Hiti að færast í umræðuna í aðdraganda þingkosninga í Bretlandi

Þing­kosn­ingar í Bret­landi nálg­ast óðfluga, en þær verða haldnar í maí næst­kom­andi. Í vik­unni hafa skatta­málin verið rædd í þaula og þá sér­stak­lega í sam­hengi við upp­ljóstr­anir um skattaund­an­skot sem HSBC bank­inn aðstoð­aði við­skipta­vini sína með.

Ed Miliband, for­maður breska Verka­manna­flokks­ins, tal­aði um það nú um helg­ina að tvö kerfi væru við lýði í land­inu; eitt fyrir hina efna­meiri og annað fyrir hina efna­minni. Á sama tíma eru kosn­inga­málin að skýr­ast og hefur Nigel Farage, for­maður hins rót­tæka sjálf­stæð­is­flokks UKIP, viðrað hug­myndir sínar um að koma á einka­reknu heil­brigð­is­trygg­inga­kerfi í stað NHS, hinnar opin­beru heil­brigð­is­þjón­ustu.

Fjölbreyttar skoðanir rúmast innan flokksins


Ástæður þessa eru áhyggjur af því að með breyttri ald­urs­sam­setn­ingu bresku þjóð­ar­innar á næstu 10 árum muni núver­andi kerfi ekki þola álagið og þar af leið­andi þurfi að auka greiðslu­þátt­töku almenn­ings í kerf­inu. Ekki eru þó allir sam­mála for­mann­inum og heldur Louise Bours, tals­maður UKIP í heil­brigð­is­málum, því fram að flokk­ur­inn sé mun lýð­ræð­is­legri en aðrir flokkar og því rúmist flokk­ur­inn fjöl­breyttar skoð­anir á mála­flokknum.

Í jan­úar tal­aði hún um að hún teldi með­limi flokks­ins þurfi að ræða málið frekar. Farage var gestur þátt­ar­ins Newsnight á BBC síð­ast­liðið fimmtu­dags­kvöld þar sem hann ræddi aftur hug­myndir sínar um að draga þyrfti úr hlut­verki rík­is­ins. Þar minnti hann á þá skoðun sína að með auknum mann­fjölda í land­inu myndi NHS heil­brigð­is­þjón­ustan ekki þola álagið.

[caption id="attachment_20289" align="alignnone" width="641"] Nigel Farage for­maður UKIP.[/caption]

Ráðsettir silfurrefir og Aldi konur


Í úttekt blaðs­ins Independent í vik­unni var farið yfir helstu hópa kjós­enda og skoð­anir þeirra á kosn­inga­mál­unum. Íhalds­flokk­ur­inn og UKIP eru á eftir atkvæðum þeirra sem til heyra ald­urs­hópnum yfir sex­tugu, hinir „ráð­settu silf­ur­refir“, sem eru enn í vinnu eða komnir á eft­ir­laun og njóta þess að fá nið­ur­greidda hús­hitun ásamt ókeypis útvarps­gjaldi og fríum almenn­ings­sam­göngum. Þetta er hópur sem almennt hefur áhyggjur af auknum straumi inn­flytj­enda og Evr­ópu­málum.

Nigel Farage formaður UKIP.
Nigel Farage for­maður UKIP.

Þá er talað um svo­kall­aðar Aldi konur sem til­heyra hópi í Englandi sem áður gat verslað í versl­unum Marks & Spencer og Waitrose en hafa nú þurft að skera niður og eru í auknum mæli farnar að venja komur sínar í lág­vörðu­verðs­versl­anir á borð við Aldi. Konur í þessum hópi eru taldar vera lík­legir kjós­endur Verka­manna­flokks­ins eða Íhalds­flokks­ins.

Áreitti hipsterinn og unga fólkið


Samkvæmt úttekt blaðs­ins er hópur hinna áreittu hip­stera mjög mik­il­vægur Verka­manna­flokknum. Þeim hópi til­heyra mörg vel launuð pör sem oft á tíðum eiga börn og lifa í fjöl­breyttum hverfum inni í borgum frekar en í úthverf­unum. Sá hópur sem Græn­ingjar virð­ast ná best til er ungt fólk af staf­rænu kyn­slóð­inni sem er nýlega útskrifað úr háskóla en á í erf­ið­leikum með að finna vinnu. Þetta er hópur sem þrýstir á aukið aðgengi að ódýr­ara hús­næði og hækkun á lág­marks­launum.

Útgjöld til menntamála


Miliband hefur lofað að Verka­manna­flokk­ur­inn muni auka útgjöld til mennta­mála frá leik­skóla og fram að háskóla sem nemur verð­bólgu, en til­laga Íhalds­flokks­ins er að frysta útgjöld til mála­flokks­ins sem jafn­gildir í raun lækkun. Báðir flokkar hafa verið gagn­rýndir fyrir að huga ekki að þeirri stað­reynd að auk­inn fjöldi nem­enda kallar á aukin útgjöld til skóla.

[caption id="attachment_20291" align="alignnone" width="641"] Ed Miliband for­maður breska Verka­manna­flokks­ins.[/caption]

Ed Miliband formaður breska Verkamannaflokksins.
Ed Miliband for­maður breska Verka­manna­flokks­ins.

Full­trúar Verka­manna­flokks­ins hafa jafn­framt talað fyrir því að tryggja þurfi að kenn­arar séu með við­eig­andi menntun ásamt því að setja hámark á nem­enda­fjölda í fyrstu bekkjum grunn­skóla. Cameron kynnti áætlun Íhalds­flokks­ins í mennta­málum í byrjun mán­að­ar­ins þar sem hann kall­aði eftir auk­inni hag­kvæmni í rekstri skóla og tal­aði hann um mik­il­vægi þess að upp­ræta með­al­mennsku í rekstri skól­anna.

Fylgi Frjálslyndra demókrata í lágmarki


Í könnun um fylgi stjórn­mála­flokka, sem kynnt var á fimmtu­dag­inn, kemur fram að fylgi Frjáls­lyndra demókrata hefur ekki verið lægra í 25 ár. Ef gengið yrði til kosn­inga nú myndi flokk­ur­inn fá sex pró­sent atkvæða, meðal þeirra sem ætla sér að kjósa. Næstir eru Græn­ingjar með sjö pró­sent atkvæða og þá UKIP með 9 pró­sent. Nokkuð mjótt er á munum milli Verka­manna­flokks­ins og Íhalds­flokks­ins, sá fyrr­nefndi mælist með 36 pró­senta fylgi og hinn síð­ari 34 pró­sent.

Stóra spurn­ingin nú er því hvort David Cameron og flokkur hans nái að halda velli. Það mun skýr­ast á næstu vikum hvort kjós­endur velji í sam­ræmi við nið­ur­stöður þess­arar könn­unar og veiti Verka­manna­flokknum braut­ar­gengi eða velji Cameron áfram sem for­sæt­is­ráð­herra lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár