en 39,3 pró­sent kvenna. 43,5 pró­sent kvenna telja að Ísland vinni en aðeins 23,3 pró­sent karla.

Þá er munur á svör­unum eftir tekjum, þeir sem hafa lægri heim­il­is­tekjur eru bjart­sýnni á gengi Íslands í kvöld. 44,6 pró­sent þeirra sem eru í tekju­lægsta hópnum telja að Ísland vinni leik­inn, en 22,7 pró­sent þeirra sem eru með 800 til 999 þús­und á mán­uði.

Stuðn­ings­menn rík­is­stjórn­ar­innar eru lík­legri til að telja að Ísland vinni leik­inn, en 36,2 pró­sent stuðn­ings­manna rík­is­stjórn­ar­innar telja að Ísland vinni, á móti 30,7 pró­sentum þeirra sem ekki styðja stjórn­ina.

37,2 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins telja að Ísland vinni og 37,5 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þá telja 35,7 pró­sent kjós­enda VG að Ísland beri sigur úr býtum. Stuðn­ings­menn ann­arra flokka voru svart­sýnni á sigur Íslend­inga.

1.023 ein­stak­lingar voru spurðir og 71,1 pró­sent þeirra tóku afstöðu og spáðu fyrir um úrslit leiks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár