Þegar Danir ætluðu að gera Bandaríkjamönnum greiða og grípa Snowden

Dul­ar­full flug­vél lenti á Kastrup flug­velli í Kaup­manna­höfn í júní 2013. Banda­ríkja­menn vildu láta hand­sama Edward Snowden ef hann myndi lenda í Danmörku.

Sunnu­dag­inn 25. júní 2013 lenti lítil flug­vél á Kastrup flug­velli við Kaup­manna­höfn. Venju­lega þykir slíkt ekki í frá­sögur fær­andi enda fara hund­ruð flug­véla um Kastrup á degi hverjum. Nokkrir blaða­menn, sem voru á flug­vell­inum í allt öðrum erinda­gjörðum veittu vél­inni athygli þegar hún lenti og þótti hálf dul­ar­fullt að henni var, strax eftir lend­ingu, ekið á sér­stakt svæði á flug­vell­inum. Þetta svæði er yfir­leitt ekki notað nema í sér­stökum til­vikum og ein­kenni­legt þótti blaða­mönn­unum að bif­reið frá lög­regl­unni ók fast upp að vél­inni þannig að engin leið var að sjá hvort ein­hverjir, og þá hverjir, færu frá borði. Þótt blaða­menn­irnir spyrð­ust fyrir fengu þeir engin svör. Löngu síðar kom í ljós að ferða­lag þess­arar flug­vélar var dul­ar­fullt í meira lagi.

Keypti tíu flugmiða

Þremur dögum fyrr, 22. júní, hafði maður að nafni Edward Snowden verið staddur í Hong Kong og keypt þar tíu flug­miða. Til Indlands, Rúss­lands og átta ann­arra áfanga­staða. Edward þessi Snowden var á flótta og til­gang­ur­inn með að kaupa svona marga flug­miða var að villa um fyrir banda­rísku leyni­þjón­ust­unni sem var að elt­ast við hann. Hún vildi nefni­lega hafa hendur í hári hans. Honum tókst reyndar, óvilj­andi, að villa um fyrir leyni­þjón­ust­unni. Réttara væri kannski að segja að hún hafi villt um fyrir sjálfri sér. Leyni­þjón­ustan hafði, með full­tingi banda­rískra stjórn­valda, óskað eftir því við stjórn­völd í Hong Kong að maður að nafni Edward JAMES Snowden yrði kyrr­settur og hand­tek­inn. 

Það var þetta milli­nafn, James, sem varð til þess að Edward Snowden, með milli­nafnið Joseph, var ekki hand­tek­inn í Hong Kong og gat óáreittur farið um borð í flug­vél til Moskvu. Edward Joseph Snowden sagði síðar í við­tali að hann hafi vel vitað að hring­ur­inn væri far­inn að þrengj­ast ég reyndi bara að brosa og vera afslapp­aður þegar ég inn­rit­aði mig” Hann vissi ekk­ert um nafna­brenglið hjá banda­rísku leyni­þjón­ust­unni. Af mið­unum tíu sem Snowden hafði keypt í Hong Kong ákvað hann að nota mið­ann til Rúss­lands, nánar til­tekið til Moskvu. Þegar vélin frá Hong Kong lenti í Moskvu komst Snowden að því að banda­rísk stjórn­völd höfðu ógilt vega­bréf hans, meðan hann sat í flug­vél­inni.

Strandaður í Moskvu

Það að banda­rísk stjórn­völd höfðu ógilt vega­bréf Snowdens þýddi að hann komst hvergi. Á þessum tíma var ekki sér­lega kært með stjórn­völdum í Moskvu og Banda­ríkj­unum og þess vegna kom það nokkuð á óvart að banda­rísk stjórn­völd skyldu, með því að ógilda vega­bréfið, neyða rúss­nesk yfir­völd til að sitja uppi með Snowden.

Hvað hafði Snowden gert af sér?

Ástæða þess að Edward Snowden komst í heims­frétt­irnar og varð óvinur Banda­ríkj­anna númer eitt (eins og þar­lendir fjöl­miðlar köll­uðu hann) var að hann hafði „lekið” fjöl­mörgum upp­lýs­ingum um starf­semi banda­rísku þjóðar­ör­ygg­is­stofn­un­ar­innar NSA. Meðal ann­ars um að stofn­unin hefði fylgst með dag­legu lífi tug­þús­unda banda­rískra borg­ara, án þeirra vit­undar. Snowden hafði verið starfs­maður banda­rísku leyni­þjón­ust­unnar, CIA og þannig haft aðgang að marg­vís­legum upp­lýs­ingum sem að mati banda­rískra stjórn­valda vörð­uðu þjóðar­ör­yggi. Upp­lýs­ing­unum kom Snowden til sam­tak­anna WikiLeaks sem birtu þær á vef­síðu sinni.

Sótti um hæli í 21 landi

Edward Snowden var nú inn­lyksa í flug­stöð­inni í Moskvu. Þótt í sjálfu sér væsti ekki um hann ætl­aði hann ekki að gera flug­stöð­ina að heim­ili sínu. Hann sótti því um póli­tískt hæli í að minnsta kosti 21 landi, þar á meðal Rúss­landi. Stjórn­völd þar buðu honum hæli gegn því að hann myndi láta rúss­nesku leyni­þjón­ust­unni í té allar þær upp­lýs­ingar sem hann byggi yfir. Þessu til­boði hafn­aði Snowden. Nokkrum dögum síðar til­kynnti Vladimir Putin for­seti að Snowden væri ekki vel­kom­inn til Rúss­lands, upp­ljóstr­ar­inn dvaldi því áfram í flug­stöð­inni í Moskvu, komst hvergi.

Uppákoman með forseta Bólivíu

Þann 3. júlí 2013 var einka­þota bóli­víska for­set­ans Evo Morales, sem var á leið frá Moskvu til Bólivíu, neydd til að lenda í Vín í Aust­ur­ríki. Banda­rísk stjórn­völd töldu að Snowden væri um borð í vél­inni og Frakk­land, Portúgal og fleiri lönd neit­uðu um flug­leyfi (yfir­flugs­leyfi) í loft­rými sínu vegna þrýst­ings frá Banda­ríkja­mönnum. Snowden var ekki um borð í vél­inni en þessi upp­á­koma hleypti illu blóði í Rússa og Snowden var veitt tíma­bundið hæli í Rúss­landi, síðar var það leyfi fram­lengt til árs­ins 2017.

Danmörk og Snowden

Á meðan Edward Snowden stopp­aði í Hong Kong og ekk­ert var vitað um fyr­ir­ætl­anir hans hafði banda­ríska leyni­þjón­ustan sam­band við dönsk lög­reglu­yf­ir­völd. Banda­ríkja­menn töldu lík­legt að Snowden myndi ferð­ast til Kaup­manna­hafnar og vildu tryggja að hann yrði kyrr­settur þar og sendur rak­leiðis til Banda­ríkj­anna. Þremur dögum eftir að Snowden kom til Moskvu lenti flug­vélin sem getið var í upp­hafi þessa pistils í Kaup­manna­höfn. Þótt blaða­menn veittu henni athygli grun­aði þá ekki að hún ætti, ef til þess kæmi, að flytja Snowden til Banda­ríkj­anna. Vélin stóð á Kastrup í nokkra daga en þegar ljóst var að Snowden væri geng­inn Banda­ríkja­mönnum úr greipum fór hún aftur vestur um haf.

Svíar komast yfir bréf

Í byrjun des­em­ber á liðnu ári var í frétta­skýr­inga­þætti í sænska sjón­varp­inu, SVT, greint frá bréfi sem frétta­menn sjón­varps­ins höfðu kom­ist yfir. Bréfið sem var frá banda­ríska dóms­mála­ráðu­neyt­inu og leyni­þjón­ust­unni hafði verið sent til lög­reglu­yf­ir­valda í Danmörku, Svíþjóð, Finn­landi og Noregi. Í bréf­inu stóð að banda­rísk yfir­völd krefð­ust þess að Snowden yrði umsvifa­laust hand­tek­inn ef hann kæmi til ein­hvers áður­nefndra landa og Banda­ríkin myndu þá þegar í stað fara fram á fram­sal hans. Áður­nefnd flug­vél átti svo að flytja hann til Banda­ríkj­anna.

Danskir þingmenn krefjast svara

Eftir að sænska sjón­varpið, og síðar einnig norska sjón­varpið, NRK, greindu frá bréf­inu sem áður var getið kröfð­ust nokkrir danskir þing­menn þess að fá upp­lýs­ingar um þátt Dana og hvort danska stjórnin og lög­reglan hefðu sam­þykkt beiðni Banda­ríkja­manna. Þing­menn­irnir bentu á að hefði slík beiðni verið sam­þykkt bryti það í bága við mann­rétt­inda­sátt­mála sem Danmörk væri aðili að. „Getur það verið að Danmörk hafi ætlað sér að brjóta mann­rétt­indi til að þókn­ast Banda­ríkja­mönnum?” spurði Nikolaj Vill­um­sen þing­maður Ein­ing­ar­list­ans. Og krafð­ist svara. Fyrr­ver­andi og núver­andi ráð­herrar svör­uðu engu.

Danskir þing­menn sætta sig ekki við að ráð­herrar þegi, eða svari út og suður, og ætli þannig að humma óþægi­leg mál fram af sér. Þingmenn Ein­gar­list­ans, og einnig þing­menn ann­arra flokka, kröfð­ust þess aftur og aftur að fá svör við spurn­ingum um þátt dönsku stjórn­ar­innar varð­andi Snowden.

Síð­ast­lið­inn föstu­dag sendi Søren Pind dóms­mála­ráð­herra frá sér yfir­lýs­ingu þar sem frá því er greint að dönsk dóms­mála­yf­ir­völd hafi á sínum tíma heim­ilað lend­ingu banda­rískrar flug­vélar og að Snowden kæm­ist í hendur Banda­ríkja­manna ef hann kæmi til Dan­merkur.

Margir danskir þing­menn eru mjög ósáttir við fram­göngu danskra dóms­mála­yf­ir­valda og krefj­ast þess að fá nán­ari skýr­ingar og umræður um málið í þing­inu. Augljóst sé að dönsk stjórn­völd hafi ekki vílað fyrir sér að brjóta grund­vall­ar­mann­rétt­indi til þess að þókn­ast Banda­ríkja­mönnum, ef Snowden hefði komið til Dan­merkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár