Tími til kominn að breyta fóstureyðingarlögum á Íslandi

Heilbrigðisstarfsmenn segja fóstureyðingu mjög gildishlaðið orð og ekki eiga við.
Heil­brigð­is­starfs­menn segja fóst­ur­eyð­ingu mjög gild­is­hlaðið orð og ekki eiga við. Mynd: Birgir Þór

Tími er kom­inn til að huga að end­ur­mati á fóst­ur­eyð­ing­ar­lög­unum á Íslandi og láta þau sjón­ar­mið ráða för sem styðja nútíma­legt sjálf­ræði kvenna. Þetta kemur fram í grein fjög­urra reyndra heil­brigð­is­starfs­manna í nýjasta tölu­blaði Lækna­blaðs­ins.

Konur eru enn í þeirri aðstöðu form­lega að ef þær vilja binda endi á með­göngu þurfa tveir óskyldir aðilar, tveir læknar eða læknir og félags­ráð­gjafi, að sam­þykkja beiðni þeirra.

Þetta varð nið­ur­staðan í lögum um ráð­gjöf og fræðslu varð­andi kyn­líf og barn­eignir og um fóst­ur­eyð­ingar og ófrjó­sem­is­að­gerðir, sem voru sett árið 1975 á Alþingi og voru um margt fram­sýn lög. Lögin byggðu hins vegar á grunni laga um fóst­ur­eyð­ingar frá 1935, þar sem var ákvæði um að tveir læknar þyrftu að und­ir­rita grein­ar­gerð áður en fóst­ur­eyð­ing mætti fara fram. Í lög­unum árið 1975 var þessu breytt þannig að annar þess­ara tveggja óskyldu aðila mátti vera félags­ráð­gjafi þegar félags­legar ástæður væru að baki.

Það eru þau Jens A. Guð­munds­son dós­ent og læknir á kvenna- og barna­sviði Land­spít­al­ans, Ósk Ingv­ars­dóttir læknir á þró­un­ar­sviði heilsu­gæsl­unnar, Reynir Tómas Geirsson, pró­fessor og læknir á kvenna- og barna­sviði og Sóley S. Bender pró­fessor við hjúkr­un­ar­fræði­deild HÍ sem skrifa grein­ina og vekja athygli á þessu. 

„„Fóst­ur­eyð­ing“ er því miður mjög gild­is­hlaðið orð. „Þung­un­ar­rof“ lýsir betur því sem hér er af nauð­syn gert,“ segja þau meðal ann­ars í grein­inni. Flestir séu sam­mála um að lög­gjöfin verndar heilsu og jafn­vel líf kvenna og þung­un­ar­rofi fylgi lítil vand­kvæði eða áhættur ef rétt sé staðið að.

„Sjálfs­á­kvörð­un­ar­réttur fólks í sínum einka­málum end­ur­speglar við­horf sam­tím­ans, og þar með til barn­eigna, fjöl­skyldu­mynd­unar, kyn­hegð­unar, hvers kyns lækn­is­með­ferðar, – jafn­vel til lífsloka,“ skrifa þau jafn­framt.

Fóst­ur­eyð­inga­lögin og túlkun þeirra hafi á síð­ustu ára­tugum mátt fella að almennum við­horfum um rétt konu til að ákveða hvenær barn­eign er tíma­bær og hægt hafi verið að finna nýjum aðferðum við þung­un­ar­rof með lyfja­með­ferð rými innan lag­anna. Fram­kvæmdin sé þannig í dag að mat konu á eigin aðstæðum og vilji hennar er virtur þegar óskað er eftir þung­un­ar­rofi. Formlega þarf samt ennþá sam­þykki ann­arra. Nú eru 40 ár liðin frá setn­ingu lag­anna og Jens, Ósk, Reynir og Sóley segja að nú megi huga að end­ur­mati.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár