Sjálfstæðismenn kvörtuðu yfir fjölmiðlum í aðdraganda kosninga

Í skýrslu ÖSE segir að full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi kvartað yfir umfjöllun fjöl­miðla í aðdrag­anda kosn­inga. Eft­ir­lits­maður hvatti til þess að lög­banni á umfjöllun yrði aflétt.

Í skýrslu ÖSE, Öryggis- og sam­vinnu­stofn­unar Evrópu, segir að full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafi kvartað yfir hlut­drægni fjöl­miðla á fundi með eft­ir­lits­mönnum stofn­un­ar­innar í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga í lok októ­ber í fyrra.

Í skýrsl­unni, sem birt hefur verið á vefnum og vitnað var til í umfjöllun RÚV, segir að full­trú­arnir hafi kvartað undan hlut­drægni fjöl­miðla sem fjöll­uðu um „lög­bannið, þannig að það hafi ein­gögnu átt við um umfjöllun um for­sæt­is­ráð­herr­ann,“ sem á þessum tíma var Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Lög­bannið sem vitnað er til, var lög­bannið sem Glitnir Holdco fékk sett á umfjöllun Stund­ar­innar og Reykja­vík Media upp úr gögnum frá Glitni. Meðal ann­ars var þar umfjöllun um við­skipta­mála­efni Bjarna, þegar hann var bæði stór þátt­tak­andi í íslensku við­skipta­lífi og þing­maður fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Lög­bannið var sett á eftir að sýslu­maður sam­þykkti beiðni Glitnis Holdco þar um, um miðjan októ­ber.

Lög­bannið hefur nú verið dæmt ólög­legt í hér­aði, en Glitnir hefur áfrýjað til Hæsta­réttar, og því gætir áhrifa þess enn. Rit­stjórar Stund­ar­innar og Reykja­vík Media hafa harð­lega mót­mælt lög­bann­inu alla tíð, og sagt það vega að tján­ing­ar­frels­inu og frjálsri fjöl­miðlun á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár