Miklu fleiri kaupa húsnæði í fyrsta sinn - áttföldun í Reykjavík

Þeim sem kaupa sitt fyrsta íbúða­hús­næði hefur fjölgað ár frá ári síð­ustu ár og fyrstu þrjá mán­uði árs­ins í ár var hlut­fall fyrstu kaup­enda orðið 22,9 pró­sent af heild­ar­fjölda íbúða­kaupa. Þetta kemur fram í sam­an­tekt sem Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman fyrir vel­ferð­ar­ráðu­neytið.

„Fjöldi fyrstu kaupa hefur meira en tvö­fald­ast milli áranna 2008 og 2014 og ríf­lega fjór­fald­ast miðað við árið 2009. Fjölgun fyrstu­kaupa­samn­inga hefur á eft­ir­hrunsár­unum tekið mun betur við sér á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en á lands­byggð­inni, einkum þó í Reykja­vík. Þar hefur fjöldi fyrstu­kaupa­samn­inga t.d. átt­fald­ast milli áranna 2009 og 2013.“

Gögnin byggja á upp­lýs­ingum frá öllum sýslu­manns­emb­ættum á land­inu frá byrjun árs 2008, en frá þeim tíma var farið að veita afslátt af stimp­il­gjöldum við fyrstu hús­næð­is­kaup. Þar með varð sá mögu­leiki fyrir hendi að fá fram upp­lýs­ingar um fjölda þeirra sem voru að kaupa í fyrsta sinn, segir í úttekt­inni.

„Árin næst banka­hrun­inu 2008, er fast­eigna­verð hafði hrunið um meira en 30% að raun­virði frá árunum fyrir banka­hrunið, hafði orðið mikil fækkun samn­inga og hlut­fall fyrstu kaupa var lægra en 10% árin 2008 og 2009,“ segir í úttekt­inni. Árin eftir þetta hefur samn­ingum hins vegar „hægt en bít­andi farið fjölg­andi“ og sam­hliða því hefur hlut­fall fyrstu kaupa hækkað veru­lega. „Í beinum tölum er fjölgun fyrstu­kaupa­samn­inga enn meira slá­andi, þeim fjölg­aði þannig úr 449 árið 2009 í 2050 árið 2014 og töl­urnar fyrir upp­haf árs­ins 2015 benda til áfram­hald­andi aukn­ingar fyrir árið í heild.“


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár