Frumvarp til að liðka fyrir brottvísunum hælisleitenda keyrt í gegn rétt fyrir þinglok

Stjórn­völd geta nú vísað hæl­is­leit­endum frá löndum á borð við Albaníu strax til baka þótt fólkið hafi kært ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar til kæru­nefndar útlend­inga­mála og/eða dóm­stóla. Frumvarp þess efnis var lagt fram á mánu­dag og sam­þykkt í morgun. Enginn tók til máls í þriðju umræðu og engum umsögnum var skilað.

Frumvarp frá meiri­hluta alls­herjar- og mennta­mála­nefndar Alþingis, sem girðir fyrir að kærur til­tek­ins hóps hæl­is­leit­enda fresti brott­vís­unum þeirra úr landi, var keyrt í gegnum Alþingi á fjórum dögum án þess að stofn­unum, sam­tökum eða hags­muna­að­ilum gæf­ist tími til að skila þing­nefnd­inni umsögnum um málið.

31 þing­maður greiddi atkvæði með frum­varp­inu, en í þeim hópi voru þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins ásamt Össuri Skarp­héð­ins­syni, þing­manni Sam­fylk­ing­ar­innar. Flestir þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar sátu hjá, en aðeins Birgitta Jóns­dóttir og Halldóra Mogensen úr Pírötum greiddu atkvæði gegn laga­breyt­ing­unni. 

Með frum­varp­inu, sem nú er orðið að lögum, var bráða­birgða­á­kvæði bætt inn í núgild­andi útlend­inga­lög þess efnis að fram til 1. jan­úar 2017 muni kæra í til­teknum málum umsækj­enda um alþjóð­lega vernd, þar sem Útlend­inga­stofnun hefur ákveðið að við­kom­andi skuli yfir­gefa landið, ekki fresta rétt­ar­á­hrifum þeirrar ákvörð­unar. Tekur ákvæðið til þeirra mála þar sem umsækj­andi kemur frá ríki á lista yfir örugg upp­runa­ríki, sbr. 3. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár