Stuðningur við ríkisstjórn eykst - Píratar mælast áfram með mest fylgi

Píratar mæl­ast með tæp­lega 33 pró­sent fylgi og eru stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt nýrri skoð­ana­könnun Gallup. Flokk­ur­inn hefur mælst með yfir 30 pró­sent fylgi frá því í apríl. Fylgi hans hans dalar á frá því í októ­ber, þegar Píratar mæld­ust með með 35,5 pró­sent fylgi. Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins eykst um tæp tvö pró­sent á milli mán­aða og um tólf pró­sent aðspurðra sögð­ust nú myndu kjósa flokk­inn. Framsókn er þó enn langt frá kjör­fylgi sínu, en flokk­ur­inn fékk 24,4 pró­sent í kosn­ing­unum vorið 2013. Frá þessu er greint á vef RÚV.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina tekur kipp upp á við og nærri 39 pró­sent aðspurðra sögð­ust styðja hana í nóv­em­ber. Í októ­ber sögð­ust 35,4 pró­sent styðja rík­is­stjórn­ina. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina er meiri en sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna, því Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með um 25 pró­sent fylgi, sem er nán­ast sama fylgi og hann mæld­ist með í októ­ber.

Fylgi ann­arra flokka breyt­ist lítið milli októ­ber- og nóv­em­ber­mán­aða. Um ell­efu pró­sent segja að þeir myndu kjósa Vinstri græna, rúm­lega tíu pró­sent Sam­fylk­ing­una og tæp fjögur pró­sent Bjarta fram­tíð. Fimm pró­sent myndu kjósa aðra flokka en nú eiga full­trúa á Alþingi. Tólf pró­sent vildu ekki gefa upp afstöðu sína og níu pró­sent aðspurðra sögðu að þeir myndu skila auðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár