Stormasamt fyrsta ár forsetans Trump

Fyrsta ár Donald Trump í emb­ætti for­seta Banda­ríkj­anna er for­dæma­laust. Hann hefur mótað starf sitt á hátt, farið gegn hefðum og þess sem til er ætl­ast af emb­ætt­inu og fóðrar fjöl­miðla dag­lega með tístum og fram­göngu sem á sér engan líka.

Donald Trump hefur gegnt emb­ætti for­seta Banda­ríkj­anna í eitt ár. Það hefur ekki gengið áfalla­laust fyrir sig hjá for­set­anum og sjálf­sagt að tala um rús­sí­ban­areið.

Við­skipta­mó­gúll­inn og raun­veru­leika­stjarnan hefur átt fullt í fangi með erfið verk­efni, mörg sjálf­sköpuð, frá því hann var eið­svar­inn, kaldan og blautan jan­úar morg­unn fyrir ári síðan. Hegðan hans í emb­ætti hefur verið óvenju­leg og óhætt að segja að Trump hafi mótað það eftir sínu höfði. Ýmislegt hefur gengið á og hefur for­set­inn jafnt og þétt tapað stórum hluta ánægju­fylgis, þrátt fyrir að eftir standi enn stór hópur dyggra stuðn­ings­manna í fylg­is­mæl­ingum.

Hér er stiklað á stóru á þessu fyrsta ári Trump for­seta­tíð­ar­innar, af nægu eru að taka, og ekki skyldi gleyma bar­áttu hans við þing­menn Repúblik­ana um Obamacare, felli­byljum, óend­an­legu magni af und­ar­legum tístum, öllum þeim konum sem sakað hafa hann um kyn­ferð­is­lega áreitni og ofbeldi, fals­fréttum og spilltum fjöl­miðlum, enda­lausum manna­breyt­ingum í Hvíta hús­inu, skatta­lækk­anir og harð­ari inn­flytj­enda­stefnu.

Ómögu­legt er að segja til um hvort þetta fyrsta ár gefi for­smekk af því sem koma skal, en verði svo er ekki ólík­legt að sú heims­mynd sem við búum við í dag verði gjör­breytt árið 2020 þegar því líkur, ekki síst fyrir heima­menn.

Yfirlit yfir helstu viðburði fyrsta árs Trump í embætti

8. nóv­em­ber 2016 - Öllum að óvörum var Donald Trump kjör­inn for­seti Banda­ríkj­anna. Hann varð þar með sá fyrsti til að gegna því emb­ætti án þess að hafa áður gegnt opin­beru emb­ætti, starfað innan stjórn­sýsl­unnar eða banda­ríska hers­ins.

20. jan­úar 2017 - Trump tók form­lega við emb­ætti for­seta Banda­ríkj­anna. Eins og tíðkast flutti hann inn­setn­ing­ar­ræðu sína undir berum himni í við­ur­vist hund­ruð þús­unda manna. Tölu­verðar deilur urðu um áhorf­enda­fjöld­ann en upp­lýs­inga­full­trúi Hvíta húss­ins full­yrti að aldrei hefðu eins margir fylgj­ast með emb­ætt­is­tök­unni, bæði á vett­vangi og í gegnum sjón­varp eða tölvur. Þær full­yrð­ingar hafa síðan verið hraktar.

27. jan­úar - For­set­inn und­ir­rit­aði til­skipun um ferða­bann borg­ara sjö múslima­ríkja til Banda­ríkj­anna, með þeim rökum að þjóðar­ör­yggi væri í húfi, þrátt fyrir að þeir hefðu gildar vega­bréfs­á­rit­anir undir höndum. Til­skip­unin tók síðar nokkrum breyt­ingum. Lögbann var sett á til­skip­un­ina víða í ríkjum lands­ins.

28. jan­úar - Trump til­nefndi Neil Gorsuch í emb­ætti dóm­ara við Hæsta­rétt Banda­ríkj­anna. Öld­unga­deild þings­ins sam­þykkti til­nefn­ing­una þann 7. apríl og Gorsuch tók við emb­ætti þann 10. sama mán­aðar. Gorsuch er þekktur sem bók­stafs­fræði­maður, það er að stjórn­ar­skrá Banda­ríkj­anna skuli ávallt túlkuð með sama hætti og þegar hún var upp­haf­lega sett.

30. jan­úar - For­set­inn rak Sally Yates, þá starf­andi dóms­mála­ráð­herra, eftir að hún hafði efast um lög­mæti ferða­banns­ins. Yates hafði auk­in­heldur komið að rann­sókn ráðu­neyt­is­ins á Michael Flynn, fyrr­ver­andi þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafa Trump, og sam­skiptum hans við Rússa og meint ráða­brugg um hvernig væri hægt að slaka á við­skipta­þving­unum Banda­ríkj­anna gegn Rúss­landi.

13. febr­úar - Michael Flynn sagði af sér sem þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafi.

14. febr­úar - For­stjóri FBI, James Comey, snæðir kvöld­verð með Trump í Hvíta hús­inu. Samkvæmt vitn­is­burði Comey fyrir þing­inu síðar bað for­set­inn hann um að fella niður rann­sókn­ina gegn Flynn.

19. mars - Trump fór í sitt fyrsta ferða­lag sem for­seti til Sádí-Arabíu, Ísrael, Vatík­ans­ins, á fund NATO ríkj­anna í Belgíu og G-7 ríkj­anna á Ítalíu.

9. maí - Donald Trump rak James Comey, for­stjóra FBI. Til stóð að Comey bæri vitni fyrir þing­nefnd öld­ung­ar­deild­ar­þings tveimur dögum síðar.

17. maí - Robert Mueller skip­aður sak­sókn­ari til að fara með form­lega rann­sókn á tenglsum Rússa við fram­boð Trump sem og meintum afskiptum Rússa af for­seta­kosn­ing­unum.

8. júní - James Comey, fyrr­ver­andi for­stjóri FBI, bar vitni fyrir þing­nefnd öld­unga­deild­ar­innar þar sem hann stað­festi að for­set­inn gekk hart að honum að fella niður rann­sókn­ina á Flynn.

7. júlí - Fundaði með Vladimir Putin, Rúss­lands­for­seta, á G20 fundi í Þýska­landi. Fund­ur­inn stóð mun lengur en til stóð eða í tvo tíma þar sem for­set­arnir ræddu meðal ann­ars ásak­anir um að Rússar hafi reynt að hafa áhrif á for­seta­kosn­ing­arnar, stríðið í Sýrlandi og fleira.

12. ágúst - Átök brut­ust út í bænum Charlotteville í Virg­in­íu­ríki milli hvítra þjóð­ern­is­sinna, sem mót­mæltu því að fjar­lægja ætti styttu af her­for­ingj­anum Robert Lee á torgi í bænum, og þeirra sem mót­mæltu þjóð­ern­issinn­unum og lýstu yfir and­styggð á heðgan þeirra og mál­flutn­ingi. Þrír létu lífið. Viðbrögð for­set­ans við ofbeld­inu voru að lýsa yfir for­dæm­ingu á hatri og ofbeldi beggja hliða.

18. ágúst - Steve Bannon, einn helsti ráð­gjafi Trump og lyk­il­maður í kosn­inga­bar­áttu hans, hættir störfum í Hvíta hús­inu.

19. sept­em­ber - Í ræðu hjá alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna vís­aði Trump til Kim Jong Un, leið­toga Norður-Kóreu, eld­flauga­mann­inn eða „Rocket Man“ og lof­aði að ger­eyða Norður Kóreu, neyð­ist Banda­ríkin eða banda­menn þeirra til að verja sig gagn­vart árásum frá þeim.

2. des­em­ber - Michael Flynn, fyrr­ver­andi örygg­is­ráð­gjafi Trump ját­aði að hafa logið að FBI og að hann hyggð­ist vinna með yfir­völdum að frek­ari rann­sókn á tengslum Rússa við kosn­inga­bar­átt­una.

6. des­em­ber - For­set­inn við­ur­kenndi Jer­úsalem sem höf­uð­borg Ísraels. Ákvörð­unin fól í sér breyt­ingu á þeirri utan­rík­is­stefnu sem Banda­ríkin hafa fylgt und­an­farna ára­tugi allt frá stofnun Ísra­els­ríkis. Trump setti sam­hliða þess­ari ákvörðun sinni af stað vinnu við að færa banda­ríska sendi­ráðið í Ísrael frá borg­inni Tel Aviv til Jer­úsalem.

5. jan­úar - Bókin Fire and Fury kom út í Banda­ríkj­unum og olli miklum erf­ið­leikum fyrir for­set­ann. Bókin lýsti full­komnu van­hæfi for­set­ans og van­trausti allra í kringum hann og miklum átökum þeirra hópa sem mynda innsta hring for­set­ans, sem snú­ast um að hafa áhrif á ákvarð­anir hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár