Eygló segist hafa náð saman við Bjarna Ben um „ramma“ utan um húsnæðismál

Félags­mála­ráðu­neytið og fjár­mála­ráðu­neytið hafa „náð saman um ramma“ um frum­vörp félags­mála­ráð­herra um hús­næð­is­mál. Eygló Harð­ar­dóttir félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra greinir frá þessu í við­tali í Frétta­blað­inu í dag.

Þar ræðir Eygló um hús­næð­is­mál, en eins og Kjarninn hefur greint frá komst ekk­ert af þeim fjórum hús­næð­is­frum­vörpum sem Eygló og hennar ráðu­neyti hefur unnið að í gegnum þingið. Meðal ann­ars voru frum­vörp hennar um hús­næð­is­bóta­kerfi og félags­legt leigu­í­búða­kerfi gagn­rýnd af skrif­stofu opin­berra fjár­mála í fjár­mála­ráðu­neyt­inu auk þess sem Eygló og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra tók­ust á um málin opin­ber­lega.

„Fjár­mála­ráðu­neytið taldi okkur hafa dregið frum­vörpin til baka, sem var síðan leið­rétt. Við höfum, ásamt aðilum vinnu­mark­aðar, verka­lýðs­fé­lögum og sveit­arfé- lögum náð saman um ramma, frum­vörpin koma aftur í haust og verða afgreidd fyrir ára­mót,“ segir Eygló í Frétta­blað­inu. Kjarninn greindi frá því í vor þegar fjár­mála­ráðu­neytið sagði Eygló hafa dregið frum­vörpin til baka, sem hún vís­aði á bug.

„Við Bjarni erum ekk­ert alltaf sam­mála, sem er ekk­ert skrítið. Ég er félags­mála­ráð­herra og vil fá aukna fjár­muni í minn mála­flokk á meðan verk­efni fjár­mála­ráð­herra eru að gæta að rík­is­sjóði. Eðli máls­ins sam­kvæmt er hann áhuga­sam­ari um að lækka skatta og borga skuldir.“

Eygló seg­ist sann­færð um að henni tak­ist að gjör­breyta hús­næð­is­kerf­inu á Íslandi. „Lausnin er að bjóða upp á val­kosti. Og við búum til kerfi sem hentar hverju ein­asta heim­ili á Íslandi,“ segir Eygló.

Hún seg­ist þekkja ástandið á leigu­mark­aði vel af eigin raun og vegna ástands­ins sé verið að leggja áherslu á að fjölga leigu­í­búðum og ná niður leig­unni. „Svo finnst mér gíf­ur­leg ósann­girni gagn­vart þeim sem eru á leigu­mark­aði að húsa­leigu­bætur hafa verið tak­mark­aðri en það sem við höfum verið að gera fyrir þá sem kaupa.“

Vill gera betur við öryrkja og aldraða


Eygló ræðir einnig um stöðu aldr­aðra og öryrkja, sem margir hafi talað um að verði eftir nú þegar gerðir hafa verið nýir kjara­samn­ingar. „Við erum að taka risa­skref varð­andi hækkun bóta. Tæplega tíu millj­arðar koma auka­lega inn í almanna­trygg­ingar á næsta ári. Við ætlum okkur að gera betur. Það er nauð­syn­legt. Ég hef talað skýrt fyrir því,“ segir Eygló um það mál. Hún seg­ist líka sann­færð um að kjara­bæt­urnar verði raun­veru­legar. „Ég er sann­færð um það. Við erum með öfl­ugan hag­vöxt, lítið atvinnu­leysi og lága verð­bólgu. Þannig að þessi skref eru að skila sér í raun­veru­legri kaup­mátt­ar­aukn­ingu. Þetta er að mjakast og mik­il­vægt að fólk viti að við ætlum ekki að hætta. Með því að hafa afgang af rík­is­sjóði, borga niður skuldir okkar – það þýðir að við höfum meiri fjár­muni að setja inn í vel­ferð­ar­kerfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár