Hlutfall fyrstu kaupenda á fasteignamarkaði hefur aldrei verið jafn hátt

Í nýrri mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar segir að það sem af er ári hefur hlut­fall fyrstu kaup­enda verið nærri 30 pró­sentum. Fast­eigna­mark­að­ur­inn er einkar líf­legur nú um stundir en umsvif eru að jafn­aði minni á sumrin en á öðrum árs­tíðum.

Í skýrslu HMS segir að fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hafi hækkað um 5,1 prósent milli ára.
Í skýrslu HMS segir að fast­eigna­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi hækkað um 5,1 pró­sent milli ára. Mynd: Bára Huld Beck

Hlutfall fyrstu kaup­enda af fast­eigna­við­skiptum var nærri 30 pró­sent á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins og um 28 pró­sent á öðrum árs­fjórð­ungi en hlut­fallið hefur aldrei verið hærra svo langt aftur sem gögn ná. Þetta kemur fram í nýrri mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) sem kom út í dag.

Í skýrsl­unni segir að hlut­fall fyrstu kaup­enda hafi marg­fald­ast frá árinu 2010 þegar það var í lág­marki. „Í kjöl­far efna­hags­hruns­ins má gera ráð fyrir að yngra fólk hafi ekki haft tök á að festa kaup á íbúð og hlut­fallið þá lágt vegna þess. Þegar hag­kerfið komst aftur á skrið eftir efna­hags­skell­inn má sjá hvernig hlut­fallið tók aftur að hækka,“ segir í skýrsl­unni.

Fast­eigna­verð hækkar yfir­leitt í takt við hag­sveifl­una sem gerir það að verkum að veð­rými heim­ila eykst. Það gerir svo mörgum for­eldrum kleift að lána afkvæmum sínum fyrir útborgun fyrstu kaupa, að því er fram kemur í skýrsl­unni. „Hins vegar gætu auknar heim­ildir til nýt­ingar á sér­eign­ar­sparn­aði til fast­eigna­kaupa og skarpar lækk­anir á vöxtum und­an­farna mán­uði hafa auð­veldað þessum hópi að festa kaup á eigin hús­næði,“ segir í skýrsl­unni um mögu­legar ástæður þess­arar þró­unar.

Mikil umsvif um þessar mundir

Fram kemur í skýrslu HMS að umsvif á fast­eigna­mark­aði eru mikil um þessar mundir. Þau umsvif eru sögð athygl­is­verð fyrir þær sakir að á sumrin eru umsvif fast­eigna­við­skipta að jafn­aði minni en á öðrum árs­tímum.

Samkvæmt skýrsl­unni var fjöldi þing­lýstra kaup­samn­inga í júlí nokkuð meiri en hann hefur verið í öðrum mán­uðum árs­ins og er fjölg­unin bundin við Reykja­vík. „Vís­bend­ingar eru um að afgreiðslu­tími þing­lýs­inga hafi auk­ist þó nokkuð á síð­ustu tveimur mán­uðum sem getur bent til þess að mæli­kvarð­inn fjöldi þing­lýstra kaup­samn­inga feli í sér van­mat á umsvifum á fast­eigna­mark­aði um þessar mundir,“ segir enn fremur í skýrsl­unni.

HMS fylgist einnig með fram­boði á íbúðum í sölu. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi verið um 2.000 íbúðir til sölu í maí en fjöldi þeirra sé nú um 1.700. Íbúðum í sölu hefur því fækkað um 15 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og annað eins í nágrenni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Á lands­byggð­inni hefur íbúðum í sölu fækkað um átta pró­sent á sama tíma­bili.

Fasteingaverð hækkar á ný

Í skýrsl­unni kemur fram að vísi­tala paraðra við­skipta gefi til kynna að fast­eigna­verð hafi und­an­farið verið að rísa í öllum lands­hlutum. „Síðustu mán­uði hefur hækkun fast­eigna­verðs verið hóf­leg víð­ast hvar á land­inu og framan af ári hægð­ist á hækk­un­ar­takt­inum en nú má sjá að leitni fast­eigna­verðs hefur tekið að hækka á ný,“ segir um verð­þró­un­ina í skýrsl­unni.

Tólf mán­aða hækkun fast­eigna­verðs í júní hafi verið mest í nágrenni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, þar hafi vísi­tala paraðra við­skipta hækkað um rétt tæp átta pró­sent að nafn­virði á milli ára. Á milli mán­að­anna maí og júní mæld­ist hækk­unin 1,7 pró­sent. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði íbúða­verð að nafn­virði um 5,1 pró­sent á milli ára. Þar var hækk­unin hins vegar mest á milli mán­aða en í júní hækk­aði fast­eigna­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um 3,3 pró­sent frá því í maí. Árs­hækkun á lands­byggð­inni nam 3,5 pró­sentum en á milli mán­að­anna maí og júní lækk­aði íbúða­verð á lands­byggð­inni um 2,5 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár