Píratar leggja til orkuskatt á stóriðju

Stærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins sam­kvæmt könn­unum er að móta sér stefnu gagn­vart skatt­greiðslum stór­iðju­fyr­ir­tækja. Til­lög­urnar ganga út á að láta þau borga „eðli­lega“ tekju­skatta.

Þingflokkur Pírata.
Þing­flokkur Pírata. Mynd: Birgir Þór

Píratar vilja end­ur­skoða fjár­fest­inga­samn­inga við stór­iðju­fyr­ir­tæki og láta þau borga „eðli­lega“ tekju­skatta í rík­is­sjóð. Semjist ekki um end­ur­skoðun samn­ing­anna innan sex mán­aða frá því að við­ræður hefj­ist vilja Píratar leggja sér­stakan orku­skatt á þau sem skila á rík­is­sjóði sömu eða hærri upp­hæðum og stór­iðjan myndi greiða ef hún væri ekki und­an­þegin almennum reglum um tekju­skatt. Píratar vilja auk þess festa í lög tak­mörk á vaxta­greiðslum sem fyr­ir­tæki geta dregið frá skatt­stofni sínum.

Þetta kemur fram í til­lögu að stefnu Pírata varð­andi stór­iðju og þunna eig­in­fjár­mögnun sem lögð verður fyrir félags­fund flokks­ins í kvöld. Gert er ráð fyrir að ljúka fund­inum með ákvörðun um hvort setja eigi málið í raf­rænt atkvæða­geiðslu­kerfi Pírata til umræðu og ákvörð­unar.

Píratar hafa mælst langstærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins um sjö mán­aða skeið. Fylgi flokks­ins sam­kvæmt síð­ustu könnun Gallup var um 33 pró­sent og ljóst að yrði það nið­ur­staða kosn­inga væri ómögu­legt að mynda tveggja flokka rík­is­stjórn án aðkomu Pírata. Raunar yrði afar erfitt að mynda nokkra rík­is­stjórn án aðkomu þeirra miðað við fylg­is­stöðu flokka, og átaka­línur í stjórn­málum, í dag.

Kostar ríkissjóð 3 til 5 milljarða á ári

Þunn eig­in­fjár­mögnun snýst um það þegar fyr­ir­tæki er fjár­magnað að mestu, eða öllu leyti, með lánsfé. Eigið fé fyr­ir­tæk­is­ins er lítið eða ekk­ert. Lánin sem fyr­ir­tæki sem þessi fá eru oft frá tengdum fyr­ir­tækjum, þ.e. innan sömu sam­stæðu. Fyr­ir­komu­lagið er þekkt og víða notað. Til­gangur þess er að koma í veg fyrir að það mynd­ist tekju­skatt­stofn þar sem allur hagn­aður fer í vaxta­kostnað af lánum.

Þunn eig­in­fjár­mögnun er víð­ast hvar bönnuð í iðn­væddum ríkjum. Í grein­ar­gerð sem fylgir ályktun Pírata er rifjað upp að Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn hafi lagt til við íslensk stjórn­völd efyir hrunið að tekið yrði fyrir hana „en af ein­hverjum ástæðum sáu stjórn­völd ekki ástæðu til að fara að þeirri ráð­legg­ingu, og hefur rík­is­sjóður orðið af miklum tekjum vegna þessa eða milli 3 og 5 millj­arða á ári“.

Fá sex mánuði til að semja, annars leggst á orkuskattur

Í ályktun Pírata er lagt til að lög­fest skuli tak­mörk á þær vaxta­greiðslur sem fyr­ir­tæki geti dregið frá skatt­stofni við 30 pró­sent af hagn­aði fyrir fjár­magnsliði, skata, afskriftir fasta­fjár­muna og um nið­ur­færslur. „Þannig verði 70 pró­sent af EBITDA ávallt skatt­stofn, óháð vaxta­greiðslum fyr­ir­tæk­is­ins“.

Einnig er lagt til að leitað verði end­ur­skoð­unar fjár­fest­inga­samn­inga við þau fyr­ir­tæki sem „með slíkum samn­ingum hafa und­an­þegið sig eðli­legum tekju­skatts­greiðslum“. Í end­ur­skoð­uðum samn­ingum verði eðli­legar skatt­tekjur tryggðar og einnig séð til þess að upp­safnað tap fyrri ára verði ekki notað til að koma í veg fyrir eðli­legar tekju­skatts­greiðslur fyr­ir­tækj­anna fram­vegis.

Þá leggja Píratar til að ef samn­ingar tak­ist ekki um end­ur­skoðun fjár­fest­inga­samn­inga innan sex mán­aða frá upp­hafi við­ræðna verði lagður á sér­stakur orku­skattur sem skili þjóð­fé­lag­inu sömu eða hærri upp­hæðum og ef fyr­ir­tækin væru ekki und­an­þegin almennum reglum um tekju­skatt.

Sú aðferð­ar­fræði minnir nokkuð á þá sem sitj­andi rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks beitti í áætlun sinni um losun hafta. Þar var kröfu­höfum föllnu bank­anna boðið að semja um stöð­ug­leika­fram­lag innan til­tek­ins tímara­mma. Ef samn­ingar tækjust ekki, og slit búa þeirra í kjöl­farið kláruð, myndi leggj­ast á stöð­ug­leika­skattur.

Beint gegn tveimur álfyrirtækjum

Hér­lendis hefur þunn eig­in­fjár­mögnun fyrst og fremst verið í sviðs­ljós­inu vegna lágra tekju­skatts­greiðslna tveggja stór­iðju­fyr­ir­tækja, Alcoa og Norð­ur­áls, sem reka álver hér­lendis.

Í fjár­fest­inga­samn­ingum sem fyr­ir­tækin tvö gerðu við íslensk stjórn­völd á sínum tíma voru engar tak­mark­anir á vaxta­greiðslum til útlanda. Alcoa á Íslandi, móð­ur­fé­lags álvers­ins á Reyð­ar­firði, hefur á grunni þessa fjár­fest­inga­samn­ings greitt 57 millj­arða króna í vexti til móð­ur­fé­lags síns í Lúx­em­borg frá upp­hafi starf­semi sinnar og út árið 2014, vegna láns sem veitt var fyrir fram­kvæmdum við bygg­ingu álvers­ins. Í fyrra runnu 3,5 millj­arðar króna frá Alcoa á Íslandi til Alcoa í Lúx­em­borg, en bæði félögin eru í eigu móð­ur­fé­lags­ins Alcoa í Banda­ríkj­unum.

Þar sem engin tak­mörk eru á því hversu háir vext­irnir eru á fram­kvæmd­ar­lán­inu sem veitt var vegna bygg­ingu álvers­ins getur Alcoa ákveðið hversu háir þeir eru. Samkvæmt nýlegri frétt á vef RÚV skulda íslensk Alcoa-félög lúx­em­borgska Alcoa-félag­inu vel á þriðja hund­rað millj­arða króna.

Þrátt fyrir að Alcoa á Íslandi hafi greitt næstum 60 millj­arða króna í vexti á und­an­förnum átta árum hefur skulda­staða íslenska Alcoa nán­ast ekk­ert breyst á tíma­bil­inu og eigin fé þess er nei­kvætt. Semsagt, það er rekstr­ar­hagn­aður af rekstri álvers­ins en hann fer allur í að greiða vexti til ann­ars Alcoa-félags í öðru landi. Þar af leið­andi sýnir Alcoa á Íslandi fram á tap­rekstur í bókum sínum og þarf ekki að greiða tekju­skatt.

Vaxta­greiðsl­urnar eru samt sem áður til­færsla á fé úr einum vasa í annan. Alcoa í Banda­ríkj­unum á öll félögin og sam­stæð­unnar fjár­magn­aði fram­kvæmd­irnar. Í árs­reikn­ingi sam­stæð­unnar árið 2012, var starf­sem­inni á Íslandi til að mynda hampað fyrir arð­semi, þrátt fyrir að sýna alltaf bók­hald­legt tap og vera með nei­kvætt eigið fé.

Í umfjöllun Kast­ljóss um málið segir að þar hafi staðið að „álbræðslan Fjarð­arál á Íslandi er ein af arð­bær­ari bræðslum í Norður-Evrópu í málm­blendi­eigna­safni Alcoa[...]Ódýr orka og tækni­fram­farir hafa leitt til þess að bræðslur okkar í Noregi og á Íslandi eru þær arð­bær­ustu í aðal­starf­semi okkar á heims­vísu.“

Ríkisstjórnin er með frumvarp hjá sér

Píratar eru ekki að finna upp hjólið með því að leggja til að lögum verði breytt til að taka á þess­ari stöðu.

Í októ­ber 2013 lögðu Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, og þing­menn­irnir Svandís Svav­ars­dóttir og Stein­grímur J. Sig­fús­son fram frum­varp um breyt­ingar á lögum um tekju­skatt „í þeim til­gangi að lög­festa reglur um þunna eig­in­fjár­mögnun og að auki eru lagðar til nokkrar nauð­syn­legar breyt­ingar á tekju­skattslög­unum svo taka megi regl­urnar upp í lögin“. Á meðal þeirra breyt­inga sem lagðar voru til í frum­varp­inu er sama breyt­ing og lögð er til í til­lögu Pírata, um að vaxta­greiðslur sem fyr­ir­tæki geti dregið frá skatt­stofni við 30 pró­sent af hagn­aði fyrir fjár­magnsliði, skata, afskriftir fasta­fjár­muna og um nið­ur­færslur. Í frum­varpi þeirra var hins vegar engin til­laga um orku­skatt.

Vert er að taka fram að öll þrjú höfðu setið í rík­is­stjórn fram á vor­daga 2013. Sú rík­is­stjórn beitti sér ekki fyrir breyt­ingu á lögum um tekju­skatt til að koma í veg fyrir að þunn eig­in­fjár­mögnun.

Málið fékk efn­is­lega með­ferð í þing­inu og hefur farið í gegnum tvær umræður. Föstu­dag­inn 16. maí 2014, fyrir einu og hálfu ári síðan, kusu þing­menn um að vísa mál­inu til rík­is­stjórn­ar­innar til frek­ari með­ferðar, að lok­inni annarri umræðu. 53 þing­menn sam­þykktu þá ráð­stöfun. Enginn var á móti.

Síðan hefur lítið heyrst af fram­vindu máls­ins. Katrín Jak­obs­dóttir beindi fyr­ir­spurn til Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um málið fyrir viku síðan. Þar spurði Katrín hvort unnið væri að breyt­ingum á lögum um tekju­skatt varð­andi þunna eig­in­fjár­mögnun á grund­velli frum­varps­ins sem vísað var til rík­is­stjórn­ar­innar og ef svo er, hvenær ráð­herr­ann ætl­aði að kynna til­lögur á grund­velli vinn­unnar.

Í svari Bjarna kom fram að ráðu­neytið fylgd­ist grannt með sér­stöku verk­efni sem unnið er á vegum OECD undir enska heit­inu Base Erosion and Profit Shifting sem á íslensku gæti lagst út sem Rýrnun og til­færsla skatt­stofna. „Sú vinna miðar meðal ann­ars að því að leita leiða til að hamla gegn mis­notkun skatta­reglna til und­an­skota frá skatti, þar með talið óhóf­legum eða jafn­vel óeðli­legum frá­drætti vaxta­kostn­aðar,[...] þess er þó vart að vænta að frum­varp um mögu­lega tak­mörkun vaxta­frá­dráttar eða þunna eig­in­fjár­mögnun liggi fyrir á þessu þingi nema þá til kynn­ingar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár