„Gandálfur er minn guð“

Jón Ingvar Kjaran, lektor við Mennta­vís­inda­svið HÍ skrifar um sam­kyn­hneigða aðgerða­sinna frá Íran og upp­lifun sína.

Síð­ast­lið­inn febr­úar voru 37 ár síðan Aya­tollah Khomeini kom aftur til Írans úr útlegð sinni frá París. Þar með urðu vatna­skil í stjórn­málum Írans og stuttu síðar var íslamskt lýð­veldi stofnað. Síðan þá hafa miklar breyt­ingar orðið á írönsku sam­fé­lagi, jafnt inn­an­lands en einnig í sam­skiptum lands­ins við erlend ríki. Segja má að í dag sé mikil gerjun í írönsku sam­fé­lagi og ýmsir hópar eru farnir að kalla á aukin rétt­indi og við­ur­kenn­ingu af hálfu stjórn­valda, þar á meðal sam­kyn­hneigðir. Enn í dag eru þeir sam­kvæmt lag­anna bók­staf rétt­dræpir. Í þess­ari grein verður fjallað um Ramtin og Farhod. Þeir eru báðir íranskir hommar en jafn­framt aðgerða­sinnar, eða „akti­vistar“, sem barist hafa fyrir breyt­ingum og þurft að gjalda fyrir það með frelsi sínu. Ramtin flúði að lokum land og þjóð og býr núna í Ístanbúl, en sú borg hefur orðið griða­staður sam­kyn­hneigðra flótta­manna víðs vegar frá Mið­aust­ur­löndum, eins og rætt var um í grein sem birt­ist í Kjarn­anum fyrir um hálfu ári. Farhod aftur móti er enn búsettur í Tehran en hefur í hyggju að flýja land.

Ég hitti Ramtin fyrir framan Burger King, nálægt Taksim torgi í Ístanbúl, síð­su­m­ar­kvöld fyrir um ári síðan. Ég var kom­inn eitt­hvað á undan og á meðan ég beið eftir honum horfði ég á fólks­mergð­ina streyma niður Istikal­götu, helstu versl­un­ar­götu hverf­is­ins. Svo mætti hann og þekkti ég hann um leið. Hann er brosmildur, hávax­inn og grannur, með tvo eyrna­lokka í vinstra eyra. Þegar ég spurði hann út eyrna­lokk­ana sagði hann að móðir hans hefði gefið honum annan þeirra. Bætti hann svo við: „Föð­ur­fjöl­skyldan mín skilur ekk­ert í þessu með eyrna­lokk­ana og kallar mig konu því ein­ungis konur bera skart­gripi.“ Viðhorf föð­ur­fjöl­skyldu Ramtins eru í sam­ræmi við ríkj­andi við­horf stjórn­valda í Íran sem krefj­ast þess að bæði kynin klæði sig hóf­sam­lega og á hefð­bundin hátt í sam­ræmi við þeirra kyn­gervi. Hvers kyns frá­vik á borð við eyrna­lokka eða þröngar galla­buxur í til­felli pilta, vara­litur eða lit­ríkur fatn­aður hjá stúlkum, getur gefið til­efni til þess að vera stopp­aður og ávíttur af sið­gæð­is­lög­regl­unni. Írönsk ung­menni eru hins vegar í auknum mæli farin að storka stjórn­völdum með því að klæða sig upp á vest­ræna vísu; eitt­hvað sem að mati stjórn­valda sam­ræm­ist ekki íslömskum gildum. Í sam­kvæmum í heima­húsum og í „neð­an­jarðar“ partýjum sleppa ung­mennin svo fram af sér beisl­inu og upp­lifa algjört frelsi í klæða­burði og sam­skiptum við hitt kynið.

Í Tehran var mér boðið í „hommapartý“ og sá ég þar hvernig gestir klæddu sig öðru­vísi innan veggja einka­rým­is­ins, heldur en dags­dag­lega. Ég ræddi meðal ann­ars við Manziar sem sagð­ist vera trú­aður múslimi, sinnti bæna­kalli og fastaði í Rama­dan mán­uði. Hann bar hins vegar eyrna­lokk og þegar ég spurði hann út í það sagði hann: „Þetta er seg­ull, ekki gat. Karlmenn í Íran geta ekki haft gat í eyra, alla­vega ekki ef þeir ætla að falla að normi sam­fé­lags­ins. Þú lendir í vand­ræðum fyrr eða síðar“.

Ramtin hóf sögu sína þegar við sett­umst niður við Galatasarai turn­inn. Frá­sögnin tók á hann og sá ég tár mynd­ast í hvörmum hans. Hann er 26 ára og á rætur að rekja til Tabriz í Norður-Íran, svæði sem til­heyrir íranska hluta Azerbaijdan. Föð­ur­fjöl­skylda hans er mjög trúuð og leggur áherslu á hefð­bundin gildi að hans sögn. Eftir að hann kom út úr skápnum hafn­aði hún honum og upp­lifði hann stöðugt ofbeldi af þeirra hálfu, aðal­lega and­legt: „Þau segja að sam­kyn­hneigð sé sjúk­dómur.“ Í Íran er hin opin­bera orð­ræða einmitt í þá veru: sam­kyn­hneigð er sjúk­dómur sem á rætur að rekja til Vest­ur­landa. Það þurfi því að upp­ræta þessa „plágu“ með öllum til­tækum ráðum. Móðir Ramtins var hins vegar hans stoð og stytta á meðan hún lifði og reyndi að skilja hann. „Hún var sú eina sem skildi mig og elskaði mig,“ sagði Ramtin og tók ég eftir að tár brut­ust fram hjá honum. Eftir að hún dó fyrir um ári síðan, voru fáir eftir sem hann gat reitt sig á og það var líka þá sem hann fór að hugsa um að flýja land.

Ramtin rekur andúð föð­ur­fjöl­skyld­unnar í sinn garð til trú­ar­bragða og þess áróður sem stjórn­völd hafa uppi um sam­kyn­hneigð: „Þetta eru fas­istar, klerk­arnir sem predika gegn fólki eins og mér og svo örygg­is­sveitir rík­is­ins og sið­gæð­is­lög­reglan sem gerir allt til að koma höggi á okkur, allt saman auð­vitað í nafni trú­ar­innar.“ Sama sagði hann um núver­andi stjórn­völd í Tyrk­landi sem væru inn­blásin af trú­ar­eld­móð þar sem marg­breyti­leiki, einkum á grund­velli kyn­hneigðar og kyn­gervis, hefði ekk­ert rými. Minntist hann þess er gleði­gangan var brotin á bak aftur í júní 2015. Lenti hann sjálfur í táraga­sárás lög­reglu og varð fyrir kylfu­höggum lög­reglu­sveita rík­is­ins. En segja má að mót­lætið hafi styrkt hann og gert hann ákveðn­ari í því að streit­ast á móti. Hann skil­greinir sig því sem „gay akti­vista“:„Í Íran klæddi ég mig oft á ögrandi hátt, ekki í sam­ræmi við normið, og lenti oft í sið­gæð­is­lög­regl­unni. Ég var líka með­limur í litlum hóp akti­vista sem vildi reyna að ögra og storka yfir­völdum. Eitt sinn flagg­aði ég regn­boga­fán­anum rétt utan við Tehran og við tókum mynd­band og settum á netið.“

Eftir það breytt­ist allt saman. Hann og vinir hans voru hand­teknir og sátu í fang­elsi um tíma. Eftir að þeim var sleppt ákváðu þeir að slíta öll tengsl þar sem þeir voru hræddir um að fylgst væri með þeim og að símar væru hleraðir. Þetta urðu líka ákveðin vatna­skil í lífi Ramtins: „Ég ákvað að yfir­gefa Íran. Það var ekk­ert sem hélt mér lengur í Íran.“ Hann sótti því um vega­bréf og svo­kall­aða und­an­þágu frá her­skyldu en hana fá þeir sem skil­greindir eru „sjúkir“ í Íran. Í hans til­felli var sam­kyn­hneigð vísun á sjúk­dóm. Leiðin lá síðan til Tyrk­lands þar sem hann fékk stöðu flótta­manns fyrir um ári síðan. Hann býr þar með öðrum írönskum hommum sem flúið hafa land og þreytir þorr­ann og góuna með pen­inga­send­ingum frá móð­ur­fjöl­skyld­unni og illra borg­aðri íhlaupa­vinnu. Ramtin er hins vegar von­góður og bjart­sýnn. Hann eygir von um að kom­ast að lokum til Evrópu eða Kanada þar sem hann getur verið hann sjálfur án þess að þurfa fela sig eða verða fyrir aðkasti. „Þar ríkir frelsi, þar er hægt að trúa á hvað sem er. Gandálfur er minn guð,“ sagði Ramtin að lokum þegar við kvödd­umst við eina af hlið­ar­götum Istikal­götu.

Víkur þá sög­unni að Farhod. Ég bjó hjá Farhod og kærasta hans, Baziar, í nokkra daga þegar ég heim­sótti Tehran fyrir um ári síðan; ein af mörgum heim­sóknum mínum til Írans. Við komum okkur vel fyrir í stof­unni eftir að Baziar hafði farið til vinnu og drukkum te saman og ræddum málin. Ég bað þá Farhod að segja mér sögu sína. Hann kemur frá Isfahan sem er þekkt fyrir hinar glæsi­legu bygg­ingar, hallir og moskur í kringum eitt aðal­torg borg­ar­innar. Hann hafði snemma gert sér grein fyrir því að hann hneigð­ist til karl­manna en hélt því leyndu og sagði engum frá því. Enn í dag veit fjöl­skyldan ekk­ert um hans hagi. „Eitt sinni spurði bróðir minn hvers vegna ég byggi með Baziar. Ég svar­aði að það væri ein­fald­lega hag­kvæmara, deila leig­unni með öðrum. Þá spurði bróðir minn mig hvort ég væri ekki bara hommi og ég bara hló án þess að svara.“

Fljót­lega barst talið að mót­mælum og bar­áttu fyrir opn­ara sam­fé­lagi. Farhod seg­ist lengi vel hafa verið virkur í ýmiss konar mót­mæla­hreyf­ingum og hafa byrjað snemma sem aðgerðasinni fyrir auknum rétt­indum minni­hluta­hópa og opins sam­fé­lags. „Þegar ég var stúd­ent í Tabriz fór ég að stjórna fundum og skipu­leggja mót­mæli. Þar var ég fyrst hand­tek­inn en sleppt stuttu síðar.“ Eftir það fór hann til höf­uð­borg­ar­innar Tehran þar sem hann hélt áfram þátt­töku sinni í ýmiss konar umbóta­hreyf­ingum. Þar tók hann þátt í mót­mælum og var aftur hand­tek­inn. „Ég sat inni í hótel-Evin í eina viku.“ Farhod er hér að vísa til hins alræmda Evin fang­elsis í Tehran, þar sem póli­tískir and­stæð­ingar stjórn­valda og þeir sem á ein­hvern hátt mót­mæla ríkj­andi fyr­ir­komu­lagi eru vistaðir, oft á tíðum við skelfi­legan aðbúnað og pynt­ingar. Eftir viku í Evin skrif­aði hann undir yfir­lýs­ingu þar sem hann hét því að hann myndi aldrei taka aftur þátt í mót­mælum. „Ég gat hins vegar ekki hætt að mót­mæla,“ sagði Farhod og sneri nú til heima­borgar sinnar Isfahan. Þar hóf hann aftur virka þátt­töku í mót­mælum enda var „græna bylt­ingin“ brostin á.

„Græna bylt­ingin“ voru mót­mæli sem brut­ust út árið 2009 eftir for­seta­kosn­ing­arnar en þá mót­mæltu margir Íranir, einkum ungt fólk, end­ur­kjöri Ahma­d­ini­jads, sem til­heyrði íhalds­armi sam­fé­lags­ins og var studdur af klerka­veld­inu. Megin and­stæð­ingur hans Mir Mousavi, var í augum jað­ar­hópa og ungs fólks hold­gerv­ingur frelsis og umbóta. Urðu því gíf­ur­leg von­brigði meðal margra Írana þegar Ahma­d­ini­jad bar nauman sigur úr bítum og var talið að um kosn­inga­svik hefði verið að ræða. Mótmælin voru brotin á bak aftur af yfir­völdum og stuðn­ings­sveitum Ahma­d­ini­jads og kost­uðu þau fjöl­mörg manns­líf og lentu margir í fang­elsi. Farhod var þar á meðal. Dag einn þegar hann var að rölta heim eftir mót­mæli þá sá hann lög­reglu­þjón berja unga konu. „Ég spurði hann hvers vegna hann sé að berja varn­ar­lausa konu og hann segir mér að skipta sér ekki af þessu. Ég varð svo reiður að ég réðst á hann og kom kon­unni til bjargar. Þá komu fleiri lög­reglu­þjónar og snéru mig niður.“ Að lokum er Farhod settur í járn og færður á lög­reglu­stöð þar sem hann er bar­inn til óbóta. „Ég hló bara og setti upp v-merkið. Ég hélt að þetta yrði eins og áður þegar ég var hand­tek­inn, sleppt stuttu síðar.“ En raunin varð hins vegar önnur enda töldu stjórn­völd sig hafa rétt til að berja niður „grænu bylt­ing­una“ með öllum til­tækum ráðum. 

Farhod var pynt­aður herfi­lega. Fyrst var hann bar­inn með kylfum. Því næst var hann afklæddur og hafður í klefa sem var við frost­mark. Svo var hann hengdur upp öfugur (haus sneri niður) og raf­magn leitt í mag­ann á honum. „Þegar maður snýr svona öfugt, fer allt blóðið niður í haus og þá magn­ast allt upp þegar þeir settu raf­magnið í mig, gáfu mér stuð. Það var eins og haus­inn á mér væri að springa.“ Til­gangur með pynt­ing­unum að hans sögn var sá að fá hann til að skrifa undir játn­ingu. Það gerði hann eftir að hafa þolað pynt­ingar í um viku. „Ég hefði skrifað undir hvað sem er,“ sagði Farhod. Eftir það var farið með hann í dóm­sal þar sem dómur var kveð­inn upp yfir honum. „Ég sagði dóm­ar­anum að ég hefði verið pynt­aður en hann hlust­aði ekki á það.“ Farhod fékk mán­aðar fang­els­is­dóm og var farið með hann í sér­staka örygg­is­álmu fyrir „hættu­lega“ fanga, sem voru aðal­lega þar af póli­tískum ástæðum. „Þar var ég lát­inn dúsa í litlum klefa með átta öðrum föngum. Einn klefa­fé­lagi minn var múlla (prestur). Þegar hann vildi fara með bæn og biðja til allah um að hann myndi að lokum hjálpa þeim út úr prís­und­inni sagði ég að þetta væri lok­punkt­ur­inn. Allah mun ekk­ert hlusta á okkur.“

Fjöl­skylda hans vissi ekk­ert hvað um hefði orðið eða hvað um hann varð. Hann náði að lokum að koma skila­boðum til þeirra þegar klefa­fé­lagi hans losn­aði úr fang­els­inu. Sá hringdi úr almenn­ings­síma í fjöl­skyld­una og sagði hvar Farhod væri nið­ur­kom­inn. Svo skellti hann á. Fjöl­skylda hans kom í fang­elsið fjórum sinnum og spurði um hann en fékk alltaf þau svör að hann væri ekki þar. Eftir mánuð var honum svo sleppt og fór hann þá heim til sín, skemmdur á sál og lík­ama. Hann þurfti síðar að koma aftur fyrir dóm­ara og var hann þá fár­veikur eftir dvöl sína í fang­els­inu. „Ég sé ekki eftir neinu. Ég er ánægður í dag og sé hlut­ina í öðru ljósi.“ Í dag býr Farhod í Tehran en hefur í hyggju að flýja Íran fljót­lega. „Það er ekki hægt að búa í Íran. Ég er sam­kyn­hneigður en jafn­framt óvinur rík­is­ins. Ég fæ hvergi vinnu og get ekki byggt upp líf mitt hér.“ Í dag er Farhod að vinna að heim­ilda­mynd um stöðu og reynslu homma í Íran.

Frá­sagnir Ramtins og Farhods gefa sýn inn í líf homma í Íran og hvernig þeir þrátt fyrir for­dóma og ofsóknir, reyna að skapa sér rými og streit­ast á móti ríkj­andi gildum, í þeirri von að fyrr eða síðar muni sam­fé­lagið taka breyt­ingum í átt til auk­ins umburða­lyndis og lýð­ræðis. Næstu grein verður fjallað um stöðu hinsegin fólks í Indónesíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár