NOVIS braut aftur lög

Evrópska trygg­inga­fé­lagið NOVIS, sem yfir tíu þús­und Íslend­ingar hafa tryggt sig hjá, braut lög í fyrra sam­kvæmt eft­ir­lits­að­ilum, þar sem félagið stund­aði of áhættu­saman rekstur og hafði ekki nægi­legt gjald­þol.

Starf­semi trygg­inga­fyr­ir­tæk­is­ins NOVIS, sem selur trygg­ingar hér­lendis, var ekki í sam­ræmi við lög á tíma­bil­inu 30. júní til 17. ágúst í fyrra. Þetta kemur fram í ákvörðun sem eft­ir­lits­að­ili félags­ins birti í síð­ustu viku, en Seðla­bank­inn hefur gefið út sér­stakar upp­lýs­ingar til neyt­enda hér­lendis vegna hans.

Samkvæmt úrskurð­inum telur eft­ir­lits­að­il­inn, sem er Seðla­banki Slóvakíu, að NOVIS hafi ekki stundað starf­semi sína með var­færn­is­sjón­ar­mið að leið­ar­ljósi, þar sem ekki voru gerðar ráð­staf­anir til að draga úr áhættu­þáttum sem gætu haft skað­leg áhrif á fjár­hag félags­ins. Kostn­að­ur­inn við að greiða út þær skuld­bind­ingar sem félagið hafði gert var því van­met­inn, að mati eft­ir­lits­að­il­ans.

Enn fremur segir Seðla­banki Slóvakíu að NOVIS hafi ekki haft nægi­legt gjald­þol til að mæta þeim kröfum trygg­inga­fé­lög á Evrópska efna­hags­svæð­inu þurfa að fram­fylgja.

Trygg­ingar frá NOVIS hafa verið seldar íslenskum neyt­endum í gegnum dreif­ing­ar­að­ila hér­lendis, en stærstur þeirra er félagið Trygg­ingar og ráð­gjöf ehf.. Í sam­tali við Kjarnann sagði Hákon Hákon­ar­son, fram­kvæmda­stjóri félags­ins, að félagið hafi selt trygg­ingar frá NOVIS fyrir um tíu þús­und manns. Samkvæmt árs­reikn­inga­skrá keypti félagið þjón­ustu til end­ur­sölu fyrir um 404 millj­ónir króna árið 2020.

Ágreiningur vegna mismunandi reikniaðferða

Að mati Hákons ríkir ágrein­ingur um hvaða leiðir séu not­aðar til að reikna út gjald­þol. Þar sem NOVIS sé til­tölu­lega ungt og vax­andi félag sé erfitt að meta fram­tíð­ar­rekstr­ar­kostnað hvers vátrygg­inga­samn­ings og upp­sagn­ar­hlut­fall gerðra trygg­inga­samn­inga. Einnig bætir hann við að það sé algengt að trygg­inga­fé­lög séu til skoð­unar vegna lít­ils gjald­þols, til dæmis hafi fjórð­ungur allra þýskra líf­trygg­ing­ar­fé­laga verið rekin á sér­stökum und­an­þágum, þar sem þau náðu ekki að ávaxta iðgjöldin sín til að halda við­un­andi gjald­þoli.

Þá segir Hákon líka að ákvörðun Seðla­banka Slóvakíu byggi á máli sem sé í raun­inni liðið og að NOVIS hafi styrkt fjár­hag sinn frá síð­asta hausti til að kom­ast til móts við þær kröfur sem eru settar á félagið. Einnig hafi trygg­inga­fé­lagið og eft­ir­lits­að­ilar komið sér saman um for­sendur og aðferð­ar­fræði til að reikna gjald­þol, sem NOVIS styðst nú við.

Hákon bætir svo við að láns­hæf­is­mat NOVIS ekki vera mikið frá­brugðna heldur en ein­kunn íslensku bank­anna, sam­kvæmt mats­fyr­ir­tæk­inu Standard & Poors (S&P). Samkvæmt síð­ustu úttekt fyr­ir­tæk­is­ins er NOVIS með ein­kunn­ina BB-, sem er næst­hæsta ein­kunnin í rusl­flokki. Íslensku bank­arnir hafa hins vegar láns­hæf­is­ein­kunn­ina BBB, sem er næst­lægsta ein­kunnin í fjár­fest­ing­ar­flokki. Þó segir S&P að gjald­þol félags­ins sé full­nægj­andi í skýrslu sinni frá því í októ­ber í fyrra.

Frjáls ráðstöfun eigna í tvo mánuði óheimil

Samkvæmt til­kynn­ingu Seðla­bank­ans hafa eft­ir­lits­að­ilar gert úrbóta­kröfur á hendur NOVIS í þremur liðum. Tveir þeirra eru ekki birtir opin­ber­lega, en sam­kvæmt þriðja liðnum má félagið ekki ráð­stafa eignum sínum með frjálsum hætti næstu tvo mán­uð­ina.

Félagið má heldur ekki greiða út kröfur til aðila sem eru í sér­stöku sam­bandi við NOVIS eða skuld­setja sig meira en venju­legur rekstur félags­ins kallar á.

Ákvörð­unin er tekin með þeim til­gangi að end­ur­reisa fjár­hag NOVIS, en trygg­inga­fé­lag­inu ber að fylgja henni sam­kvæmt lögum um vátrygg­inga­starf­semi. Geri hún það ekki getur fjár­mála­eft­ir­lit í við­kom­andi ríki aft­ur­kallað starfs­leyfi félags­ins, kemur fram í til­kynn­ingu Seðla­bank­ans.

Hafa oft verið til rannsóknar

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem eft­ir­lits­að­ilar hafa afskipti af starf­semi NOVIS. Um sum­arið 2018 bann­aði Seðla­banki Ung­verja­lands félag­inu tíma­bundið að selja nýjar söfn­un­ar­líf­trygg­ingar. Seðla­banki Slóvakíu lagði svo annað slíkt bann á félagið um haustið 2020, þar sem það hafði brotið reglur um fjár­fest­ingu iðgjalda. Það bann var svo fellt úr gildi í febr­úar í fyrra eftir áfrýj­un­ar­beiðni NOVIS, en lagt aftur á félagið tveimur mán­uðum seinna þar sem það væri enn ekki að fjár­festa iðgjöld sín með réttum hætti.

Fjár­mála­eft­ir­litið athug­aði einnig við­skipta­hætti Trygg­ingar og ráð­gjafar ehf. árið 2018 í kjöl­far ábend­inga frá neyt­endum til að ganga úr skugga um að þeir væru í sam­ræmi við lög. Þar gerði eft­ir­litið athuga­semdir við mark­aðs­setn­ingu á sjúk­dóma­tryg­inngu, þar sem félagið miðl­aði mis­vísandi upp­lýs­ingum, auk þess sem upp­lýs­ingar um kostnað og þókn­anir hefðu ekki verið kynntar með full­nægj­andi hætti.

Ári seinna til­kynnti Fjár­mála­eft­ir­litið svo að Trygg­ingar og ráð­gjöf hefðu ekki fram­kvæmd þarfa­grein­ingu áður en trygg­inga­samn­ingar eru gerðir með við­un­andi hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár