Prófessor í læknisfræði hlynntur sniðgöngu ísraelskra háskóla en andvígur mótmælaaðgerð

Magnús Karl Magn­ús­son, pró­fessor í lækn­is­fræði, seg­ist hlynntur snið­göngu á ísra­elskum háskólum. Hann gagn­rýnir hins­vegar mót­mæla­að­gerðir sem beindust að ísra­leskum pró­fessor.

Magnús Karl Magnússon
Magnús Karl Magn­ús­son Pró­fessor í lækn­is­fræði seg­ist vilja snið­ganga ísra­elska háskóla. Mynd: KRISTINN INGVARSSON

Magnús Karl Magn­ús­son, pró­fessor við lækna­deild Háskóla Íslands (HÍ), telur að HÍ eigi að styðja við akademíska snið­göngu ísra­el­skra háskóla vegna stríðs­glæpa sem þeir eru sak­aðir um gagn­vart palest­ínsku þjóð­inni. Á sama tíma er Magnús Karl ósam­mála aðferðum mót­mæl­enda sem vöktu upp miklar umræður um akademískt frelsi innan Háskóla Íslands í ágúst síð­ast­liðnum og bendir á að þau mót­mæli virð­ast ekki hafa fylgt til­lögum alþjóð­legu snið­göngu­hreyf­ing­ar­innar. Þetta kemur fram í færslu sem hann ritar á heima­síðu sína. Magnús Karl bauð sig fram til emb­ættis háskóla­rek­stors fyrr á árinu en laut í lægra haldi fyrir Silju Báru Ómars­dóttur.   

Erfið umræða fyrir háskólasamfélagið

„Umræða síð­ustu vikna um mót­mæli gegn fyr­ir­lestri Gil Epstein, pró­fess­ors í hag­fræði við Bar-Ilan háskól­ann í Ísrael hafa reynst okkur í Háskóla Íslands erf­iðar,“ skrifar Magnús Karl en málið hefur vakið upp flóknar umræður um akademískt frelsi á Íslandi og sitt sýn­ist hverjum. Mót­mæl­endur voru með háreysti …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár