Hefndarklámsfrumvarp lagt fram á Alþingi á ný

Þing­flokkur Bjartar fram­tíðar hefur lagt fram frum­varp til breyt­inga á almennum hegn­ing­ar­lögum í annað sinn. Breyt­ing­arnar snúa að hefnd­arklámi og refs­ingu þeirra sem flytja inn, aflar eða birtir ljós­myndum eða mynd­skeiðum sem inni­halda hefnd­arklálm.

Björt Ólafs­dóttir er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins en það var fyrst lagt fram í des­em­ber í fyrra og var tekið til fyrstu umræðu á Alþingi í febr­úar, nokkru áður en #FreeTheNipple-bylt­ingin varð í netheimum. Frum­varpið fékk hins vegar ekki frek­ari með­ferð í þing­inu og því er það lagt fram að nýju, án nokk­urra breyt­inga.


#FreeTheNipple-bylt­ingin gekk út á að fólk birti myndir af brjóstum sínum á sam­fé­lags­miðlum og hlaut gríð­ar­lega athygli hér heima og erlendis. Björt sagði í sam­tali við Ísland í dag í mars að mark­miðið með þess­ari sam­fé­lags­miðla­her­ferð væri að geng­is­fella hefnd­arklám. „Mér finnst brjóst ekk­ert til­töku­mál, þannig lagað séð , en sumum finnst það, og sumir nota brjósta­myndir af stelpum aðal­lega til þess að kúga þær og smána þær á sam­fé­lags­miðlum,“ sagði hún.


Í ræðu Bjartar, þegar hún mælti fyrir frum­varp­inu í febr­úar, benti hún á að netið sé „lýð­ræð­is­vett­vangur 21. ald­ar­innar“ og að það sé mik­il­vægt til þess að fólk geti nýtt tján­ing­ar­frelsi sitt. „Það hefur þó einnig sínar myrku hliðar, m.a. af því að á net­inu verða ein­stak­lingar, einkum konur, oft fyrir mjög kerf­is­bundnu ofbeldi.“


Enn fremur segir í grein­ar­gerð með frum­varp­inu: „Á þetta ekki hvað síst við þegar um er að ræða mynd eða mynd­skeið sem aug­ljóst er af efn­inu að ekki er ætlað til dreif­ingar, svo sem þar sem nekt kemur við sögu eða kyn­ferð­is­legir til­burðir eða ástand sem aug­ljóst er að ein­stak­ling­ur­inn á mynd­inni mundi ekki vilja að alþjóð eða heim­ur­inn sjái. Mik­il­vægt er að fólk taki ábyrgð og taki ekki þátt í að dreifa myndefni sem þessu.“


Alls hafa 17 laga­frum­vörp verið lög fram á nýju þingi sem sett var á þriðju­dag­inn. Sex þeirra eru frum­vörp stjórn­ar­and­stöð­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár