Ruth Bader Ginsburg er látin – Trump mun tilnefna nýjan dómara

Ruth Bader Ginsburg hefur verið lyk­il­dóm­ari í frjáls­lynda hluta Hæsta­réttar Banda­ríkj­anna allt frá því að hún var skipuð árið 1993. Þar greiddi hún atkvæði með mörgum stærstu mann­rétt­inda­úr­bótum sem rétt­ur­inn hefur fellt dóma um. Ginsberg lést í gær.

Ruth Bader Ginsburg.
Ruth Bader Ginsburg. Mynd: EPA

Ruth Bader Ginsburg, hæsta­rétt­ar­dóm­ari við Hæsta­rétt Banda­ríkj­anna, lést í gær 87 ára gömul. Banamein hennar var tengt krabba­meinsæxli í brisi sem hún greind­ist með fyrir um ári.

Ginsburg var skipuð í Hæsta­rétt Banda­ríkj­anna árið 1993 af Bill Clinton og til­heyrði frjáls­lynd­ari hluta rétt­ar­ins. Hún var þá önnur konan frá upp­hafi sem setið hefur sem dóm­ari við rétt­inn.

Ginsburg greiddi atkvæði með mörgum stærstu mann­rétt­inda­úr­bótum sem rétt­ur­inn hefur fellt dóma um á und­an­förnum ára­tugum. Þar ber helst að nefna í málum sem snúa að rétti kvenna til fóst­ur­eyð­inga, hjóna­bandi sam­kyn­hneigðra, kosn­inga­rétti, í mál­efnum inn­flytj­enda, heil­brigð­is­málum og þar sem tek­ist hefur verið á um jákvæða mis­munum á grund­velli kyn­þátta.

Ginsburg rataði í ítrekað á ýmsa lista yfir áhrifa­mestu konur heims á síð­ustu árum, og jafn­vel sög­unnar.

Pólitískur stormur á leiðinni

Andlát Ginsburg, tæpum sjö vikum fyrir kom­andi for­seta­kosn­ingar í Banda­ríkj­unum, hefur strax gert skipun næsta hæsta­rétt­ar­dóm­ara að kosn­inga­máli. Þegar Antonin Scalia, íhalds­samur hæsta­rétt­ar­dóm­ari við rétt­inn, lést í febr­úar 2016, ákváðu repúblík­anar í öld­unga­deild Banda­ríkja­þings að koma í veg fyrir að Barrack Obama gæti skipað nýjan dóm­ara í hans stað, en þeir voru þá sem nú með meiri­hluta þing­manna í deild­inni. Merrick Garland, sá sem Obama ætl­aði sér að skipa, varð því aldrei dóm­ari við Hæsta­rétt Banda­ríkj­anna.

[adspot]Rökin sem Mitch McConnell, leið­togi Repúblík­ana í öld­unga­deild­inni, setti fram vegna þess voru þau að rétt væri að leyfa almenn­ingi að kjósa um hvaða for­seti myndi skipa næsta dóm­ara í rétt­inn, en mönnun hans getur ræður miklu um það hvernig yfir­stand­andi menn­ing­ar­stríð íhalds­samra og frjáls­lyndra afla í Banda­ríkj­unum fer. Donald Trump skip­aði svo Neil Gorsurch í emb­ættið eftir að hann varð for­seti Banda­ríkj­anna og á fyrsta kjör­tíma­bili sínu hefur hann líka skipað Brett Kavan­augh sem dóm­ara við rétt­inn. Skipi Trump eft­ir­mann Ginsburg mun hann hafa skipað þrjá af níu dóm­urum við rétt­inn og fjöldi dóm­ara sem skip­aðir hafa verið að for­setum úr Repúblíkana­flokknum verður sex.

Hinsta ósk hennar að nýr forseti velji eftirmanninn

Nú er annað hljóð í skrokki McConnells, þrátt fyrir að mun styttra sé til kosn­inga nú en þegar að Scalia lést. Hann gaf það strax út í gær að kosið yrði um þann sem Trump myndi til­nefna, sem búist er við að ger­ist strax í næstu viku, í öld­unga­deild­inni áður en nýr for­seti verður eið­svar­inn í emb­ætti í jan­úar 2021. Í banda­rískum fjöl­miðlum er haft eftir fjöl­mörgum repúblík­önum að þeir voni að for­seta­kosn­ing­arnar geti nú farið að snú­ast meira um að velja eft­ir­mann Ginsburg, en minna um COVID-19, kyn­þátta­mis­munun og efna­hags­á­standið. Það eru allt atriði sem leitt hafa til þess að Trump er, sam­kvæmt könn­unum, nokkuð langt á eftir Joe Biden, for­seta­fram­bjóð­anda Demókra­ta­flokks­ins, í fylgi jafnt á lands­vísu og í helstu bar­áttu­ríkjum sem þurfa að vinn­ast til að ná fleiri en 270 kjör­mönnum og verða næsti for­seti Banda­ríkj­anna.

Biden hefur þegar sagt að hann vilji að næsti for­seti til­nefni næsta dóm­ara og barna­barn Ginsburg sagði við NPR að það hefði verið helsta ósk ömmu sinnar á dán­ar­beði sínu að eft­ir­maður hennar yrði ekki val­inn fyrr en nýr for­seti tæki við.

Donald Trump sagði, þegar honum var greint frá and­láti Ginsburg, að hún hefði lifð ótrú­legu lífi. „Hún var ótrú­leg kona hvort sem þú varst sam­mála henni eða ekki. Hún var ótrú­leg kona sem lifði ótrú­legu lífi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár